Vikan

Eksemplar

Vikan - 23.08.1973, Side 45

Vikan - 23.08.1973, Side 45
ekki minnstu hugmynd um, hvað hafði komið fyrir Dagmar. Hún ætti reyndar að fara heim að húsinu aftur og athuga, hvort hún væri ekki komin heim. En til- hugsunin um að fara heim að húsinu, var heldur ógeðfelld. Henni fannst sem einhver ósýni- leg hætta leyndist þar í hverjum krók i mannlausum herbergjun- um og eyðilegum trjágarðinum. Þetta var auðvitað frámuna- lega asnalegt. Cilla tók sjálfa sig taki, dró að sér reykinn úr siga- rettunni. Það var ljóst, að það var heimskulegt að láta sér detta annað eins og þetta i hug, um hábjartan dumardaginn. Það var sennilega einhver augljós skýring á fjarveru Dagmar, eitthvað, sem henni gat ekki dottið i hug þessa stundina. Eftir stundarkorn myndi hún eflaust hlæja að þess- um imyndunum sinum. En hún gat samt ekki róað sig. Hræðslan vari undirvitundinni og hún jókst stöðugt. Það var eitt- hvað óhugananlegt við .etta, Dag- mar gat ekki horfið svona og sízt af öllu áttunda júni. Cilla hallaði sér fram, til að drepa i sigarettunni, en hönd hennar skalf svo að hún missti öskuna i sætið. Hún myndi aldrei þora, að fara ein heim að þessu manniausa húsi. Framh. i næsta blaði. Þeir voru að segja. . . . sumar. Hann var aflakóngur 1967 og það ár setti Mai heimsmet i' sölu i Þýzkalandi þegar hann seldi fyrir 360 þúsund mörk. Aður en hann tók við Mai var hann skipstjóri á Júni II. og er nú skip- stjóri á flaggskipi Hafnfirðinga Júni III. Halldór var mjög ángæður með skipið eftir fyrstu för þess. — Er ekki miklu þægilegra að vera skipstjóri á skuttogara en siðutogara? — Þetta er náttúrlega allt betra, skutdrátturinn mikið betri og allt önnur vinnuaðstaða fyrir mannskapinn. En hér sé ég aldrei fiskinn, hann fer strax undir dekk, og maður sér mannskapinn bara, þegar verið er að taka það eða láta það fara, eða þegar verið er að vinna við net. — Er ekki stressandi að vera skipstjóri? — Jú, það er töluvert stress og langur vinnudagur. Ég stend oft 16—18 tima. — Hvernig heldur þú að gangi að manna flotann eftir tilkomu skuttogaranna? — Ég held að það verði auðvelt að manna skipin. Það er að visu meira um unga menn á togurum sem verður að þjálfa upp. Annars er endurnýjun togaraflotans of ör. Þegar búið er að fá þessi skip, sem nú er verið að tala um, er flotinn nógu stór og hætta er á að við fylgjumst ekki með: að við stöðnum. — Voruð þið lengi að komast upp á lagið með skutdráttinn? — Nei, það gekk eins og i sögu. — Ég fór túra með færeyskum skuttogara, Sjuraberg, og með Karlsefni til að kynna mér þetta. — Er ekki hætta á, þegar tog- ararnir eru orðnir svona full- komnir, að sjarmin fari af sjó- mennskunni? — Nei, það er enginn hætta á þvi. BROTTFÖR I VEÐURBLIÐU Upp úr kl. 10 á laugardagskvöld ,,var haldið til hafs á ný”. Rúm- um hálftima áður var fólk farið að safnast saman á bryggjunni. Veðrið var eins og það gerist bezt, sól, logn og hiti. Leigubilar streymdu að með áhöfnina og fylgdarlið. Nokkrir voru kenndir og þá aðallega fylgdarliðið. Setn- ingar eins og „Elsku vinur” og „Helvitis fiflið þitt” heyrðust og það var hetjubragur á nokkrum, enda eru þeir i plássi hjá Halldóri Halldórssyni, og það fær ekki hver sem er. Ægir undirbjó fyrsta kaffi túrs- ins, Sófus og Pétur voru að gera sig klára fyrir vaktina og Halldór kominn upp I brú. Þegar allir voru komnir um borð birtist Halldór úti á brúar- væng og kallaði: „Sleppa” — og þar með var önnur veiðiferð Júni hafin. Hættulegt afdrep Framhald af bls. 13 — Það er ekki svo galið, sagði Charles, — en við náum þvi að fá okkur nokkra slagi i spilum áður. — Þið eigið allt kvöldið, sagði ég ákveðin. — Það getur verið, að einhver, til dæmis Sam, ætli til Bright River i kvöld og þá get ég fengið að sitja i hjá honúm. Svo get ég tekið leigubil heim. — Þá sting ég upp á öðru betra, sagöi Charles. — Ég skal spyrja Ernest, hvort hann ætli ekki til bæjarins. Það kemur stundum fyrir, að hann fer til bæjarins og fær sér glas á Canucks Bar og þá getur þú komizt með honum bæði fram og aftur. — Nei, það er ómögulegt. Góði vertu ekki að spyrja hann að þvi. Ég get vel séð um mig sjálf, sagði ég og ég heyrði vel, hve bjánalega þetta hljómaði. Joan leit undrandi á mig. — Ertu hrædd við Erhest? spurði hún. — Þvi skyldi ég vera hrædd við hann, sagði ég og reyndi að láta sem ekkert væri. — Ég vil bara ekki koma honum i þá klemmu, að þurfa kannski að svara þessu játandi. Mér finnst ég verði alltaf svo kjánaleg i nærveru hans. — Það getur verið, að þú minnir hann eitthvað á Söru, sagði Charles hugsandi, en Joan kallaði til þeirra. — Komið hingað, svo ég heyri, hvað þið eruð að segja og við færðum okkur til hennar. Charles endur- tók það sem hann hafði sagt við mig og bætti svo við: — Það gæti verið þessvegna, sem hann hefir andúð á Anne, ef það er rétt, sem hún segir. — Eins og Anne sé nokkuð lik Söru, sagði Joan. — Nei, ég held þú minnir hann kannski á Söru, vegna rauðu kápunnar. En hann hafði haft á mér andúð, löngu áður en ég fékk rauðu kápuna, hugsaði ég. Ég neyddist til að vera i rauðu DINNI & PINNI 34. TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.