Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 45
bandarisk ungmenni hafa hvað
minnstan áhuga á i dag, — ind-
verska tónlist og jass.
Allt, sem viðkemur þessum
hljómíeikum, ber þess merki, að
það er George Harrison, sem er
að reyna að fá almenna viður-
kenningu á sjálfum sér. A blaða-
mannafundi i sambandi við
hljómleikaferðalagið sagði hann
m.a.:
— Ég geri mér grein fyrir þvi,
að The Beatles uppfylltu ákveðna
þörf á sjöunda áratugnum. Allt
það fólk, sem hafði The Beatles
að fyrirmynd og mat þá mikils, er
orðið fullorðið. Þetta er fullreynd
staðreynd. Fólk elst upp með eitt-
hvaö sér við hlið og verður háð
þvi. Þetta er vandamál i okkar
lifi, að verða of háður hlutum. Ég
geri mér grein fyrir þvi, að The
Beatles gerðu margt, sem metið
er að verðleikum, og ég er þakk-
látur. En bitlarnir eru metnir
jafn mikils enn þann dag i dag.
Vandamáliö veröur til, þegar fólk
vill lifa i fortiðinni, vill ekki
sleppa hendinni af þvi, sem það
þá hafði sér við hlið og er hrætt
við breytingu.
Þessi orð Harrisons eiga jafnvel
við um hann sjálfan sig eins og
aödáendur hans. Harrison hefur
oröiö að losa sig viö The Beatles
og taka upp nýja sjálfstæða
stefnu. Honum hefur tekist það,
en undir miklum áhrifum frá
Ravi Shankar. Harrison er ein-
lægur i trú sinni á indverska trú-
arheimspeki og að sjá hann sýna
lærifööur sinum, Ravi Shankar,
auömýkt og undirgefni á sviði,
kann að koma aðdáendum hans
undarlega fyrir sjónir. Þetta átti
sér margsinnis stað á áöurnefndu
hljómleikaferðalagi. Jafnframt
sýndu hljómleikagestir mikla ó-
ánægju með flutning hinnar ind-
versku tónlistar. Það komst
meira aö segja svo langt, að
Harrison var farinn að afsaka það
við hljómleikagesti, að Ravi
Shankar myndi nú koma og spila
nokkur lög: Hann bað fólk að hafa
þolinmæði og reyna að sökkva sér
djúpt i hina indversku tónlist, —
áður én Shankar hafði spilað
nokkurn skapaðan hlut.
Það má segja sem svo, að
Harrison hafi lækkað mjög i áliti
við þetta hljómleikaferðalag.
Plötur hans fram að þessu hafa
verið fullboðlegar, en hann hefur
aldrei komið fram opinberlega að
ráði. Þannig hafa plöturnar ef til
vill selst af gamalli hefð.
A sibustu hljómleikunum, sem
Harrison hélt var fullt hús. Það
var i Madison Square Garden i
New York. Þar voru saman
komnir vinir og vandamenn og
þeirra á meðal Paul McCartney
og kona hans Linda. Paul hafði
dulbúið sig með hárkollu og dökk-
um sólgleraugum, en samt sem
áður voru það nokkrir, sem báru
kennsl á hann. Hann var þó látinn
vera i friði. John Lennon hafði
boðaö komu sina á hljómleikana,
en kom ekki. Lögin Something,
What is Life og fleiri voru flutt af
Harrison, en það sem fólkið vildi
raunverulega heyra var Lucy in
the Sky. En Harrison var klapp-
aður upp og spilaði My Sweet
Lord eins og hann hafði gert á öll-
um 50 hljómleikunum. ,,Ég er hér
til þess að segja ykkur, að Herr-
ann er i hjarta ykkar”, hrópaði
hann til fólksins. „Hvað sem öllu
liður verður einhver að segja
ykkur það”. Og George Harrison
gekk af sviðinu, veifandi mynd af
Krishna. (Krishna er nafn á
Hindúaguði, sem Ravi Shankar
og áhangendur hans dyrka.
Krishna nafnið er annað nafn á
Vishnu, sem einnig er hindúfskur
guð. Þess má geta, að John
McLaughlin skýrði hljómsveit
sina einmitt Maha-Vishnu Or-
chestra.
Það er ljóst, að George Harri-
son er ofurseldur trú sinni. Hann
hikar ekki við að auðmýkja sjálf-
an sig fyrir augunum á túgum
þúsunda aðdáenda sinna. Tón-
listarsköpun hans er i lágmarki,
og smátt og smátt er fólk að
missa trúna á hann. Fjárhagsleg
afkoma hljóm leikaferðalags
Harrisons var ekki sem best, en
þeir sem að stóöu fyrir hljóm-
leikaferöalaginu eiga að baki sér
velheppnaðar hljómleikaferðir
Bob Dylans og Crosby, Stills,
Nash og Young. Framkvæmda-
stjóri hljómleikanna, Billy Gra-
ham var vanur að kveikja i stór-
um Havana vindli að afloknum
hverjum velheppnuðum hljóm-
leikum með Dylan. Hann var að
þvi spurður hvort hann hefði
reykt einhvern Havana vindil af
þessu tilefni, i sambandi við
hljómleika Harrisons. Hann svar-
aði á bragði: ,,Það er nefnilega
lóðið, það eru ekki til neinir vindl-
11. TBL. VIKAN 45