Vikan

Eksemplar

Vikan - 23.08.1973, Side 16

Vikan - 23.08.1973, Side 16
1 Reimleikar í sumarbústað Miðillinn Karin Liljegren er sannfærö um, aö skipulagöar endurbætur á húsinu muni leiöa gömul veröbréf fram í dagsljósiö. Þetta gæti hafa verið dásam- legur og velhirtur sumar- bústaður, með fögru útsýni, hæfi- lega langt frá byggð. En stór tré hylja útsýnið, og húsið er að falli komið. Veggfóðrið er rifið og málningin flögnuð af. Fjalirnar i forstofunni eru ekki ásjálegar, og illgresi yfirgnæfir annan gróður i blómabeðinu. — Við getum ekki búið þarna lengur, segir fjölskyidan, sem á húsið. Þar er allt of mikill draugagangur. Ekkert okkar hefur hingað til verið talið gætt dulrænum hæfileikum eða skyggnigáfu, en flest okkar hafa áháð hvert öðru bæði séð og heyrt svo margt i bústaðnum, að viö getum ekki dvalizt þar. Sumarbústaðurinn var keyptur áriö 1956, og aðeins fáum árum seinna vissi„fjölskyldan, að hún hafði ekki aðeins keypt hús, sem var byggt árið 1913 með útihúsi, jarðhýsi og trjágarði, heldur einnig framliðnar verur, sem gátu birzt jafnt á nóttu sem degi. Elzti sonurinn var þá sextán ára og hafði herbergi á efri hæðinni. Nótt eina kom hann niður til foreldra sinna og bað um að fá að sofa niðri. Hann harð- neitaði að sofa á efri hæðinni, en vildi ekki útskýra nánar hvernig á því stæði. Löngu siðar tókst móður hans að fá hann til að segja sér, hvað hefði gerzt. Hann hafði séð andlit gamallar konu umlukt eins konar ljósi. Honum fannst þetta vera andlit konunnar, sem átti húsið áður. Núverandi eigandi sumar- bústaðarins bendir á, að sonurinn hafi ekki haft minnstu hugmynd um, að þessi kona hafði dáið um veturinn. — Við vildum ekki vekja at- hygli á okkur, segir fjölskyldan, sem kýs að halda nafni sinu leyndu. — En við viljum geta búið i bústaðnum, án þess að þurfa að búast við ónæði þá minnst vonum varir. Barnabörnin hafa orðið hrædd. Tengdadóttirin varð svo hrædd, að hún neitar að dveljast i bústaðnum yfir nótt. Og einu sinni varð húsmóðirin svo hrædd og reið, að hún stappaði i gólfið. HVER DÆLDI VATNINU? Hvernig á að umgangast einn eða fleiri friðlausa anda, sem neita að yfirgefa þann bústað, sem þeir gistu' i lifanda lifi? Og hvers vegna eru þeir þar? Vilja þeir komast i kynni við einhvern? Vilja þeir eitthvað? Oft hefur fjölskyldan velt þessum spurningum fyrir sér, en aldrei fengið svar. En til eru nokkrar manneskjur, sem bæði geta talað við og skilið framliðna anda, sem einhverra hluta vegna eru enn á sveimi á meðal okkar. 1 þeim hópi er miðillinn Karin Liljegren i Vesterás. Hún er rólynd kona og bliðlynd, hefur verið skyggn allt frá bernsku og er vel þekkt meðal sálarrannsóknarmanna fyrir dul- ræna hæfileika sina. Sænskur blaðamaður heimsótti hana á heimili hennar i Vasterás og fékk hana til þess að koma með sér til umrædds sumarbústaðar. Hún hafði ekki fengið neitt að vita um hegðan draugánna, áður en hún kom á staðinn og heldur ekki neinar upplýsingar um þá, sem orðið höfðu fyrir ágangi þeirra. Blaðamanninum segist svo frá: — Ég vil ekki láta neitt hafa áhrif á mig, sagði hún og ræddi um daginn og veginn alla leiðina, þar til við stóðum fyrir utan sumarbústaðinn á hæðinni og dáðumst að frábæru útsýni til 16 VIKAN 34.TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.