Vikan

Eksemplar

Vikan - 23.08.1973, Side 31

Vikan - 23.08.1973, Side 31
ar áfram að drepa fólk og sloppið með það? Þér hljótið að vera bandbrjálaður! Báturinn hafði gengið á mikilli ferð, en eftir nokkra stund kom einhver kippur i hann og skrúfan hætti að snúast. Georg vissi, að nú voru þau komin langt út á breiðu vikina. Surtees leit á úrið sitt og tók siðan að bogra við vélina. Hann virtist vera að taka eldsneytisrörið úr sambandi, þvi að nú barst bensinþefur inn i káetuna. Hann var hreyfingarlaus eitt andartak og horfði á rennslið. En svo setti hann rörið i samband aftur. Hann sat á vélar- húsinu með riffilinn i hendi, og nú fyrst horfði hann inn i káetuna. — Ég vorkenni yður, sagði hann, með þessum skrýtna málrómi sinum. — Til- viljunin stefndi okkur saman á einn stað. Eftir fimmtán ár. Mér þykir fyrir þvi, að þér skylduð þurfa að koma hingað. Þögnin þarna i vikinni og f jöllunum i kring lagðist yfir bátinn. Surtees hélt áfram: — Ég held ég hafi nú alltaf verið hræddur um að rekast á yður. Þér voruð óheppinn frá fyrstu byrjun, hr. Young. Þér rákust á mig þarna I Leeds. Og nú hafið þér rekizt á mig aftur. Og það var eins og hver önnUr óheppni, þvi að þessi ómerkilega rotta, sem drapst i Leeds, var of ómerkilég til þess að koma nokkrum manni i vandræði. — Þér náist og verðið hengdur, sagði Georg. — Aldrei! sagði Surtees einbeittur. — Bráðum verður eldsneytið hérna búið. Ég skal þá fara i land i jullunni og ná i meira eins og góðum gestgjafa sæmir. Það sem á meðan kann að gerast er ekki á minni ábyrgð. Og þið verðið aldrei til frásagnar um það. Surtees stóð upp og horfði frameftir. Georg fann, að bátinn rak jafnt og þétt. Og nú var útfall, datt honum allt i einu i hug. Fingurnir á honum stirðnuðu. Surtees hafði aftur lotið fram. — Færið ykkur fremst i káetuna, skipaði hann. Georg þreif eftir hendinni, sem hélt á rifflinum. Handleggurinn kipptist til, en skotið hljóp ekki úr byssunni. Sár verk- ur fór um allt höfuðið á Georg þegar hlaupið skall á nefinu á honum. Hann dattyfir þvera káetuna og lenti á Mary. — Ég ætla ekki að skjóta yður, sagði Surtees kuldalega. Ef likið af yður

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.