Vikan

Tölublað

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 32

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 32
Sumarsaga finnst vil ég ekki hafa nein skotsár á þvi. Þér skiljið, Young að nú vorkenni ég yður ekkert lengur. Aðeins konunni yðar. Hálfblindaður fann Georg, að Mary var að þreifa á andlitinu á honum og um leið var hurðinni skellt i og slag- brandurinn rekinn fyrir að utan. Nú sátu þau Mary i niðamyrkri. — Georg! hvislaði hún. — Georg! Hann þurrkaði blóðið af nefinu á sér með vasaklút. — Það er allt i lagi með mig, tautaði hann. Hann gat aðeins heyrt einhverja hreyfingu á Surtees úti á þilfarinu, og að hann var að færa eitt- hvað til. En svo heyrðist eitthvert hljóð undir gólffjölunum. Vélin hóstaði eitt- hvað og fór siðan i gang. Hún var látin ganga hægt og hægt. — Hvað gerir hann við okkur? hvislaði Mary. — Það er að falla út, tautaði hann. — Ég býst við, að hann komi okkur út i strauminn á þessu litla eldneyti, sem eftir er og yfirgefi okkur siðan. Þá hrekjumst við inn i gilið og báturinn brotnar i spón. Og hann hefur tryggt sér það, að jafnvel þó að við komust út héðan, þá höfum við ekki nóg eldsneyti til að bjarga okkur. Og enginn getur synt móti sjávarföllunum hérna. Georg reis upp til hálfs og athugaði þakið á káetunni. Það var engin lúga og engin útgönguleið. Hann skreið aftur til Mary. — Ef við reynum nú að brjótast út, hvislaði hann, þá skýtur hann á okkur. Hann er neyddur til þess. En áður en við erum komin alla leið út i strauminn verður hann að yfirgefa okkur og koma vélinni i jullunni i gang, áður en það er orðið um seinan fyrir hann. Við biðum þangað til við heyrum i vélinni hjá honum. Þá reyni ég að brjóta upp hurðina. Væruð þér járnbrautarmaður, munduð þér vita, að þetta slys var engin tilviljun. En ég get ekki sannað það, eða hvað? Hann fann, að hann talaði dræmt og hvislið, sem kom af vörum hans var eins og samhengislaust, rétt eins og ein- hver þriðja persóna væri þarna i myrkrinu, sem væri að tala. Varir hans voru þurrar og þegar hann reyndi að væta þær, átti hann ekkert munnvatn til. Úti fyrir malaði vélin i sifellu. Georg fannst eins og hljóðið kæmi langt að og hann færði sig aftur eftir þangað til kinnin á honum næstum snerti læsta hurðina. Minúturnar hlutu að liða fljótt, hugsaði hann með gremju. Þau höfðu verið i miðri vikinni, þegar Surtees lokaði þau inni. Þau urðu að fara næst- um milu til vesturs áður en vikin tæki að mjókka og straumurinn harðnaði. Hann vissi, að það var sama sem að þau bæri inn i gilið á fjöru. Þegar verið var að reisa járnbrautabrúna, hafði hann oft horft hrifinn á ofsalegt vatnið renna inn i gilið og yfir stóru steinana. Ef þau lentu i þessum ofsalega straumi, gat ekkert nema kraftaverk forðað þeim frá bráðum bana. — Mary, hvislaði Georg. Hann skreið þangað sem hún átti að sitja. — Mary! endurtók hann og þreifaði eftir henni. Hann gat ekki fundið hana. Ofsa- hræddur tók hann að fálma um allt, en þá skynjaði hann óljóst, að Mary hafði runnið út af bekknum og hún lá kylliflöt með höfuðið á gólfinu. Hann lagði and-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.