Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 23.08.1973, Qupperneq 13

Vikan - 23.08.1973, Qupperneq 13
Framhaldssaga eftir Ethel Gordon. S.iotti hluti Ég svitnaöi af ótta, þrátt fyrir kuldann. t sjón- hending sá ég þetta allt fyrir mér, allt sem var svo ógnvekjandi á þessum .stað, — Sanders Hall. Morguninn eftir komu allir saman við jólatréð. Gleði telpnanna var smitandi og það var sem við öll gleymdum hörmungunum eitt andartak, gleymdum, að nú voru aðeins tvö börn, til að gleðja sig yfir jóla- trénu, Maggie og litla barnið. Ég sagði, að allir væru þarna saman- komnir, en það var alls ekki rétt, Ernest var ekki þarna. Ég tók þvi að skyggnast um eftir honum og ég fann, að ég saknaði hans. En það var svo sem ekki við þvi að búast, að hann langaði mikið til að taka þátt i jólagleðinni, þegar Elisabeth var horfin. En Frances var reglulega i essinu sinu. Ég hafði þá óþægi- legu tilfinningu, að hún væri að látast, vegna gamla mannsins, föður sins, það væri aöalatriðið, að honum liði vel. Þegar búið var að opna alla pakkana og við sátum og nutum þess að horfa á telpurnar, meðan við drukkum kaffi, stakk Sam skyndilega höfðinu inn i dyra- gættina og gaf Charles bendingu. Aður en ég hafði tima til að hugsa um, hvert erindi hans væri, var hann kominn aftur inn með körfu i hendinni. Hann settist á hækjur við hliðina á Maggie. — Hélztu kannski, að við Joan frænka hefðum gleymt þér, að jólasveinninn hafi gleymt að koma með gjöfina frá okkur? spurði hann og Maggie kinkaði þegjandi kolli. — Nei, hann gleymdi þvi ekki. Hann komst bara ekki áfram i snjónum fyrr en nú. Hann sagðist vona, að þú værir ekki mjög leið yfir þvi að biða. Hann tók yfir- breiðsluna af körfunni, með mikl- um tilfæringum. Þá heyrðist aumlegt gelt, sem kafnaði i fagnaðarlátum Maggie. Svo varð hún mállaus af gleði. Charles lyfti upp úr körfunni litlum h\ it og brúndeplóttum hvolpi og lagði hann varlega i kjöltu Maggie. — Mamma, sjáöu, hvislaöi hún lágt og hélt hvolpinum varlega upp að brjósti sér. — Joan, en dásamlegt, sagði ég og þrýsti hönd hennar. — Það var Charles, sem átti hugmyndina, sagði hún hógvær- lega. — Hann hélt, að hvolpurinn myndi kannski létta Maggie svo- litið einveruna. Sanders gamli fékk að skoða hvolpinn og hann klappaði honum varlega með sjálfandi höndum. — Hvaö heitir hann? spurði hann, en Maggie skildi hann ekki, svo móðir hennar kom til hjálpar. — Hann er að spyrja hvað hann heiti, sagði hún. — Depill, svaraði Maggie, eins og það hefði verið ákveðið fyrir löngu og að þetta væri eina nafnið, sem gæti komið til greina. Morgunninn leið og það var far- aö snjóa, svo þá var ánægja telpunnar fullkomin. Ég öfundaði Maggie af þvi að skoppa 1 kring- um hvolpinn i snjónum og þetta var i fyrsta sinn, sem ég var þreytt á þunga minum. Það snjóaði án afláts i heila viku og fannfergin var svo mikil, að það var ekki hægt að komast áfram I bfl, nema þar sem snjón- um hafði verið ýtt frá.- Með þvi var loku skotið fyrir gönguferðir minar og mér fannst ég vera að kafna innan dyra. Og þegar það svo bættist við, að kuldinn varð svo mikill, aö við urðum að halda okkur alveg innan dyra, þá hélt ég, að ég myndi brjálast. Að fokum varð það svo þetta veðurlag, sem kom því til leiðar, að Frances og Walter ákváðu að fara suður á bóginn. Charles ók með þau til flugvallarins og við veifuðum, svolengi sem við sáum til þeirra. — Ég er að hugsa um að biðja Charles að fara með þér i bió i kvöld, sagði Joan svolitið siðar. — Kemur ekki til mála, sagði ég. — Nú er laugardagur og þá eigið þið kvöldið saman. Ég læt mig ekki dreyma um að þiggja það boð og taka það frá ykkur. — Hvað er það, sem þú ætlar ekki aö taka frá oljkur? Ég sneri mér við og sá að Charles var kominn aftur. Var klukkan þá orðin svona margt? — Anna þarf að fá einhverja tilbreytingu, sagði Joan, — svo aö ég stakk upp á þvi, að þið færuð saman i bió\ Framhald á bls. 45 34.TBL. VJKAN 13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.