Vikan - 28.06.1973, Blaðsíða 7
Margir siöir og venjur i sambandi viö brúökaup eru runnir frá gamalli hjátrú.
„Ef það er stúlka sem er sjúk,
sendir maður tvo drengi til að
biðja um „nikonen-silfur”, það er
að segja.þeir eiga að ganga til
niu kvenna og biðja hverja
þeirra um eitt stykki silfur, sem
má hafa gengið einu sinni i arf.
Annar drengjanna biður bónar-
innar, en hinn tekur á móti silfr-
inu, hann má hvorki tala eða
hlæja feröina á enda. Hið safnaöa
silfur færist til gullsmiðs, sem á
þremur fimmtudagskvöldum
smiðar kross úr silfrinu og hann
verður sjúklingurinn stöðugt að
bera á sér. Ef það er drengur sem
veikist skal senda tvær stúlkur i
sama tilgangi.”
um ketti og grafðu það niöur á
fimmtudagskvöldi, þegar sólin
hefur sezt, um niu leytið við norð-
ur hlið kirkjunnar i nýja litla
krukku. Þriðja fimmtudags-
kvöldið þar á eftir, á sama tima,
tekur þú hana upp og þá muntu
finna hring i krukkunni. Þegar
þú berð hann á fingri þér, ertu
ósýnilegur”.
i Mjög einfalt.
Nú á dögum hlæjum við aö
svonalöguðu. En það gerði maður
ekki þá, þvert á móti, það voru
margir sem trúðu á þetta. Og ekki
eru nema rúm hundrað ár siðan.
Eiginlega liggur beinast við að
halda áfram þar sem frá var
horfið. Ætli eftirkomendur okkar
hlæi ekki að ýmsu þvi sem við nú
á dögum trúum á? Sennilega . Og
nú meinum við það sem við trúum
á, án þess að vera viss um, hvort
það sé i rauninni hjátrú. Víð vild-
um gjarnan fara lengra inn á
þessa braut, en þegar hér er
komið vilja eflaust margir skoða
hug sinn.
Annars er það ótrúlegt, hversu
langlif hjátrúin hefur orðið. t
blöðunum lesum við um hinn
fræga franska rithöfund Georges
Simenon, þann sem hefur skrifað
Maigret bækurnar. Hann fæddist
föstudaginn 13. Simenon segir að
móður hans hafi orðið svo mikið
um þetta að hún hafi fengið breytt
dagsetningunni i skirnarvottorði
sonarins.
Hvað er annars athugavert við
töluna 13? Eitthvað hlýtur það að
vera þvi næstum enginn vill hafa
13 til borðs, til dæmis...Heldur
einum fleira eða færra. Til eru
hótel þar sem maður getur leitað
lengi árangurslaust að herbergi
13. Þau eru hreinlega ekki til. Eða
flugfélög sem ekki hafa eitt
einasta sæti númer 13 i flugvélum
sinum. Það finnast jafnvel háhýsi
þar sem „hoppað” hefur verið
yfir 13 hæð og hún kölluð eitthvað
annað.
FÖSTUDAGUR ÞRETTANDl
Til er einnig fólk sem fest hefur
ást á ákveðnum tölustöfum —3 og
7 eru þeir vinsælustu. Hjátrú i
sambandi við tölur er eldgömul
og fyrirfinnst i öllum samfélög-
um. Einnig er trúin á að vissir
vikudagar séu til gæfu eða öfugt.
Danskur- málsháttur segir að
það sé eyðilegging vikunnar að
flýta sér á mánudögum. Það hef-
ur heyrzt að margir iðnaðarmenn
neiti að byrja nýtt verk á mánu-
degi. Blaðamaður átti eitt sinn að
byrja vinnu á blaði á mánudegi.
Þegar ritstjórinn uppgötvaði
þetta, bað hann byrjandann að
biða til þriðjudags. Föstudagur-
inn 13. kemur af stað skjálfta hjá
mörgum.
Tölfræðilegar heimildir höfum
við ekki, en allt bendir til að
„borðbankið” sé ein algengasta
tegund „særinga”. Rétt aðferð er
að banka undir borðið nögl litla
Framhald á bls. 40
MJÖG EINFALT.
Sá sem vildi svo litið bæri á
fylgjast með sinni heittelskuðu —
og hver vill það ekki? — gat ein-
faldlega gert sig ósýnilegap. Hér
er uppskriftin:
„Skerðu hjartað úr koisvört-
26. TBL. VIKAN 7