Vikan

Issue

Vikan - 21.06.1973, Page 9

Vikan - 21.06.1973, Page 9
Þannig lita búningateikningar hans út. Thorbjörn Egner við vinnuborðið. Hann er að leggja siðustu hönd á búningateikningarnar i sjónvarps- þáttinn „Káta fjölskyldan". Annars er þarna margt, sem maður kannast við, sviösmyndir úr Kardemonunu- bæ og Hálsaskógi. Karius og Baktus eru lika þarna á borðinu. reynt að gera þessar bækur þann- ig úr garði, að þær örvi lestrar- áhuga og lestrargleði. Þess vegna hefi ég lika horfið frá þvi að gefa út heilsársbækur og haft bindin heldur tvö fyrir hvert ár. Bækurn- ar verða þá handhægari og þá er lika hægt að byggja þær upp að mestu leyti utan um eitt og sama efnið. Hver bók fær þá sinn titil. Ég hefi i öll þessi ár leitað með logandi ljósi að heppilegu efni, ekki beinlinis þvi stórbrotnasta, heldur það sem listamennirnir leggja til ungum lesendum, eitt- hvað, sem fjallar um þá sjálfa, annað fólk og umheiminn, eitt- hvað sem vonandi leggur grund- völl að áhuga þeirra á myndlist og ritlist og verður þeim vega- nesti langt fram yfir skólaárin. — Og hvernig móttökur hafa bækurnar fengið i skólum lands- ins? — Góðar, að ég held. Það eina, sem skólarnir finna að, er aö nemendurnir lesa mikinn hluta efnisins, fyrr en þeir eiga að gera það. En það tek ég ekki sem slæma gagnrýni, heldur finnst mér það sanna aö bækurnar eru vinsælar og eiga rétt á sér. — Siðustu bindin, sem ætluð eru fyrir áttunda og niunda skóla- ár, eru áhugavekjandi lestrarefni fyrir fulloröna, hafiö þér þá ekki áhyggjur af þvi að það sé nokkuð erfitt fyrir skólaunglinga? — Þaö finnst mér alls ekki. Það sem kann að virðast ofraun þess- um ungu lesendum, liggur ekki i þvi að efnið sé eitthvað erfiðara, heldur i þvi að þarna er að finna efni, sem ekki hefir verið áöur i slikum lestrarbókum. 1 þessum bókum er meiri þáttur helgaður þvi sem er að gerast á okkar tím- um, meira af nútima skáldskap og nýjum félagsmálaviðhorfum. Heimsbókmenntirnar eru kynnt- ar á breiöari grundvelli, eins og aðrar upplýsingar um myndlist, leiklist, kvikmyndir, tónlist og aðrar listgreinar. Nýja efniö er sett fram á auðskilinn hátt, en það er ekki þar með sagt að kast- að sé til þess höndum, þar er val- inn maður á hverjum staö og samstarfiö hefir verið einstakt. Við höfum lagt mikið upp úr þvi að allir textar séu settir fram á einfaldan og auðskilinn hátt, án ónauðsynlegra tökuorða. — Hvernig er það nú, að hafa lokið við svona vandasamt verk? — Ég hefi ekki haft tima til að gera mér þaö ljóst, segir Egner brosandi, — ég hefi haft svo mikiö annað að gera, ýmislegt, sem Framhald á bls. 38 25. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.