Vikan - 21.06.1973, Side 46
hrærigrautur af skýjakljúfum og
húsum, einkennileg samsetning
af fegurð og ljótleik, smekk og
verzlunarmennsku, en að baki
voru fjöllin, með tindana gyllta af
sigandi sól. Jafnvel
mannshöndinni hafði ekki tekizt
að spilla náttúrufegurðinni
þarna.
Þeir gengu út á aðalbakkann,
sem var eins og tvöfalt F i laginu,
og gengu svo út eftir honum til
hægri. Allar kviarnar nema ein,
voru með skipum i, svo að það var
auðvelt að þekkja nr. 16. I nr. 15.
var litill seglbáutur með
hollenzkum fána, en i nr. 17. stór
bátur með frönskum fána. Verrell
gekk upp landganginn að honum
og talaði þar við þrennt -
karlmann, konu og unglings-
stúlku, sem sátu undir sóltjaldi
aftur á og drukku vin.
— Við horfðum á bátinn
seglbúast, sagði karlmaðurinn,
sem var grannur en einbeittur i
framkomu.
— Hafið þér nokkra hugmynd
um, hve margir voru þarna um
borð?
Maðurinn yppti öxlum. — Nei.
Báturinn hafði legið þarna
bundinn i nokkra daga - hann var
hér fyrir þegar við komum. Og ég
hef verið svo upptekinn, þangað
til fyrir svo sem tiu minútum, að
ég hef ekki litið mikiö kringum
mig.
Nú tók stúlkan til máls, hásum
rómi: — Ég sá þa fara um borð,
pabbi.
Það voru þrir karlmenn.
— Gætuð þér lýst þeim, ungfrú?
spurði Verrell.
Hún hugsaði sig um. — Þeir
voru áreiðanlega útlendingar,
svartir á hár og dökkir á hörund.
Og af þvi að báturinn var með
egypzkan fána, gekk ég út frá þvi,
að þeir væru Egyptar.
— Voru þeir nokkuð
sérkennilega klæddir?
— Það held ég ekki . . . .Nei,
það er nú ekki rétt hjá mér. Einn
þeirra var i fötum, sem jafnvel
garðyrkjumaðurinn okkar hefði
skammazt sin fyrir að vera i.
— Að hvaða leyti voru þau ein-
kennileg?
— Það var liturinn. Þau voru
afskaplega stórköflótt - rauð og
blá og litirnir afskaplega eitthvað
glannalegir . . . Svei mér ef ég
veit, við hvað ég á að likja þvi..
Verrell mundi eftir manninum,
sem hafði verið i skræpulitu
fötunum, sem fóru svo illa. Þetta
var áreiðanlega einn þeirra
þriggja, sem höfðu veriö upp i
Gorgona. — Voru þeir nokkuö
eftirtektarverðir að öðru leyti?
Stúlkan saup á glasinu og
hugsaði sig um. — Já, ég held að
einn þeirra hafi verið eitthvað
meiddur á handlegg - hann bar
hann þannig.
— Þér hafið tekið vel eftir.
Húsbóndinn hafði verið að
athuga Verrell, þegjandi. — Má
ekki bjóða ykkur eitt glas?
— Það vildi ég gjarna þiggja, en
ég verð bara að flýta mér. Þér
gætuð náttúrlega ekki sagt mér,
hversu hraðskreiður þessi bátur
er?
— Nei, það get ég nú ekki. En
eftir stærð og öðru að dæma, þætti
mér liklegt, að hámarkshraði
hans væru svo sem fimmtán
hnútar.
— Þakka yður kærlega fyrir.
Verrell gekk niður landganginn.
— En sá indæli maður. sagði
stúlkan. — Hversvegna fær
maður aldrei að hitta neina
honum lika?
— Vertu ekki með þessa
vitleysu, sagði móðir hennar, en
það var engin sannfæring i
röddinni.
— Mér þætti gaman að vita,
hver hann er og hverju hann er
eiginlega að leita að? sagði
maður hennar. Það leggst ein-
hvernveginn i mig, að þessir þrir
muni eiga eitthvað ógreiða ferð
fyrir höndum.
14. kafli. _
Georg stóð á bakkanum og
horfði á sjóinn út um
hafnarmynnið, og nú var sjórinn
orðinn dökkblárri en áður, undir
nóttina. — Hvað gerum við nú
næst? Fáum við okkur leigðan bát
og reynum að elta þá uppi?
Verrell hristi höfuðið. — Það er
bráðum orðið dimmt og þaö er
alveg útilokað að finna þá i
myrkri.
— En getum við bara staðið hér
og . . .
Verrell sneri sér við. — Góði
Georg minn, við erum nú búnir að
vera á eilifum þeytingi allan
daginn, og nú er timi til kominn
aðhvila sig svolitið. Og við höfum
HrútsmerkiA (21.
marz — 20. apríl)
Allt útlit er fyrir að
þessi vika verði mjög
viðburðarik, einkum
og sér i lagi, ef tilfinn-
ingar eru þar með i
spilinu. ökunnur mað-
ur kemur mikið við
sögu þina og það á dá-
lltið óvenjulegan hátt.
Þú munt una þér vel
heima, þó kannske
gæti nokkurs fiðrings
um helgina.
Nautsmerkið (21.
aprll — 21. mai).
t sambandi viö merk-
isatburð I fjölskyld-
unni gerist eitthvað,
sem á eftir að draga
dilk á eftir sér. Þú
færð til úrvinnslu ó-
venju skemmtilegt
verkefni, en umfram
allt skaltu gæta þess
aö ætla þér nógan
tima til þess að ljúka
þvi. Um helgina er á-
riöandi að kunna að
taka gamni.
Tvlburamerkið (22.
maf — 21. júnf).
Af einhverjum mis-
skilningi verður þú
bendlaður viö mál,
sem þú hefur f raun-
inni ekki komið ná-
lægt, eöa þvl sem
næst. Allt fer þó vel að
lokum. Heiilatala 5.
Krabbamerkið (22.
júnf —23. júlf).
Þér berst góð gjöf i
vikunni, og i þvf sam-
bandi gerist eitthvaö
skemmtilegt. Þú munt
skemmta þér vel i vik-
unni, en passaöu þig á
hinu kynina. Um helg-
ina verður lögö fyrir
þig gildra, sem þú
virðist ætla að kunna
að verjast.
Ljónsmerkið (24.
júli — 23. ágúst).
Þú færö hugmynd I
vikunni sem tæplega
er framkvæmanleg
nema f járstuðningur
góðra vina komi til,
svo og holl ráö ætt-
ingja. Laugardagur-
inn er undarlegur dag-
ur. — Ekki er ljóst
hvernig, en vertu við
öllu búinn. Heillatala
karla 7, kvenna 3.
Meyjarmerkið( 24.
ágúst — 23. septem-
ber).
Þú ferða að heiman
eitthvert kvöldið f vik-
unni, liklega um helg-
ina og munt þá kynn-
ast persónu, sem gæti
haft mikil áhrif á
geröir þinar næstu
vikurnar, og kannske
lengur. Nokkuð er far-
ið að bera á minni-
máttarkennd hjá þér,
en til þess er tæpast
nokkur ástæða.
Stjörnþspá
46 VIKAN 25. TBL.