Vikan

Tölublað

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 36

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 36
Þeir félagar, Emerson, Lake og Palmer, hafa gert nokkuð vlðreist á síðari hluta ársins 1972 og fyrri hluta 1973. Má segja, að þeir hafi sótt heim flest höfuðból Evrópu á þessum tima. Hljóðritanir hafa verið gerðar á flestum hljómleik- um þeirra á þessu timabili og stendur nú yfir könnun á þvi efni og hvort hægt verður að nota eitt- hvað af þvi á væntanlegar L.P. plötu hljómsveitarinnar. En hvað um það, eftirfarandi bútar úr við- tali viðKeith Emerson, eru teknir úr erlendu timariti og gefur við- talið nokkra mynda af samstarfi þeirra þremenninga, samstarf sem geir ELP að veruleika. „Við höfum þegar ákveðið að sækja ekki ellilaunin okkar i nafni þessarar hljómsveitar”, sagði Keith. „Ennfremur erum við staðráðnir i, að gefa ekki hvor öðrum gullúr, þegar við verðum sextugir. Hitt er svo annað mál, hversu lengi samstarfið endist. Við tökum alltaf hvert verkefni fyrir óháð öðrum. Eins og er, er það aðeins næsta L.P. plata, sem máli skiptir. Ég hef enga trú á þvi, að maður eigi að binda sig við eitthvað ákveðið alla sina æ.vi. Ef maður gerir það, finnst manni fyrir rest, að maður komist hvergi, geti sig hvergi hrært. Þegar maður hefur slikt á til- finningunni, þá fer\ maður að hugsa sér til hreyfings, — fer að huga að leið út.” Það er sem sagt allt I góðu lagi hjá þeim félögum eins og er og fleiri, væntanlega góðar plötur á Jeiðinni. ELP hafa gert dálitið af þvi, að yfirsetja verk annarra i sinn eigin stil. Bezta dæmi um það, var L.P. platan, Pictures at an Exhibition, þar sem Emerson útfærði verk eins af stærri eldri tónskáldum Rússa, Mussorgsky, með mjög góðum árangri. Hins vegar er þess víyt að vænta, að slikt gerist aftur.' Á þvi hefur Emerson sina skýringu. ,,Nú hef ég fengið mun meira sjálfstraust, en.ég hafði áður. Ég trúi orðið á ■verk mins sjálfs og það skiptir mestu máli. Það er þó ekki meint þannig, að ég hafi ekki haft trú á þvi, sem ég skrifaði með hljóm- sveitinni Nice, heldur er eins og ég skynji tónlistina öðru visi núna. Ég kemst einhvern veginn yfir meira, ég hef stærra svið”. En hvernig er hinu eiginlega samstarfi háttað innan hljóm- sveitarinnar.? Hver gerir hvað? Hverskrifar textana og hver tón- listina? „Það hefur töluvert að segja,” heldur Emerson áfram, „að allir þrir hafi sameiginlega ábyrgðar- tilfinningu gagnvart lóka- árangrinum. Við höfum allir þrir stóru hlutverki að gegna. Ef hver og einn gerir ekki eins og hann getur, náum við aldrei langt. Hvað okkur sjálfa varðar, þá Framhald' á bls. 42 36 VIKAN 34. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.