Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 43
Fyllt horn
Ca. 4 dl. af hveiti
35 gr. pressuger (3 1/2 tsk þurr-
ger)
4 msk. sykur
1 egg
100 gr. smjörliki
1—1 1/4 dl. mjólk.
Fylling:
kurlaður ananas.
Penslið og skreytið með sundur-
slegnu eggi (sem má taka frá úr
uppskriftinni) og perlusykri.
Hrærið gerið út i volgri mjólkinni.
Blandið saman hveiti og sykri.
Myljið smjörlikið saman við og
hnoðið deigið ásamt uppleystu
gerinu og svo miklu af mjólkinni,
að deigið verði hæfilega fast i sér.
Skipið deiginu f tvennt og fletjið
út i 2 hluta. Skipið siðan kökunni
þannig, að það verði 8 jafnir hlut-
ar. og setjið ananaskurl á breið-
ari endann. Rúllið siðan upp frá
breiðari endanum og látið endann
snúa niður þegar hornið er mótað.
Látið lyfta sér um helming.
Penslið og stráið sykri yfir. Bakið
I 8—10 minútur við 225 gr.
Gróft brauð
1 kg. hveiti
300 gr. rúgmjöl og 300 gr. heil-
hveiti
50 gr. pressuger (5 tsk. þurrger)
1/2 msk. salt
1 ltr. volgur vökvi (mjólk, vatn og
eða undarrenna.)
Vinnið deigið á sama hátt og sagt
var fyrir um i fyrri uppskriftum.
Látið lyfta sér um helming og
hnoðið aftur. Setjið i form, látið
lyfta sér á ný og bakið.
Afmæliskringla
125 gr. smjörliki
2 1/2 dl. mjólk
40 gr. pressuger (4tsk. perluger)
2 egg
11/2 dl. sykur
1 tsk. kardemommur
10 dl. hveiti
1 dl. gróftsaxaðar möndlur eða
hnetukjarnar
1 dl. rúsinur
saxað súkkat.
Bræðið smjörlikið i potti, setjið
mjólkina saman við og látið verða
ylvolgt. Leysið gerið upp i hluta
af ylvolgri mjólkinni. Þeytið egg
og sykur og hrærið gerið og
mjólkina saman við. Látið hveitið
saman við ásamt karde-
mommunum og hnoðið með
næstum öllu hveitinu. Stráið
hveiti undir og yfir og breiðið rakt
stykki yfir, látið lyfta sér um
helming. Hnoðið síðan saman á
ný. Deigið á ekki að vera fast i
sér. Mótið deigið í kringlu (hún
verður dálitið ójöfn i löguní.Einn-
ig má skipta deiginu i 3—4 hluta
og baka lengjur i stað kringlu.
Stráið yfir möndlum, rúsinám og
súkkati og þrýstið inn i kringluna.
Breiðið stykki yfir og látið lyfta
sér á ný um ca. helming. Stráið
sykri yfir og bakið við 225 gr. i
10—15 minútur eða þar til kakan
hefur fengið á sig góðan lit.
Prinsessukaka.
75 gr. smjörliki
2 1/2 dl. mjólk
30 gr. pressuger (3 tsk. þurrger)
3/4 dl. sykur
7—8 dl. hveiti.
Fylling:
75 gr. smjör eða smjörliki
3/4 dl. sykur
1 dl. malaðar hnetur eða
möndlur.
Búið deigið til á sama máta og af-
mæliskringluna. Fletjið deigið út
iaflanganhleif .Breiðið fyllinguna
yfir og rúllið öllu saman eins og
rúllutertu, dálitið þétt. Skerið sið-
an niður i ca. 2 1/2 cm þykkar
sneiðar. Dýfið öðrum skurðarflet-
inum niður i hveiti og setjið á
hveitihliðina i stórt hringform,
vel smurt. Látið lyfta sér, penslið
með eggi og bakið við ca. 225 gr. i
ca 15—20 minútur. Sé ekki pláss
fyrir allar sneiðarnar i forminu,
má baka þær sérstaklega eins og
vfnarbrauð.
11. TB' VIKAN 43