Vikan

Tölublað

Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 10

Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 10
að byggja? GRENSÁSVEG118,22,24 SÍMAR: 32266-30280-30480 oósiurinn Gitarkennsla í bréfaskóla Blessaður Póstur góður og gleði- legt ár! Jæja, best að koma sér beint að efninu. Hvaða aldur og hvaða menntun þarf ég að hafa til þess að komast i fóstruskóla? Er hægt að læra á gitar i bréfaskóla? Ef svo er, hva.ð kostar það þá? Hvaða merki passa við fiskinn? Geturðu lesið eitthvað úr skrift- inni? Og hversu gömul heldurðu, að ég sé? Þakka góð svör við hin- um bréfunum minum. Hvað þýðir nafniö mitt? Ekki birta það samt, það er svo ljótt. Blessaður, Sissa Hilla Siðari hluti nafns þins er val- kyrjuheiti og merkir sterk kona, fyrri hlutinn skyldur orðinu sigur, og ólfkt finnst mér það fallegra en dulnefnið, sem þú velur þér. Ald- urstakmark til inngöngu I Fóstur- skóla tslands er 18 ár, og æskileg undirbúningsmenntun er próf upp úr framhaldsdeildum gagnfræða- skólanna á uppeldissviöi. Sam- kvæmt auglýsingu i 38. tbl. Vik- unnar 1974 býður Bréfaskóli S.t.S. og A.S.t. upp á gitarskóla I 8 bréf- um með lögum á nótum, kennari Ólafur Gaukur hljómlistarmaöur og námsgjaldið er kr. 1.200.00 Skriftin bendir til þess að þú sért draumlynd og svolitið óákveðin, og ég giska á, að þú sért 15 ára. Liggur oft viö gráti Kæri Póstur! Þú verður að hjálpa mér að ráða fram úr þessu vandamáli. Ég er oft áð velta þvi fyrir mér, hvort ég sé eitthvað afbrigðileg, þvi að stundum þegar ég er i ein- rúmi, þá get ég farið aö gráta, stundum rétt væli ég, en oftar græt ég þungt. Það er ekki nóg með það, að ég gráti i einrúmi, heldur liggur mér oft við gráti, ef einhver talar höstuglega til min, eða ef krakkarnir i skólanum eru að setja út á islenskuna mina. Einnig ef ég horfi á sorglega mynd, þá renna tár niöur kinnar mér, en komi eitthvað ógeðslegt, þá grip ég aftur á móti fyrir aug- un. Ég vona, að þú skiljir eitthvað I þessu og getir þar af leiðandi hjálpað mér eitthvað. Siðan eru það nokkrar af þess- um vanalegu spurningum: Hvað lestu úr skriftinni? Hvað held- urðu, að ég sé gömul? Hvernig eiga vog og naut saman? En vog og tviburar? Þú fyrirgefur vonandi mál- fræði- og stafsetningarvillur, en ég er kannski ekki alveg nógu góö ennþá i islenskunni. Ruth. Mér skilst á bréfi þlnu, að þú munir vera tiltölulega nýflutt til landsins eftir alllanga fjarveru, og það á eflaust sinn þátt i erfiö- leikum þinum. Ég held þú sért ekki meira en 12-14 ára, og á þeim aldri er svo margt að gerast I likama og sál, aö það getur haft truflandi áhrif á taugakerfiö og tilfinningalifið. Reyndu að taka ekki nærri þér, þótt skólafélögum þinum verði á að smástriða þér á i islenskunni þinni, þau meina áreiöanlega ekkert illt mcð þvi. Reyndu að eignast góöa vini og fjöibreytt áhugamál til þess að dreifa huganum, og leggðu þig fram um að læra lýtalausa is- lensku. Annars máttu trúa þvi, að þú ert ekki ein um það að eiga svoiitið erfitt með tárakirtlana, þegar eitthvað sorglegt ber fyrir augu, eða vilja sfður horfa á eitt- hvað ógeðslegt. Það bendir bara til svolitillar viðkvæmni og góðs hjartalags, enda er það einmitt það, sem lesa má út úr skriftinni. Vogin verður að leggja til skilning og bliöu og gæta þess að gefa ekki átyllu til afbrýöisemi, og þá farn- ast henni vel, hvort heldur með nauti eöa tvíburum. Ekki bara i hálfhring Kæri Póstur! Mig langar til að leita til þin með smá vandamál. Þannig standa málin, að ég var með ein- um strák fyrir tveimur árum. Ég hitti hann stundum, og þá erum við yfirleitt saman. Siðast þegar ég sá hann, var hann að dansa við stelpu, en þegar hann kom auga á mig, kom hann strax til min, og vorum við þá saman. Ég get ekki þolað svona sambönd. Hvernig á ég að snúa mér fyrir utan i hálf- hring? Siðan þetta venjulega: Hvað lestu úr skriftinni? Ath! Ég er ekki ein af þessum móður- sjúku. Disa Nei, liklega ertu ekki ein af þessum móðursjúku. skriftin bendir til þess, að þu sért lalsvert jarðbundin og raunsæ og viljir hafa allt á hreinu. Og þaö er ein- mitt það, sem þú skalt gcra I sambandi við strákinn, þú skalt reyna að fá samband ykkar á hreint, eða þá að snúa þér i heilan hring og þar með við honum bak- inu. Sandra og Helga Kæri Póstur! Mig langar að spyrja þig nokk- urra spurninga. Hvað þýðir nafnið Sandra? 2. En Helga. Ég hef aldrei skrifað þér áður. 3. Hvaö heldur þú, að ég sé gömul? Ég vona, aö þú getir svaraö þessum fáu spurningum. Bless, einforvitin. Sandra veit ég ekki hvað merk- ir, en Helga þýðir einfaldlega hin heilaga. Og ælti þú sért ekki kannski 11 ára. 10 VIKAN ll.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.