Vikan - 23.08.1973, Síða 10
Alþýðuflokkurinn stóð uppi foringjalaus i
Norðurlandskjördæmi vestra, er leiö að sið-
ustu alþingiskosningum, þvi að Jón Þor-
steinsson geröist afhuga mannaforráðum
sinum þar. Hafði Jón farið i framboð á þess-
um slóðum I seinni kosningunum 1959, þegar
Aki Jakobsson vék öðru sinni úr landsmála-
baráttunni eftir byltuna miklu i Siglufirði
sama vor eins og dauðþreyttur heldrimaður,
sem missir móðinn á örlagastundu. Jón tefldi
hins vegar mætavel og varð landskjörinn
þingmaður sjálfum sér og öörum til undrun-
ar, en vist sér i lagi Aka Jakobssyni, þar sem
hann sat eftir meö sárt enniö. Sótti Jón svo
fast á I kosningunum 1963 og þó mun fremur
1967, vir.tist orðinn sæmilega öruggur um
uppbótarsæti og hafði nærri fellt Björn Páls-
son á Löngumýri, en fór þá allt i einu að dæmi
Aka, þó að heill væri og ósigraður. Alitu sum-
ir, að hinn snjalli skákmaður hefði metiö tafl-
stöðu Álþýðuflokksins af mun meiri glögg-
skyggni og framsýni en Gylfi Þ. Gislason og
handgengnustu og eftirlátustu ráðgjafar
hans og ekki haft skap til þess að eiga
kannski á hættu að sökkva með fúnu skipi á
slæmri siglingu. Voru ýmsir tilnefndir i stað
Jóns, en valið féll loks á Pétur Pétursson, og
munu alþýðuflokksmenn i Siglufirði einkum
hafa ráðið þvi. Var hann reyndur að flokks-
hollustu á öðru landshorni og kunnur að lip-
urri fyrirgreiðslu, en naut þess og að hafa
ungur tvöfaldað fylgi Alþýðuflokksins i
Húnaþingi. Reyndist Pétur heppnari en flest-
ir ætluðu, þó að hann yrði að una minni hlut
við skiptingu atkvæðanna en Jón Þorsteins-
son hafði borið mestan úr býtum.
Pétur Pétursson fæddist aö Mýrdal i Kol-
beinsstaðahreppi i Hnappadalssýslu 21.
ágúst 1921, sonur Péturs Péturssonar bónda
þar og Ólafiu Eyjólfsdóttur frá Alftarstekk i
Hraunhreppi á Mýrum. Hann nam við Laug-
arvatnsskólann og siðan Samvinnuskólann
og lauk prófi þaðan 1942, en stundaöi þvi næst
framhaldsnám i verzlunarfræöum vestur i
Bandarikjunum. Pétur Pétursson var skrif-
stofustjóri Landssmiðjunnar i Reykjavik
1947—1956, en i millitið i Viöskiptanefnd um
skeið og verðgæzlustjóri 1951—1952, svo einn
af forstjórum Innflutningsskrifstofunn-
ar 1956—1959, þá forstjóri Innkaupastofn-
unar rikisins 1959—1966 og 1966—1968 fram-
kvæmdastjóri verksmiðjubyggingar Kisiliðj-
unnar i Mývatnssveit, en hefur slöan veriö
forstjóri Alafoss. Hefur hann 'einnig tekiö
þátt i mörgum viðskiptasamningum og fjall-
aö mikið um útflutning á islenzkum afurðum
og innkaup erlendis.
Alþýðuflokknum bættist nokkur liðsauki
áhugasamra ungherja i styrjaldarlok, og
skipaöi Pétur Pétursson sér i þá sveit ný-
kominn heim frá námi. Starfaði hann kapp-
samlega i samtökum ungra jafnaðarmanna
og þótti brátt framgjarn og duglegur. Réðst
hann i framboð i Austur-Húnavatnssýslu 1 al-
þingiskosningunum 1949, og vakti dálitla at-
hygli, aö jafnaðarmönnum hafði fjölgaö þar
úr 38 i 73 á kjörtimabilinu eins og við tilkomu
hans. Reyndi Pétur aftur á sömu slóðum við
næstu kosningar, en stóð þá i stað að kalla.
10 VIKAN 34.TBL.