Vikan - 28.06.1973, Blaðsíða 16
VIKAN efnir nú til nýrrar sumargetraunar og eru óvenju-margir og
glæsilegir vinningar i boði. Við höfum valið þá i sambandi við
sumarleyfisferðir, útilegu, veiðiskap og sitthvað fleira. Við bjóðum
ferð til Mallorka fyrir tvo með úrvali, veiði i Hrutafjarðará og uppi-
hald i Staðaskála, veiðiáhöld og útileguútbúnaður ýmiss konar. í»á
er einnig reiðhjól frá Fálkanum, kvöld* fyrir tvo á Hótel Esju og
námskeið i afslöppun og snyrtingu hjá Heilsulindinni. — Getraunin
verður i fimm blöðum. Þegar öll fimm blöðin eru komin — ekki fyrr
— sendið þið lausnirnar til VIKUNNAR, PÓSTHÓLF 533,
REYKJAVÍK og merkið umslagið „Sumargetraun”. Haldið öllum
seðlunum saman, þar til keppninni lýkur. Takið þátt i þessari glæsi-
legu og skemmtilegu sumargetraun okkar.
4. HLUTI
í höfuðborg Mallorka, Palma, iðar
alltaf lífi frá morgni til kvölds, þeg-
ar næturlífið hefst með
flamencodönsum og seiðandi, suð-
rænni hljómlist. Þá skal þess getið,
að fyrir utan sex skipulagðar skoð-
unar- og skemmtiferðir með
íslenzkum fararstjórum, eru mögu-
leikar á ferðum t.d. til Ibiza,
Tangier og Madrid að ógleymdri
nautaatsferð hvern sunnudag.
VEIÐI í HRÚTARFJARÐARÁ og
uppihald fyrir tvo í Staðaskála í
Hrútafirði ereinn af aðalvinningun-
um í getrauninni. Staðaskála er í
rauninni óþarft að kynna. Þar er
hægt að fá veitingar allan daginn,
góð þjónusta, matur og gisting.
Einnig er hægt að fá tjaldstæði á ár-
bökkunum fyrir neðan með góðri
snyrtiaðStöðu. Bensínafgreiðsla er
þar ennfremur og verzlun,
DBS-REIÐHJÓL er einn af aðal-
vinningunum í getrauninni okkar.
Hér er um vandað og nýtízkulegt
reiðhjól að ræða. Það er framleitt í
Noregi en fæst hér á landi í Fálkan
um. Það er með gírskiptingu og er
mjög svipað -að útliti og Chopper-
hjólin brezku. Stýriðer hátt og sæt-
ið langt. Norðmennirnir kalla þetta
hiól TOMAHAWK