Vikan

Útgáva

Vikan - 23.08.1973, Síða 40

Vikan - 23.08.1973, Síða 40
Við höfum hvorki stríð né frið. Framhald af bls. 15 ferð á hendurtil fjölskyldu sinnar, faðma að sér eigin- konu sína og soninn, sem hann hafði aldrei séð nema á mynd. — Ég held að það sé mesti gleðidagur lífs míns, segir hann og Ijómar allur. Sonurinn, sem hafði heyrt margar sögur af föð- ur sínum, var líka hamingjusamur. Svo að ekki sé talað um foreldr- ana, frændurna og frænkurnar. Ættartengslin eru mjög sterk meðal Víet- nama. Thao og Quang settust að í Saigon. Hann hélt áfram að starfa í bankanum og fyrir einu og hálfu ári fékk hann bankastjórastarfið þar. Þau eignuðust tvö börn til viðbótar, dótturina Anh, sem nú er 17 ára, og soninn Tuan, sem er 16 ára.Framtíðin virtist björt. Tekjurnar voru góðar og börnin döfnuðu vel. Vissulega var ástandið óöruggt í landinu, en það snerti þau aldrei beinlínis illa. ( átökunum vorið 1968 fórust margir vinir þeirra og enn fleiri misstu heimili sitt. Þau höfðu nýlega flutt úr húsi, sem þau áttu í úr- hverfi og inn í miðborgina. Víetcongliðar* tóku gamla húsið. Þeir stálu engu, en þegar þeir voru hraktir þaðan urðu miklar skemmdir á húsinu. Engar bætur eru greiddar, þó slíkt komi fyrir og trygginga- félög eru óf ús til að tryggja gegn tjóni af völdum styrj- alda. Quang segir frá hvernig þau vöknuðu við skothríð- ina á næturnar. Skólum var lokað og mörgum öðrum stofnunum. Meðal þeirra var bankinn, en þó varð Quang að fara þangað á hverjum degi. Matvæla- skorturvarog miklarverð- hækkanir. Dangf jölskyldan hýsti yfir tuttugu ættingja sem ýmist höfðu misst heimili sín, eða þorðu ekki að vera í úthverfunum, þar sem þeir bjuggu. Varnar- byrgi voru engin og mikill ótti gerði vart við sig meðal fólksins. Sú spurning hlýtur að vakna, hvort ástandið hafi batnað, síðan friður komst á. — Lífið hefur ekki færst í eðlilegt horf. Við erum óörugg og rugluð. Hér ríkir hvorki friður né stríð. Stríðið hefur klofið ætt- ina. Quant átti 14 frænkur og frændur í einni fjölskyldu í Hanoi. Sjö þeirra eru komin til Saigon ásamt móður sinni, sem er 78 ára. Hin systkinin urðu eftir hjá föður sínum í Hanoi. Einn sonanna hefur verið í fangabúðum í tvö ár. Faðir Thao lét lífið í fangelsi, sem hann hafði setið í i þrjú ár. Þó ekki af slæmri meðferð, heldur vegna skorts á læknishjálp, þegar hann veiktist. Foreldrar Quangs eru komnir til Saigon og búa þar hjá dóttur sinni. Hann talar um þá af mikilli ástúð. — Þau reyna á engan hátt að stjórna okku, en við ráðfærum okkur oft við þau. Víetnamskt máltæki seg- ir, aðeinsog fiskur úldni án salts svo fordjarfist og óhlýðið barn. Quang og Thao ólust upp við skilyrðislausa hlýðni. Ætli þau fylgi sömu reglu við uppeldi barna sinna? — Ég ræði allar ákvarð- anir við börnin og þau ráðfæra sig alltaf við mig. Konan mín er etrang- ari og íhaldssamari. Henni finnst ég oft vera of eftirgefanlegur. Hún vill heldur ekki ræða kynferð- ismál við börnin, en það geri ég opinskátt. Ég er að mörgu leyti vesturlenzkari í háttum en hér gerist og gengur. Dangfjölskyldan býr við Hrúts merkit 21. marz — 20. april Ef þú ætlar þél að ljúka fyrirfram ákveðnu verki i þessari viku, skaltu varast að láta aðra hafa neikvæð áhrif á þig. Undir lok vikunn- ar færðu skemmtilega heimsókn og helgin mun verða ánægjuleg. Nauts- merkið 21. aprii — 21. mai Að einhverju leyti kann þér að þykja vikan erfið, að minnsta kosti fyrri hluti hennar. En sennilega er það bara, aö verkefni þin vaxa þér um of i augum. Þú ættir að haga oröum þinum gætilega, Tvibura- merkiö 22. mai — 21. júnl Þetta verður góð vika, að flestu leyti. Laugardagur mun verða þér til mikillar gleði, og þú munt verða innan um fjölda fólks, þar af margt, sem þú hefur þekkt frá fornu fari. Einhver leitar til þin með vandamál sin. Krahba- merkiö 22. júni — 23. júll Hversdagslegir at- buröir i vikunni verða þér til gleöi, og skapiö mun haldast gott mestan hluta vikunnar. Fréttir, sem þú færö, munu koma heim og saman við áætlanir þinar. Þetta verður ekki vika stórra framkvæmda. Ljóns merkiö 24. ágúst — 23. sept. Þú ættir ekki að taka illa upp, þó að einhver vilji ráðleggja þér eöa hjálpa. Þér mun i fyrstu virðast slikt ástæöulaust og telur þig færan i flestan sjó, en eftir nánari yfir- vegun kemst þú að raun um, að þér sé fyrir beztu að þiggja boöna aöstoð. Meyjar merkiö 24. júll — 24. ágúst Þetta verður sérdeilis góð vika fyrir alla þá, sem standa i fram- kvæmdum. Þú hefur áhuga á öllu, sem þú tekur þér fyrir hendur, svo mikinn, aö það mun vekja eftirtekt vina og vinnufélaga. 40 VIKAN 34.TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.