Vikan - 23.08.1973, Page 35
ar
Ég vorkenni yður. Tilviljunin
stefndi okkur saman á einn
stað, eftir fimmtán ár. Mér
þykir fyrir þvi, að þér skylduð
koma hingað...
hópinn maður i einkennisbúningi — það
var undirforinginn, sem var fyrir
riddaralögregluflokknum i Northbank.
— Surtees .... ætlaði að fara að segja.
— Wilson liðþjálfi er i veiðihúsinu,
greip einhver fram i.
— Hapn biður þar eftir Surtees. En
nú er betra, að við komum okkur inn i
bæinn, áður en við tölum meira um
þetta.
Þegar mennirnir voru að hjálpa
Georg og Mary upp á klettinn varð hon-
um litið niður i gilið. Hann sá, að bátur-
inn skall á klettunum i tvö hundruð feta
fjarlægð og brotnaði i spón.
1 nýju storurmi i nýja heimilinu i
Northbank, . gæddi Mary Wilson
liðþjálfa ákaffi þegar hann kom til þess
að taka af þeim itarlega skýrslu.
— Þið hafið lagt til nægar sannanir
gegn Surtees, sagði Wilson. í fljótu
bragði get ég varla hugsað mér erfiðari
aðferð til þess. En kannski sýnir það sig
, að hafa verið eina leiðin til þess. Hann
' getur ekki sloppið við kæru fyrir morð-
f tilraun við ykkur hjónin. Við öfum
bjargað nógu miklu af bátnum til þess
að sanna, að gasinu var veitt inn i
káetuna. Jafnvel sú viðbára Surtees, að
þið hafið orðið bensinlaus og hann hafi
farið i land að sækja bensin er einskis
virði, þvi að frú Surtees ber það fram,
að hún hafi fyllt geyminn af bensini,
snemma i gærmorgun, meðan maður-
inn henar var að heiman — og þá auð-
vitað að aflaga skiptinguna á járn-
brautarlinunni.
— Hvernig tekur frúin þessu? spurði
Georg.
' — Eins og sannur Warner, sagði
Wilson. — Hún fer ekki að úthella nein-
um tárum — að minnsta kosti ekki á al-
mannafæri. Hún er slungin viðskipta-
kona, en bjáni þegar karlmaður er
annarsvegar. Surtees var búinn að ná
góðu taki á auðæfunum hennar. Hver
veit nema ekki hefði einhverntima
getað orðið annað ,,slys”.
Það fór hrollur um Mary.
— Hvernig vissuð þér og verka-
mennirnir, hvað okkur leið úti i vikinni?
spurði Georg.
— Við vissum ekkert um það til að
byrja með, svaraði Wilson. — En ég
hafði farið upp eftir linunni til þess að
rannsaka þetta svokallaða slys hans
Hendricks. Og svo vill til, að hann er að
hressast á spitalanum. Það sást til yðar
i jeppa á leið út i vikina og þá var ekki
um annan ákvörðunarstað að ræða en
veiðihúsið. En áður en ég kæmist þang-
að var báturinn farinn út á vikina, en
um sama leyti sást til hans frá braut-
inni. Mennirnir sáu Surtees yfirgefa
bátinn og vissu, að ekki gat farið
nema á einn veg fyrir yfirgefnum báti á
útfallinu En þá sáu þeir yður um borð
og flýttu sér að láta hendur standa fram
iír ermum....Jæja, ég þakka fýrir
kaffið. Áður en þessu lýkur, kunnið þið
að fá ókeypis ferð til Englands — til
Leeds i siðbúin réttarhöld út af morði.
— Svarti Prinsinn, heyrði Georg konu
sina hvisla.
— En leyfið mér að klára brautina
mina fyrst, sagði Georg.
i