Vikan

Tölublað

Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 26

Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 26
Guðna Þórðarson kannast kannski ekki allir við, en heyrist Guðni i Sunnu nefndur, eru flestir með á nótunum. Oft hefur gustað um — og kannski ekki siður af — Guðna, enda hefur hann um langt árabil verið mikill umsvifamaður á sviði ferðamála. Hann hefur fengið orð fyrir að vera óbilgjam og harður i hom að taka, en sjálfur segist hann ekki biðja um annað en fá að sitja við sama borð og aðrir, sem stunda fólksflutninga. Um Guðna má með sanni segja, að hann er sifellt á ferð og flugi, og það ætlaði ekki að ganga of vel að setja hann niður til viðtals. Upphaflega var ætlunin að tala um allt annað en ferðamál, en lesendur verða að taka viljann fyrir verkið. Talið hlaut að snúast hvað eftir annað um ferðamál. Þó kom ýmislegt upp, sem ólfldegt er, að margir hafi haft vitneskju um. Það er t.d. á fárra vitorði, að sjálfur forstjóri Air Viking er að læra að fljúga og er kominn fast að einkaflugmanns- prófi. Og einhverjum kann að þykja það skemmtileg tilhugsun, að Guðni hefði helst viljað vera bóndi uppi i Borgarfirði, ef hann hefði ekki lent svona á bólakai i ferðaútveginn. ■ jl '■ f: ^ r i (• * * f a, |: .# í| 4 ♦ ♦ ,.Jn ‘

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.