Vikan - 28.06.1973, Blaðsíða 20
er konan önaegó
konan á aö líta sem allra eðlileg
ust út, ekki offörðuð eins og með
gerviandlit. Á markaðinum er til
mikið úrval bæði af lausu og föstu
púðri í fallegum litum/ Nú um
nokkuð skeið hefur verið á mark-
aðinum svokallað gagnsætt laust
púður, sem breytir ekki lit húðar-
innar heldur tekur aðeins glansinn
af henni.
Þá er komið að augunum, einum
athyglisverðasta hluta andlitsins.
Mikil litagleði hefur verið ríkjandi
undanfarið í augnskuggum. Allt
frá gulum, aprikósulit, bleikum,
ryðrauðum, fjólubláum og niður i
þá hefðbundnu liti grænu, bláu og
brúnu. Þegar valdir eru
augnskuggar þarf ekki endilega að
velja liti sem eru í samræni við
augnlitinn heldur við fataliti og liti
sem fara vel við fatnað sem maður
klæðist. Augnhárin eru næst á
dagskrá. Til er augnháralitur sem
í eru laus hár og eru þeir éinkum
heppilegir fyrir konur sem eru með
stutt augnhár, því að við notkun
þeirra virka augnhárin lengri.
Einnig eru til svokallaðir Cake
Maskarar og maskarar með
næringu, sem er mjög nauðsynlegt
fyrir augnhárin, því að ekki er gott
þegarþau fara að brotna. einnig er
gott að láta lita þau með ekta lit
sem gera þau eðlilegri, einkum
fyrir þær sem að einhverjum
ástæðum vilja eða geta ekki notað
augnaháralit. Gerfiaugnhárin hafa
mikið verið notuð, og eru til í
mörgum gerðum og stærðum. Þau
gera mikið fyrir andlitið, ef konan
vill líta sérstaklega vel út.
Augabrúnirnar: nauðsynlegt er
að þær séu vel snyrtar og plokkaðar
en sem eðlilegastar, aðeins má
plokka undir augabrúnunum og
milli þeirra. Forðast skal að nota
dökka liti t:d. svart. Það gerir
andlitssvipinn harðan og grimman.
Kinnalitir fást í púður og krem-
formi. Ef notað er andlitspúður, er
betra að nota kinnalit í púð-
urformi, en fyrir þærsem ekki nota
púður er betra kremformið.
Kinnalitir, öðrunafni andlitsskugg-
ar, erutil í mörgum fallegum litum
sem setja frísklegri og eðlilegri blæ
á andlitið.
Þá er komið að varalitnum, þeir
eru til í mörgum fallegum litum,
bæði sanseraðir og ósanseraðir,
einnig svokallaðir gloss litir. Ætíð
skal bera varalit á með pensli, það
gerir útlinurnar og lagið á vörun-
um fallegra. Nýjustu tízkulitir
fyrirsumarið verða mun Ijósari og
fölari en verið hefur, t.d. í nagla-
lakki og varalitum verður mikið
ríkjandi bleikir litir.
Það er vísindalega sannað, að ef
kona er ánægð með sjálfa sig og
útlit sitt öðlast hún sjálfsöryggi
jafnframf að andlega líður henni
vel. í dag er til allt, sem ein kona
þarfnast og með réttri meðhöndlun
og réttri nokkun á snyrtivörum,
þarf engin kona að hafa áhyggjur
af úflifi sínu. Þvi eins og orðtækið
segir: Vel snyrt er konan ánægð.
Kadus Terminal Quick
hárnæring
Með Terminal Quick
hárnæringu verður hárið
fallegra.
Notið alltaf Terminal
Quick eftir hárþvott.
Terminal Quick er
auðvelt í notkun því
Terminal Quick á ekki
að skola úr hárinu. Biðj-
ið um Terminal Quick i
næstu snyrtivörubúð.
*