Vikan

Tölublað

Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 8

Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 8
Amerísk HRÍSGRJÓN RIVER hrísgrjón þekkir húsmóöirin og veit hve hagkvæm þau eru, sérstaklega í grauta. RIVIANA býöur nú einnig: AUNT CAROLINE hrísgrjón, sem eru vítamínrík, drjúg, laus í sér, einnig eftir suöu og sérstaklega falleg á boröi. SUCCESS hrísgrjón koma hálfsoðin í poka, tilbúin í pottinn. RIVER brún hýöishrísgrjón holl og góö. $ KAUPFÉLAGIÐ 8 VIKAN 11. TBL. vælum, fatnaöi, skóm, þvottefni og búsáhöldum, sem indiánakon- urnar hafa keypt ódýrt hérna. megin landamæranna. Lestin leggur ekki af staö aftur fyrr en samkomulag hefur náöst um vöruveröiö. Bæöi áhöfn lestarinn- ar og landamæraveröirnir taka þátt i kaupunum. En þaö er fleira en verslunin, sem tefur ferö okkar. í Austur- Bólivíu er það matarlyst áhafnar- innar, sem ræður ferðinni. Áöur en lagt er af staö frá ein- um viökomustaðnum, er pantað- ur símleiöis morgunverður, há- degisveröur og kvöldverður á næsta viðkomustað. A lltilli brautarstöð héldum við kyrru fyrir I fjórar klukkustundir, þvi að Cantineroinn átti kassa af góðu vini. Lestarstjórinn setur á fulla ferð, þvi aö honum gest ekki að matn- um. A brautarstöð nokkurri skammt fra brasillsku landa- mærunum hugðumst við nota fækifæriö til að skoða okkur um i þorpinu. En við vorum ekki komnir nema nokkra metra, þeg- ar lestarstjórinn blés aftur til brottferðar. Við hlupum til baka sem fætur toguðu og stukkum upp i lestina á siðasta andartaki. Astæðan til þessarar skyndilegu brottferðar: Áhöfninni þótti mat- urinn á brautarstöðinni vondur. Hann hefur þó áreiðanlega verið lystugri en maturinn, sem okkur býðst til kaups á brautar- stöðvunum. Til þess að losna við að borða hann, nærumst við aðal- lega á niðursoðnum matvörum úr bakpokunum og vini úr flöskum, sem við látum fylla við og við. Óreglulegar ferðir lestanna hafa iðulega hinær ægilegustu af- leiðingar. A landamærum Argen- tinu og Bóliviu, I Villazón, hittum við iðnrekanda frá Buenos Aires. „Sinkbræðslan min hefur ekki haft hráefni vikum saman”, kvartaði hann. Þremur mánuðum áður hafði hann pantað hráefni frá Bóliviu. Farmurinn var send- ur af stað á sérstökum járnbraut- arvagni, en hann kom aldrei alla leið. ,,Þá ákvað ég að fara sjálfur að leita”, sagði maðurinn. ,,Ég fann vagninn á teinum hinum megin landamæranna og enginn vissi, hvernig hann hafnaði þar”. Við vissum ekki heldur, hvort viðkæmumst nokkurn tima þang- að, sem ferðinni var heitið. En við lærðum með hverjum deginum, sem leið, nýjar aðferðir til þess að gera ferðina sem þægilegasta. Þannig áttuðum við okkur á þvi einn gððan veðurdag, að miklu þægilegra var að hafast við i gripavögnunum en þröngum farþegavögnunum, þar sem mað- ur sat klemmdur milli annarra farþega. 1 gripavögnunum var hægt að hreiðra ágætlega um sig. En þar varð brátt þröng á þingi lika. Bóliviska flutningalestin, sem við fórum með slfðasta spöl- inn að brasilisku landamærunum, var svo þéttsetin, að slegist var um hvern þumling i henni. Sterkir indiánarnir voru fljótir að verða sér úti um plássið i innstu hornum klefanna og hlóðu þar kringum sig farangri sinum, sem var ákaf- lega margbreytilegur. Þeir voru með koppa og kirnur, mótorhjól, kalkpoka og lifandi hænsni. Við gátum með naumindum holað okkur niður við dyrnar, en við höfðum lika útsýni. Þvi miður reyndist útsýnisstað- urinn vera sá versti i öllum vagn- inurn, þvi að þar var hræðilega kalt á nóttinni. Við urðum að klæðast öllum fötum, sem við höfðum meðferðis, áður en við skriðum ofan i svefnpokana. En kuldinn var ekki það versta. Á hverjum viðkomustað klifruðu nokkrir samferðamanna okkar yfir okkur. Þeir voru komnir á áfangastað og við lágum fyrir út- ganginum. Um morguninn sáum við á kfló- metravisi við veginn, að við höfð- um ekki farið nema fimmtiu kiló- metra um nóttina. Við ákváðum að lita ekki á klukkuna aftur fyrr en við værum komnir til Brasiliu. Fórum við rétta leiö? Spurt á 25. degi: Loks vorum við komnir á áfangastað — til Rio de Janeiro eftir tuttugu og fimm daga ferða- lag. Og við spurðum sjálfa okkur: Hvar var þessi nýja járnbrautar- llna, sem okkur hafði verið sagt frá nokkrum vikum áður? Við höfðum ferðast með óteljandi teg- undum og árgerðum lesta, en þetta gat ekki verið nýja leiðin, sem svo mikið hafði verið látið af. Var til einhver önnur leið? Þessari spurningu okkar svaraði suður-ameriskur járn- brautasérfræðingur: „Þiö fóruð rétta leið. Og hún er hreint ekki ný. En þótt lest fari af stað á rétt- um tirffti, veit ekki nokkur lifandi sála, hvenær hún kemur á áfangastað. Það er gömul saga”. Hvað um það! Við komumst alla leið. B O L I V I E N / La Paz _ \ • SantaCruz\ Sucre Potosi, 'Villazóm xx v-> URUGUAY lontevideo i Santiago Arica lquique„ Santos TiticacaÁ > \ Járnbrautir Leiðin /d see Corumbá Sa^atno

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.