Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 21.06.1973, Qupperneq 13

Vikan - 21.06.1973, Qupperneq 13
SMÁSAGA EFTIR EDITII PARGETER Ef ég hefði ekki þekkt Frank Willard i fjögur ár, án þess að vita i rauninni nokkurn skapaðan hlut um hann, hefði ég liklega ekki orðið svona djúpt snortinn. Ég hafði verið i kriketklúbb með hon- um i tvö ár, og tekið ofan fyrir honum og konunni hans eftir messu næstum hvern sunnudags- morgun, siðan ég settist að i nágrenninu, en samt fannst mér, að þegar ég var sóttur i lögreglu- stöðina þetta kvöld, þá væri ég að sjá hann i fyrsta sinn. Hann sat á bakbeinum stól, með hendurnar hangandi mátt- lausar niður milli hnjánna og starði beint fram fyrir sig, dökk- bláu augunum, máttlaus á svipinn, rétt eins og yfirgefinn af huga og minni. Þegar ég kom i sjónmál hans, horfði hann gegn um mig. Vel- burstaðir svörtu skórnir hans og gráu fötin, sem voru dálitið slitin var hvort tveggja snyrtilegt að vanda, en maðurinn innan i fötun- um var eins og algjörlega óvirk- ur. Læknirinn sagði að þetta væri taugaáfall. Skrítiö, hvernig sálar- líf mannsins starfar. Ekkert hafði komið fyrir hann, likamlega séð, og engin ný vitneskja hafði borizt honum. Þetta sem hafði orkað svona á hann, hafði verið i vitund hans i heilt ár, og eini munurinn var sá, að hingaö til hafði það verið að baki augna hans, en nú hafði það verið sett upp frammi fyrir þeim. Nákvæmlega hálftima áður hafði lögreglan tekið hann fastan fyrir að falsa bókhaldið hjá fyrir- tækinu hans, og það einum tólf sinnum, og draga sér eitthvað um fimm hundruð pund. Ég varð að snerta hann áður en hann yrði min var. Ég settist fyrir framan hann, tók i hendurnar á honum og snertingin virtist eins og vekja hann til meðvitundar. En þegar ég sagði: — Halló, Frank, hvað hefur komið fyrir þig? Þá leit hann aöeins á mig vandræðalega, og sagði: — Ég veit það ekki, likast hræddu barni. Svona hafði hann verið allan timann, var mér sagt. Hann hafði hlustað á aðvörunina og ákæruna, en siðan verið rétt eins o’g hann botnaði ekki neitt i neinu. Hugsunin um að nú væri allt orðið uppvist bar hann ofurliði og hann skildi þetta ekki. Við ákærunni hafði hann ekki sagt annað en: — Já. Og svo skömmu seinna sagði hann, rétt eins og hann langaði að útskýra málið: — Hún var svo góðu vön og hafði ekkert vit á peningum. Þetta voru nú ekki miklar upp- lýsingar, en nægilegar samt. Svo virtist sem hann hefði verið dálitið óvarkár siðast, og þá var- lika um stærstu upphæðina að ræða. Peningarnir voru næstum allir heima hjá Uonum og hann visaði á þá, reikandi eins og svefngengill. Að svo miklu leyti sem hann átti nokkra hugsun i sér, gerði hann sitt bezta til að hjálpa til. Það gat ég vel skilið. Hann var þrjátiu og tveggja ára gamall, iðjusamur, velviljaður samvizku- samur, þolinmóður og nákvæmur j3g þannig eðlilega laga og réttar megin. Ég gat nú litið fyrir hann gert á þessu stigi málsins, hvorki sem eftirlitsmaður hans eða vinur. Réttarhöldin yfir honum urðu aö biða einar þrjár vikur eða meira, af þvi að hann var ekki i neinu ástandi til að setjast i saka- mannastólinn. t tvo eða þrjá daga var hann eins og hálfdauður, en þegar þetta deyfðarmók rann af honum var hann helmingi verri viður- eignar — ýmist féll hann alveg saman eða rauk upp með ofsa. Hann var i heila viku á deyfilyfj- um, en loksins varð hann rólegri og svipaður þvi, sem hann átti að sér. Jafnskjótt sem hann var orðinn - málhress til að tala við lög- fræðing, fór ég að hitta konuna hans, og hvetja hana til að koma honum i hendur einhvers góðs lögfræðings, eins fljótt og unnt væri. 1 rauninni hafði ég aldrei veitt henni athygli fyrr — annars hefði ég verið fljótari að átta mig á öllu málinu. Hún tók á móti mér i litla snotra húsinu þeirra, i búningi, sem hefði ekki þurft að skammast sin fyrir i kokteilsamkvæmi hjá sendiherra, og með safirdjásn í platinukeðju. Tuttugu og átta ára gömul, verulega lagleg en með hörkulegan svip. Dökkt hár og litlar þykkar nautnasjúkar varir. Hún var ekkert máltreg i sam- bandi við manninn sinn. Þetta hafði verið hræðilegt áfall fyrir hana, sem hún mundi aldrei fyrir- gefa. Hann hafði valdið henni skömm og illu umtali um hana saklausa. Þvi að saklaus þóttist hún sannarlega vera og nú illilega móðguð. Henni bæri engin skylda til að vera bundin glæpamanni og það ætlaði hún sér heldur ekki að veröa. Hann gæti fengið lögfræðiað- stoö, ekki satt? Sjálf yrði hún að hugsa um sina eigin stööu. Ef hún léti almenning verða i nokkrum vafa um afstöðu sina, væri hún að gera sjálfri sér rangt til. Hún ætlaði sér að vitna með sækjandanum. Jú, hún vissi vel, að henni bar engin skylda til þess að lögum, en hún væri bara skyld- ug til þess sjálfrar sin vegna. Frank yrði að taka afleiðingum af sinum eigin gerðum og skyldi ekki fá að koma þeim á hana. Og hvað snerti að fá sér lögfræðing, hvaðan ætti hún að taka það sem slikt kostaði? Nú yrði hún að sjá sjálfri sér farborða — ekki svo að skilja, að hann hefði nokkurn tima getað séð almennilega fyrir konu. Og svo var um að ræða sið- feröilega hlið málsins ef ekki annað. Ég varð þeirri stundu fegnastur þegar ég slapp út. Stofan var of mikil spegilmynd ef svo mætti segja, af frú Willard sjálfri. Hún var rikmannlega búin og full af dýrum hlutum. Þarna var skápur fullur af mjög vönduðu postulini, persneskt gólfteppi og stórkost- lega dýr flygill. Alls konar skrautgripir fylltu arinhilluna. Þaö lá i augum uppi, hvert peningarnir höfðu fariö. Ég minntist þess lika, eftir allar þessar upplýsingar, að ég hafði gengið aö þvi visu, að loðkápan hennar væri úr gerviskinni en nú komst ég á aðra skoðun. Með svona smekk var það engin furða þó hún hefði ekki peninga handa verjanda mannsins sins. Það var ég, sem náði i lög- fræðinga handa honum. Haan hafði viljað játa sig sekan, en Fordyce reyndi að fá hann ofan af þvi. Hann hafði enn tilhneigingu til að fara i þá áttina, sem honum var ýtt, og það var eins og honum væri sama, hvert viöleitni okkar bæri hann, þar eð heimur hans Framháld. á nœstu síðu.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.