Vikan

Útgáva

Vikan - 23.08.1973, Síða 24

Vikan - 23.08.1973, Síða 24
Sunarsaga verksmiðjuna, bæinn og allt, sem i hon- um var. Hann sást sjaldan, vegna þess, að fyrirtæki hans voru dreifð út um allt, en starfseminni i Northbank stjórnaði John nokkur Criley, umboðsmaður hans á staðnum. En stöku sinnum kom Warner þarna norðureftir og hafðist þá við i veiðihúsinu sinu i Efrivik, og veiddi þar dýr og fisk. Og þessi gráhærða kona var systir hans — og nú eiginkona mannsins, sem hafði skotið kúlu gegn um höfuðið á braskara i Leeds, fyrir fimmtán árum. Georg varð ekki svefnsamt þessa nótt. Hann gat ekki sofnað. Hann lá bara og sneri út að svefnherbergis- glugganum og hugsaði um stóra veiði- húsið hans Warners, þar sem morðingi bjó sem eiginmaður rikrar konu. Klukkan hálfátta um morguninn fór Georg að heiman að venju og niður eftir brekkunni, til bráðabirgðaskúrsins, þar sem seinna átti að verða endastöðin á járnbrautinni hans. Joe Hendricks, ungi aðstoðar- maðurinn hans, beið þess að hann legði af stað. Klukkan 7.45 lagði Georg af stað á skjöktvagni upp eftir linunni til vinnu- stöðvarinnar við brautarendann. Skjöktvagninn var kominn á sporið og þegar Georg nálgaðist. dró hann upp hettuna á þykka yfirfrakkanum sinum sem hann var jafnan i. Hvass vindur blés utan af sjónum og gat orðið óþægi- legur fyrir mann, sem fór með fjörutiu milna hraða á klukkustund. En Hendricks hafði óvæntar fregnir að færa. — Hr. Criley var rétt að hringja, sagði hann við Georg. Hann er i skrifstofunni og vill tala við þig. — Æ, hver skrattinn, sagði Georg önugur. En ekki tjóaði að þrjóskast við boðum aðalforstjóra Northbankfélags- ins. — Þú ættir að fara upp eftir linunni Maðurinn hafði hlaupið að hon- um, slegið vasaljósið úr hendi hans og barið hann með byss- unni... og koma öllu af stað fyrir mig. Nú tók hann eftir þvi, að þessi ungi aðstoðar- maður hans var snöggklæddur. — Hérna! Farðu i frakkann minn. Þá sleppurðu við að fara heim til að fá þér eitthvað után yfir þig. John Criley beið eftir Georg i for- stjóraskrifstofunni i aðalbyggingunni. — Fáðu þér sæti sagði hann. Hann var hár, grannur og gráhærður, —- Þú hlýtur að vita, Georg, hvers- koriar fyrirtæki þetta er hjá okkur, og hvernig hann Warner er. Hann þarf að vita allt um alla sem vinna hjá honum. Samstundis vissi Georg upp á hár, á hverju nú var von. En hann varð ekkert hissa, heldur aðeins einbeittur á svipinn þegar Criley bætti við: — Þú hefur ekki verið fullkomlega hreinskilinn við okkur, Georg. Þegar þú varst ráðinn i þessa stöðu, gafstu okkur upp heilmörg æviatriði, en slepptir einu eða tveimur. — Og þið hafið komizt að þeim, eða hvað? Snöggi tónninn hjá Georg kom Criley i hálfgerð vandræði. — Sjáðu nú til, Georg. Ég er ekki að segja að Warner hafi á réttu að standa, heldur bara að benda þér á, hverskonar maður hann er. Ef hann kemst að þvi, að einhver hefur verið að leyna hann einhverju, rekur hann hann, i niu tilfell- um af tiu. — Og ætlar þú að fljúga suður til þess að gefa skýrslu um mig? Segja Warner, að ég hafi verið viðriðinn morðmál? Er það ætlunin?

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.