Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 35
ef svo vel vill til, að einu sinni eBa
tvisvar á ári komi regnskúr. Það
gagnar ekki mikið. Sólin er svo
heit að hún þurrkar fljótlega þá
litlu vætu sem berst. Það er ein
ástæðan fyrir þvi, að Bertran
ættin er svo hötuð hér um slóðir.
— En jafnvel fábjánar gætu
ekki látið sér detta i hug að kenna
manneskjum um þótt ekki falli
regn af himni'. sagði Maxine æst.
— Eins og þér kannski vitið,
voru Arlac vinin álitin þau bestu i
þessu landi, þau voru framleidd i
þessu héraði. Forfeður yðar voru
auðugir og valdamiklir menn og
leiguliðar þeirra höfðu örugga
vinnu og það var mjög almenn
vesæld hérna.
— En hvaða óhamingja dundi
yfir þetta fólk?
AlanRussel sagði hátlðlega: —
Það hófst allt eina skelfilega nótt i
frönsku byltingunni. Bændurnir
réðust á höllina og kvistuðu niður
alla Bertranfjölskylduna. En einn
litill drengur slapp. Hann hét Guy
og hann var langalangafi yðar.
— Það er ekki undarlegt að
hann hafi hatað fólkið i Arlac,
bændurna, sem drápu alla ætt-
menn hans, hélt Alan áfram. —
Hann var svo alinn upp hjá
einhverjum fjarskyldum ætt-
ingjum. Mörgum árum siðar,
sneri Guy aftur heim i mannlausa
höllina. Frá ferðum sinum um
héraðið, þegar hann var barn,
vissi hann hvar upptök vatnsins,
sem leitt var um allt héraðiö til að
vökva vinviðinn voru. A einhvern
óskiljanlegan hátttókst honum að
stöðva þetta vatnsrennsli og sagði
aldrei nokkurri sál frá þvi hvar
þessa uppsprettu væri að finna,
svo hægt væri að lagfæra
áveituna og koma gróðrinum i lag
aftur. Sennilega hefur hann veriö
að dunda eitthvað I laumi við
eðlisfræöi eða einfalda verkfræði,
en þoi-psbúar hafa að sjálfsögðu
haldið hann stunda galdra og að
hann væri i slagtogi viö sjálfan
djöfulinn. En allar götur siðan,
hefur þessi uppspretta aldrei
fundist, en hún hlýtur að vera hér
einhvers staðar neðanjarðar.
— En með þvi að stöðva
áveituna þá var þessi langafi
minn ekki eingöngu að eyðileggja
fyrirbændunum, hann var lika að
grafa undan sinum eigin auðæf-
um. Það hlýtur aö vera einhver
önnur skýring á þessu öllu.
Russel hristi höfuðið. —
Hefndarþorstinn svipti hann
vitinu. Fram á þennan dag hefur
héraðið verið að lognast út af
vegna vatnsskortsins og bænd-
umir hata Bertran fjölskylduna.
Venjulega stendur Arlac höll auð
og mannlaus. En faðir yðar var
orðinn svo þreyttur á yfirborðs-
kenndu lifinu i Paris. Þess vegna
kom hann hingað, til aö fá að vera
hér I friöi, en honum varð ekki að
ósk sinni, hér mætti honum aðeins
tortryggni og hatur. Sennilega
hefur lika verið farið að ganga
mjög á auðæfi hans. 1 næstum
hundrað ár hefur þetta vesalings
bændafólk hérna barist fyrir lifi
sinu, en gerir ekki meira en að
draga fram lifið..
Þegar Maxine leiddi hugann
að hinu fátæklega fólki i þorpinu,
fannst henni skiljanlegt að það
AUOlVSlNUASlOf* KWSTlNAa
U^-62 8
Gagnkvæmt
merkir:
að hafi iðgjaldið
sem þú greiddir
í fyrra reynst hærra
en nauðsyn bar til,
færð þú endurgreiðslu í ár.
Er það ekki ærin ástæða
til að þú tryggir hjá okkur ?
1 1. TBL. VIKAN 35