Vikan - 23.08.1973, Side 41
mjög nýtízkulega götu,
bak við járnhlið, sem alltaf
er læst. Húsið sést ekki frá
götunni. í kringum það er
snotur garður og öllu er
mjög vel við haldið. Innan
við setustofuna og borð-
stofuna eru svefnherbergi
fjölskyldunnar og nokkur
herbergi fyrir þjónustu-
fólkið. Inni er hálfrökkur,
því að fólk er nauðbeygt til
að loka sólina úti vegna
hitans. Húsgögnin eru úr
vönduðum viði og skraut-
munir frábærlega
smekklega valdir.
Do Dang Quang er vel
efnaður. Mánaðarlaun
hans nema nær 70 þúsund
krónum.auk ýmissa hlunn-
inda. Þessi laun eru meðal
þeirra hæstu sem unnt er að
fá í Víetnam og það eru
aðeins fáeinir útvaldir sem
eiga möguleika á svona
háum tekjum.
Venjulegir bankaþjónar
fá 5500 kronur í byrjunar-
laun og geta hæst fengið
8500. Þeir fá þriggja vikna
sumarfrí, tvöföld laun fyrir
yfirvinnu, ókeypis læknis-
þjónustu og fyrirtækið
greiðir fyrir lyf, sem þeir
þurfa að nota. Þeir halda
fullum launum í þrjá
mánuði, þó að þeir veikist.
Einaritari Quang fær 11300
krónur á mánuði og er því
með hæst launuðu starfs-
mönnum bankans.
Auk bankasfjórastarfsins
rekur Quang inn- og
útf lutningsfyrirtæki og
kennir hagfræði við
búddiska háskólann. «
Af þessum tekjum er
hægt að lifa þægilegu lífi.
Tvær hvítar Renault-
bifreiðir standa í bílskúrn-
um. Quang á hesta, sem
hann skemmtir sér við í
frístundum. Hann spilar
líka golf og tennis og hann
grípur í það að mála.
— En ég mála ekki fall-
egarmyndir. Ég mála bara
að gamni mínu. Tuan er
miklu meiri listamaður en
ég.
Thao hefur ekki hafið
störf á barnaheimili í
Saigon, en hún vinnur
mikið að líkarmálum. Það
veitir sannarlega ekki af
fórnfúsum höndum í
Saigon, þar sem svo margir
eru illa farnir eftir stríð
Thao leggur sitt starf ein-
göngu fram af góð-
mennsku, en ekki til þess
að láta bera á því hvað hun
er fín frú. Heima fyrir þarf
hún líka að hugsa um May.
May er sjö ára dóttir
matreiðslukonu, sem vann
hjá Quang og Thao, en
móðir hennar gat ekki séð
fyrir henni svo þau hjónin
tóku hana að sér. Við fæð-
ingu vóg May aðeins 8
merkur og Thao hefur frá
því fyrsta hugsað um hana
sem sitt eigið barn. 8 merk-
ur eru ósköp venjuleg
þyngd nýfæddra barna í
Víetnam. Þar kemur skýrt
fram hvað Víenamar eru
smávaxnir.
Tuan og Anh ganga í
franska skólann. Tuan er
dæmigerður táningur og
draumur hans er að eignast
SAMVINNUTRYGGINGAR
Ármúla 3 - simi 38500
Oæmi um iðajöM:
örorkubætur Kr. 1.
er iögjald Kr. 550 - meö soluskatti og stimpilgjaldi.
Miöaö viö 14 daga feröalag og dánar-og
000.000.-, dagpeningar á viku Kr. 5.000.-,
Farið ekki ótryggð i ferðalagið.
Tryg'gið yöur og farangur yðar hjá Aðalskrifstofunni eða næsta umboói.
Feröatryggingar okkar eru ódýrar og viötaekar. Þær greiöa bætur
viö dauða af slysförum og vegna varanlegrar örorku. Einnig dag -
peninga, þegar hinn tryggði veröur óvinnufær vegna slyss.
Gegn vægu aukagjaldi greióir tryggingin einnig sjúkra
kostnaó, sem sjúkrasamlag greiðir ekki.
skellinöðru. Anh er að taka
stúdentspróf um þessar
mundir. Þau tala bæði
frönsku reiprennandi og
eru auk þess vel að sér i
ensku. Anh býr yfir tón-
listarhæfileikum og hefur
lært að spila píanó. En
foreldrarnir vilja ekki, að
hún leggi tónlistina fyrir
sig.
— Við verðum að vera
Vogar-
merkið
24. sept. —
23. okt.
Þér hættir til a6 vera
um of léttúðugur og
slá jafnvel alvar-
legustu málum upp i
grin. Aö öllum
likindum mun smá
kæruleysi ekki koma
aö sök innan skyn-
samlegs ramma.
Dreka-
merkiö
24. okt. —
23. nóv.
Vegna aukinna
fristunda þinna færöu
tima og tækifæri til aö
taka þér ferö á
hendur. Vera má, aö
ferðin veröi nokkuö
dýr miöað við þinn
mæiikvaröa. en þú
munt bera oskerta
ánægju úr býtum.
Sunnudagurinn veröur
dagur vikunnar
Bogmanns-
merkiö
23. nóv. —
21. des.
Vinir og vandamenn
eru orðnir dálitiö
kviönir vegna þin. Þú
ættir sennilega að
segja þeim frá þvi,
sem vakir fyrir þér og
veldur þér áhyggjum.
22. des. —
20. jan.
Framkvæmdasemi
þin og frumkvæöi
munu koma aö gööum
notum, þvi tilhneiging
er hjá samstarfs-
mönnum þinum aö
koma verkunum yfir á
Vatnsbera-
merkiö
21. jan. —
19. febr.
Anægjulegir dagar
eru á næsta leyti. Þú
lætur það eftir sjálfum
þér aö fá þér hlut, sem
þig hefur lengið
langaö til aö eignast.
Fjármálin standa
alveg prýöilega þessa
dagana og litlu aö
kviöa. Um helgina
verður þú meðal fólks,
og skemmtir þér vel.
Fiska-
merkiö
20..febr. —
20. marz
Þú ert að fikra þig
áfram meö eitthvaö
nýtt, sem þú bindur
nokkrar vonir viö.
Best er samt aö fara
aö öllu með gát, þvi
stpá mistök geta oröiö
dýrkeypt. Vertu
passasamur á fé og
varkár.
34. TBL. VIKAN 41