Vikan

Issue

Vikan - 18.03.1976, Page 18

Vikan - 18.03.1976, Page 18
FRÁ LONDON TIL PARÍSAR. i fyrirtækjum sínum lét hún ávallt ávarpa sig Madame til þess að aðgreina sig frá Miss Elizabeth Arden, Mademoiselle Coco Chanel og Senora Evita Peron. Helena Rubinstein fann ekki mikla hamingju í öðru hjónabandi sínu fremur en hinu fyrra. Þegar prinsinn lést í New York árið 1956, var hún í París. Hún gaf einkarit- ara sínum skipun um að senda símskeyti þess efnis, að hún kæmi ekki til að vera viðstödd útförina, vegna þess, að ,,hún kæmist ekki frá". Þessi ákvörðun var ekki einvörðungu tekin vegna þess, að Madame ætti annríkt, heldur fór meðfædd sparsemi hennar að segja til sín með árunum. — Sendu skeytið að næturlagi. Það er miklu ódýrara. Eftir hinn frábæra árangur í London, færði Madame út kvíarn- ar til Parísar. Það tók hana tvö ár að komast áfram þar. Hún lagði hart að sér við vinnuna og var Fegrunarsérfræðingur verður ætið að vera faiiegur, sagði Helena Rubinstein, en þó notaði hún ekki vörur sínar sjá/f. Þessi mynd var tekin af henni í íburðarmikiu búningsherbergi hennar. He/ena Rubinstein í /úxusíbúð sinni á efstu hæö húss eins við Fimmta breiðstræti New York- borgar, dýrustu og fínustu götu heimsborgarinnar. ibúðir He/enu Rubinstein / New York, Par/s og London voru fullar af verðmætum listaverkum. — Hvað kemur þér til að halda að maðurinn minn hafi komist að sambandi okkar, ástin mín? stöðugt að hefja framleiðslu á nýjum snyrtivörum. Árið 1914 fór hún til Bandaríkj- anna, þarsem möguleikarnir voru óteljandi. — Bandarískar konurlitu hræði- lega út. Allar með stór, rauð nef og þurra húð. Sé þessi staðhæfing orðuð öðru vísi, til dæmis: Þótt ótrúlegt sé voru snyrtivörur og snyrting nær óþekkt fyrirbæri í Bandaríkjunum, hafði Helena Rúbinstein rétt fyrir sér. Varalitur þótti „ósiðsamleg- legur" þar í landi, og ilmvötn voru ekki notuð nema til að eyða „ólykt". GRÆDDI 960 MILLJÓNIR, ÁN ÞESS AÐ HREYFA LITLA FINGUR. Snyrtistofukeðjan varð stöðugt umfangsmeiri. Rubinstein-snyrti- stofurvoru opnaðar í Mílanó, Vín, Toronto og Róm. Verslunarhúsin við Fimmta breiðstræti í New York voru svo stór, að heila viku hefði þurft til þess að ganga um þau öll og líta á vörurnar. Rétt fyrir hið mikla verðfall á verðbréfum árið 1929, sýndi hið þekkta banka- og verðbréfafyrir- tæki Lehmann í Wall Street áhuga á að kaupa verslanirnar af Helenu. Fyrirtækið bauð rúmlega milljarð fyrir tvo þriðju hluta hlutabréf- anna. Madame seldi. Verðbréfa- hrunið varð fáeinum mánuðum seinna. Hlutabréf Lehmanns urðu ekki nema um það bil 1500 milljóna virði. Verslunin gekk illa. Fólk missti áhuga á fyrirtækinu. En dag einn kom upp úr dúrnum, að einkaaðili hafði keypt hluta- bréfin af Lehmann — Helena Rubinstein sjálf. Þá fór verslunin aftur að ganga vel. Upp úr 1930 fór eftirspurn eftir snyrtivörum mjög í vöxt, einkum þó í Bandaríkjur'íum, þar sem markaðurinn var aldrei meiri. Madame gegndi tvímælalaust for- ystuhlutverki í snyrtivöruiðnaðin- um, en þó hafði hún eignast skæðan keppinaut, þar sem Eliza- beth Arden var. Árið 1938 tókst Miss Arden að yfirbjóða Madame í samkeppni um 12 starfsmenn, þar á meðal einkaritara Madame, sem Miss Arden réði til starfa fyrir 50.000 dollara laun, sem þá var gífurleg upphæð. Madame hefndi sín. Nokkrum árum áður hafði Arden skilið við eiginmann sinn T. J. Louis. Skiln- aðardómurinn kvað svo á, að hann mætti ekki starfa innan snyrtivöruiðnaðarins næstu fimm árin. Árið 1939, þegar fimm ár voru liðin frá skilnaðinum, réði Madame hann til starfa sem yfirmann framleiðslunnar. — Í þessu starfi verður maður að vera fljótur að hugsa og hafa mikið úthald. Ég vinn tuttugu og fjórar stundir á sólarhring. Til þessa hef ég unnið í 300 ár af ævi minni. 26 HERBERGJA ÍBÚÐ Í NEW YORK. Helena Rubinstein kvartaði stöðugt undan því, að enginn starfsmanna hennar ynni eins mikið og hún gerði sjálf. Ef einhver þeirra var frá vinnu vegna veikinda, sagði hún: — Veikur og veikur! Ég hef oft verið veik, en ég hef aldrei hangið heima þess vegna! Madame bjó sér heimili í París, uppi í sveit í Frakklandi, í London og í New York. Aðalstöðvarnar voru í 26 herbergja íbúð hennar í New York. Þar sankaði hún að sér alls konar dýrmætum listaverkum, meðal annars málverkum eftir Picasso, Renoir, Modigliani, Mat- isse og Salvador Dali. í sérstökum sal í íbúðinni hafði hún safn málverka af sjálfri sér, einnig gerð af frægum og viður- kenndum listamönnum. Picasso hliðraði sér þó ætíð hjá því að mála Madame. — Ef ég geri það, dey ég áreiðanlega á undan þér, sagði hann sér til afsökunar. Madame keypti öll sín föt hjá Dior, Balenciaga og Schiaparelli. ibúð hennar í New York var full af stórkostlegum fötum, sem hún hafði í rauninni ekki nokkurn skapaðan hlut að gera við. — Já, en takið þér þau bara, sagði hún við unga blaðakonu, sem heimsótti hana í íbúð hennar og lét óspart í Ijós aðdáun sína á módelflíkunu.m. — Þetta er hvort sem er tómt skiterí. Skapsmunir hennar urðu brátt frægir, og um þá voru sagðar margar sögur — sumar hinar ótrúlegustu. Ef hún heyrði minnsta hávaða úr eldhúsinu, þegar hún hélt íburðarmikil sam- kvæmi sín, hljóp hún fram til að gæta að, hvort nokkuð hefði brotnað. Skammir hennar berg- máluðu um alla íbúðina, þótt það sem brotnaði hefði ekxi verið annað en ódýrt bollapar. Sjálfsævisaga Helenu Rubin- stein, sem kom út í byrjun sjöunda áratugsins, er í rauninni alls engin ævisaga, heldur uppskrift að fegr- unarmeðferð — hrein og klár auglýsing. Síðan Madame lést árið 1965 hefur systurdóttir hennar stjórnað fyrirtækinu. Það fylgir sögunni, að hún sé gædd mörgum sömu eiginleikunum og Madame.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.