Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 23.08.1973, Qupperneq 37

Vikan - 23.08.1973, Qupperneq 37
Pete De Poe Ian Anderson Pat Vegas Tony Bellamy (redbone) Lolly Vegas REDBONE Redbone kalla þeir sig, þessir fj'órir índiánaættuöu Bandarikja- menn. Þeir eru ekki algjörlega óþekktir hérna upp á Islandi, þvi áriö 1971 varö eitt gott lag nokkuö þekkt meö þeim hérna heima. Þaö hét The Witch Queen Of New Orleans, ef einhver skildi muna svo langt. Annaö lag fylgdi fast á eftir, en varö ekki eins þekkt hér- lendis, en þaö var Maggie. Siðan þá hefur veriö nokkuö hljótt um þessa kraftalegu Indiána. Þó komust þeir. á vinsældalista i Eprópu á siðaáta ári með lagið Fais-Do og fylgdu þvi eftir með L.P. plötu, sem fékk heitið Already Here. Liklega hefur enginn hér upp á tslandi heyrt þá plötu, en hún er talin vera nokkuö góö. Þessir f jórir Indiánar koma frá vesturströnd Bandarikjanna eða Kaliforniu. Sagan hermir, að þeim hafi öllum leiözt vinna mjög svo mikiö, aö gamaila Indiána sið. En nútlma þjóðfélag er allt meira og minna háð þeim ósköpum, sem peningar nefnast. Þeir félagar urðu að finna ráö við þvi og þaö var aö hef ja hljóðfæra- leik. Spila músik og láta sér liða, þaö var eitthvað fyrir af- komendur Indiánanna. Meöan dagar hljómsveitanna voru erfiðir, unnu þeir sem session hljóöfæraleikarar hjá ýmsum stórstjörnum. Má þar á meöal nefna Elvis Presley, Everly Brothers, Bobbie Gentry og Sly & The Family Stone. í samstarfi meö þessum mönnum læröu þeir nokkuö, sem siðar varö þeim að gagni. Þeir uppgötvuöu einnig, aö þeir gátu samið lög. Hófu þeir þá að semja af krafti og meðal söngvara, sem sungið hafa lögin þeirra inn á plötu, eru Aretha Franklin og Bobbie Gentry. En þar kom, aö ákveöiö var að gera hljómsveitina Redbone að veru- leika. Var þá tekið til viö æfingar og æft 12 tima á dag, þar til þeir töldu tónlistina og hljómsveitina orðna nógu góöa. Þá fóru þeir aö spila. Það var árið 1969. Lolly Vegas er forsprekki hljómsveitarinnar. Hann leikur á sólógitar og þykir einnig vera ágætur söngvari og liðtækur kompónisti. Bróðir' hans, Pat Vegas, leikur á bassa og semur einnig. Tony Beelamy leikur á rythmagitar og hann er jafnframt kynntur sem trúður hljóm- sveitarinnar. Af myndum má ráða hvers vegna. Pete DePoe, afkomandi Cheyenne-indlána, er t r o m m u 1 e i k a r i hljóm- sveitarinnar. Hann er talinn eiga mestan þátt i að skapa „sound” hljómsveitarinnar. Myndirnar, sem hér fylgja,, sýna þessa fjórmenninga i fullu fjöri. HRAÐFERÐ... T. REX lögöu fyrir nokkru upp i aöra Amerikuferö sina. 1 þetta skipti mun Marc Bolan og T. Rex ferðast rúmlega 40.000 km leið og heimsækja fjölmargar borgir. Nýr gitarleikari er meö hljóm- sveitinni, Jack Green aö nafni, en hann kemur frá Glasgow. Hljóm- sveitin Three Dog Night mun veröa aukanúmer á hljómleikun- um. Nýjasta plata T. Rex, The Groover, er þegar komin út. JETHRO TULL hafa sent frá sér nýja L.P. plötu, nýtt verk, Passion Play. Hefur þetta verk ekki hlotið þær móttökur gagn- rýnenda i Englandi, sem Ian Andérson og þeir félagar i Jethro Tull, hafa vonazt eftir. M.a. sagöi einn gagnrýnandinn, að ef þetta (Passion Play) væri árjngurinn af 10 ára þróun, 10 ára þrotlausu starfi, þá væri timi til kominn til aö snýa til baka, þvi allt það, sem á undctn væri gengið, stæöi þessu verki framar. Þegar hlustaö er á þetta verk, fer ekki á milli mála, aö I.þaö hefur verið tögö gifurleg vinna, útsetningar og hljóðfæra- leikur er margflókinn og ekki fyrir hvaöa aula sem er, aö leika eftir. En sama hversu oft verkiö er leikiö, þá kemur aldrei þessi toppur, sem leitaö er eftir i öllum verkum sem þessum. Verkiö byrjar á rólegum gitarleik, byrjar I öldudal, en nær þvi miöur aldrei öldutoppnum. Þrátt fyrir frábæran hljóðfæraleik, er Passion Play, verk tómleikans. EMERSON LAKE OG PALMER hafa nýlokið viö hljóð- ritun á nýrri L.P. plötu. óvist er um útgáfudag plötunnar og nafn hennar, en meðal verka á henni er eitt, sem tekur um 20 minútur. RICK GRECH sendir frá sér sina fyrstu sóló L.P. plötu á hausti komanda. Platan hefur hlotiö heitið The Last Five Years. Lögin eru byggð á verkum hans meö þeim hljómsveitum, sem hann hefur starfaö ipeö s.l. fimm ár, en þær eru: Family, Blind Faith, Airforce og Traffic. 34. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.