Vikan - 18.03.1976, Síða 28
ÞAÐ SEM ÁDUR ER KOMID:
Marianne d'Asse/nat drepur etg-
inmann sinn i einvígi á sjálfa brúð-
kaupsnóttina og flýr i dauðans of-
boði á náðir Svartbaks, ruddalegs
sjóara. sem tekur að sér að koma
henni undan til Frakklands. Skip
þeirra brýtur á strönd Bretagne, og
Svartbakur hverfur Marianne, en
hún lendir í klóm strandþjófa
ásamt frönskum flóttamanni, Jean
Le Bru. Jean verður fyrstur manna
til að njóta blíðu Marianne, og þau
hyggja á flótta saman. Marianne
trúir því vart eigin eyrum, þegar
hún fréttir, að Jean sé flúinn og
hafi orðið einum strandþjófanna að
bana á flóttanum. Fokið virðist í
flest skjól, en þá kemur Svartbakur
aftur til skjalanna, dulbúinn sem
frœndi hins fallna strandþjófs. Æð-
isgenginn flótti þeirra Marianne
heppnast, og brátt liggur leiðin
til Parísar, þar sem Marianne
vonast til að hitta frændfólk sitt.
Hún er ekki fyrr búin að koma sér
fyrir á þægilegu hóteli, en Jean
Le Bru skýtur upp kollinum, og
þegar hún neitar að þýðast hann,
hefnir hann stn grimmilega meðþví
að láta taka hana’fasta. Henni er
gefið að sök að hafa komist inn
í landið á ólöglegan hátt. Eftir
heldur óskemmtileg kynni af fang-
elsisltfi fœr Marianne loks áheyrn
hjá Fouché lögreglustjóra, sem leys-
ir hana snarlega úr haldi, og áður
en hún hefur áttað sig á hlutunum,
er hún sest að snæðingi með Sur-
couf baróni.
,,Það eru önnur skip og aðrir
menn, jafnvel í St. Malo. Hann
getur farið til bróður mins Nicolas.
Auk þess er það alrangt hjá yður, að
Le Bru dái mig. Vissulega á hann
sér hálfguð, en það er ekki ég. Það
er keisarinn. Hann getur komið
honum fyrir í einhverri herdeild-
inni sinni.”
Þar með var málið útrætt. Mari-
anne reyndi að snúa samræðunum
þannig, að gestgjafi hennar færi að
tala um Sjálfan sig. I hennar augum
var þessi maður í senn hrífandi og
slægvitur. Þetta reyndist hins vegar
ekki auðvelt. Surcouf var hógvær
maður, en Marianne uppgötvaði,
að um leið og hún minntist á
sjóinn, þá fékkst hann til þess að
tala. Lífið á sjónum var hans yndi.
Ástæðan fyrir því, að hann hafði
ekki farið aftur á sjóinn eftir
komu sína frá Madagaskar var
að I stað þess að stjórna ein-
göngu sínu eigin skipi, þá var
hann nú að skipuleggja flota, sem
átti að gera Frakkland að sjóveldi.
Surcouf var aðeins þrjátíu og scx
ára gamall, cn samt var hann
auðugur maður, valdamikill I sínu
eigin landi og barón að nafnbót.
Heldur hljómaði það einkenni-
lega I eyrum Mariannes að heyra
hann jkammast út í þessa ,,fjand-
ans Englendinga.” Ljóst var, að
hann hafði lítið dálæti á þeim, enda
hafði hann gist hin hræðilegu skips-
fangelsi þeirra og frá því hann var
lítill drengur, hafði það eitt að sjá
breska fánann gert hann æfan af
reiði. En þó var hann engari veginn
blindur af hatri.
,,Nelson var prýðisnáungi, ”
sagði hann, „fyrsta flokks sjó-
maður. En ef ég hefði stjórnað
franska flotanum, en ekki hálfvit-
inn Villeneuve, þá hefðum við ekki
beðið lægri hlut við Trafalgar og
kannski væri þessi eineygi snilling-
ur þá enn á lífi. Nú, en af því
að hann lét þar lífið, blessaður, þá
var sú sjóorusta ekki með öllu
töpuð. Nelson var jafnmikils virði
og flotinn allur.' ’
Kaffið, sem var borið fram að
málsverði loknum, sefaði Marianne
nú til fulls og henni fannst lífið
þrátt fyrir allt þess virði að lifa þvl.
Henni þótti kaffi gott, þó hún hefði
hingað tíl ekki drukkið mikið af
því. Ellis frænka hafði einungis
drukkið te, en nágranni þeirra,
l
BENZONI
17
C Opera Mundi Paris
maður að nafni Sir David Trent,
var hinn mesti kaffisvelgur. Heima
hjá honum hafði Marianne fyrst
bragðað þennan ilmandi drykk og
strax kunnað að mcta hann. Nú
tæmdi hún bollann af augljósri
ánægju og bað síðan um meira.
Þennan bolla drakk hún jafnauð-
veldlega og þann fyrsta og Surcouf
virti hana vandlega fyrir sér.
, ,Hvað ætlist þér nú fyrir?”
,,Ég veit það ekki. Monsieur
Fouché kvað ætla að gera ein-
hvcrjar ráðstafanir varðandi mig.”
,,Besta lausnin held ég að sé sú,
að þér farið til hinnar fyrrverandi
keisaraynju af Malmaison. ”
..Fyrrverandi? Er skilnaðurinn þá
orðinn að veruleika?”
.Jósefína yfirgaf Tuilcries fyrir
fimm dögum og mun ekki eiga
afturkvæmt þangað. Hún dvelur nú
I húsi slnu að Malmaison ásamt þvl
fólki af hirðinni, sem hefur haldið
tryggð við hana. Dóttir hennar.
drottningin af Hollandi, víkur varla
frá hcnni. cn ég er hræddur um
að vður muni finnast staðurinn
heldur dapurlegur. Eftir þvl scm
mér skilst. þá cr þar grátur og
gnístran tanna.”
Svipurinn á andliti korslku-
mannsins gerði sitt til þess að
útmála fyrir henni ástandið.
,.Ég kvíði þvl ekki svo mjög."
sagði Marianne rólega. ,.Sjálf er ég
árciðanlega ekkert upplífgandi.”
..Fouché mun taka ákvörðun um
þetta og ég veit að hann mun ráða
yður heilt. Sjálfur á ég hús nálægt
St. Malo og myndi glaður vilja
bjóða yður að dvelja þar, cn þér
cruð svo falleg, að ég er hræddur
um...”
Hann roðnaði nú út undir eyru
og hellti kaffi I hollann sinn án þess
að Ijúka við setninguna. Marianne
skildi fyrr en skall I tönnum. Kona
barónsins yrði án efa ekkert hrifin af
því, að hann byði stúlku á hennar
aldri að gista hjá þcim. Hún tók
þetta því ekki sem móðgun. Á hinn
bóginn hafði hún gaman af vand-
ræðasvipnum á andliti hans. Það
var spaugilegt að sjá þennan at-
hafnamann cins og milli steins og
sleggju. Annars vegar vildi hann
verða henni að einhverju liði, en
hins vegar óttaðist hann ákúrur
eiginkonunnar. Hún flýtti sér því
að segja:
,,Þetta var fallega boðið af yður,
en ég á ættingja hér I París og
vil þvl heldur dvclja há þeim.”
Hann stundi og var greinilega
vonsvikinn yfir því að geta ekki
tekið hana með sér og bætti við
blíðlega: ,,Það var leiðinlegt. Ég
myndi hafa glaðst mjög...”
En svo var eins og hann færi
hjá sér á ný og hann tók að skamm-
ast yfir því að kaffið væri kalt og
þetta bitnaði á aumingja Bobois.
Þegar tími var kominn til að fara
I lögreglumálaráðuneytið. pantaði
Missið
ekki
fótanna
fr fr fr
0 Stáltáhetta
I Svamptápúði
0 Ytri sóli
0 Hlffðarbrún
labeur
O Svamppúðf
© Fóður
O Yfirleður
O Hælkappi
O Sterkur blindaóli
© llstoð
Nýjar
gerðir
Jallatte öryggisskórnir
laéttlr og liprir. Leörift sérstaklega vatnsvarift. Stilhetta yfir tá.
Sólinn softinn án sauma. Þolir hita og frost.
Stamur á Is og oliublautum gólfum
Hagstætt verft — Senrium um allt land.
Dynjandi sf;
SOFT&HTE
Þolir
25 þúsund
Woíta
spennu
Skoiíunni :ill • Keykjavik
Sinuir I! 20-70 & 11-20-71
JALLATTE S.A.