Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 18.03.1976, Qupperneq 33

Vikan - 18.03.1976, Qupperneq 33
að gera sig ánægða með okkar vernd.” Fouché reis á fætur og gaf til kynna að áheyrninni væri lokið. F.n svo fór hann að róta i skjölum á borðinu. Hann fann fljótt bréfið, sem hann var að lcita að og eftir að hafa rennt augum yfir það, sagði hann. ,,En hvað sem öðru líður, kæri barón, þá hygg ég að dvöl yðar í París verði ekki öllu lengri að sinni. Yður er áreiðanlega mikið í mun að snúa aftur til St. Malo. Ég er hér með skýrslu vfir umtalsvert afrek, sem einn af mönnum yðar hefur unnið. Gauthier, skipstjór- inn á Hirondelle fór til Guernsey og hertók þar skipið Incomparable, scm þér misstuð í nóvember.” „Nei, scgið þér satt?” I þetta sinn var Surcouf ekki lengi á sér að rísa á fætur og augu hans Ijómuðu af gleði. Hann var rjóður í framan og allar grunsemdir voru horfnar út I veður og vind. Það var engu líkara en hann liti á lögrcglustjórann sem scndiboða guðanna og hefði nú mcð öllu glcymt Marianne. En hvers virði var líka aðdráttarafl hennar I sam- bandi við skip hans og menn, sem áttu hug hans allan? Hann seild- ist cftir hatti sínum, sem hann hafði lagt frá sér á skápinn. ,,Ég mun taka næturpóstvagn- inn. Þakka yður fyrir kæri lögrcglu- stjóri. Þér hafið fært mér hinar kærkomnustu fréttir. Og nú er ekki annað eftir en að kveðja yður.” Hann sncri sér að Marianne og hncigði sig. ,,Og yður líka made- moiselle,” sagði hann þýðum rómi. ,,Ég skil yður hér eftir I góðum höndum og óska yður alls hins besta. Vonandi gleymið þér mér ckki.” Hann var á förum burtu frá París og skildi hana eftir hér í þessu óasjálega húsi. Það var ekki laust við, að hún fyndi til biturleika. Þessi traustvekjandi og heiðarlegi maður hafði sigrað allar efasemdir hennar á óvenju skömmum tíma. Kannski var það vegna þess að hann minnti hana á Svartbak. Nú ætlaði hann að snúa sér að sínum eigin málum og aðeins guð einn vissi, hvað yrði um hana. A morgun, eða kannski fyrr, væri hann algjör- lega búinn að gleyma henni. Hún gerði sér ljóst að þessi maður var einstakur I sinni röð. Hann angaði af fersku lofti, frelsi og Hfsgleði. Henni varð litið á fölt, mjóslegið andlit Fouchés og einhverra hluta vegna minnti hann hana á illa upplýsta kapellu, hvislandi raddir, ilm af reykelsi og leynimakk. Seinna þegar hún komst að því, að hann hafði ætlað að gana í þjón- ustu kirkjunnar og hafði lært til prests I klaustrinu í Nantes, átti hún eftir að minnast þessara áhrifa og skilja þau betur. Það setti að henni ekka, eh hún bældi hann niður og rétti ósjálfrátt fram báðar hendurnar í áttina að vini hennar, sem var á förum. ,,Þakka yður fyrir,” sagði hún, ,,og skrifið mér endilega.’’ Hann brosti til hennar og greip þétt um báðar hendur hennar. , Já, ég lofa því. En þér verðið að fyrirgefa mér, þó að skrift mín sé illlæsileg. Ég er ekki menntaður maður, en fyrir yður geri ég allt. Ef þér þarfnist einhvers slðar, þá snúið yður til mín. ” Því næst kyssti hann á hönd hennar, tók staf sinn og yfirgaf herbergið án þess að líta um öxl. Fouché horfði á eftir honum og augnaráð hans var órætt. Er dyrnar lokuðust stundi lögreglustjórinn. ,,Þér eigið áreiðanlega hauk I horni þar scm þessi maður er. Ég óska yður til hamingju. Surcouf er enginn smáfiskur þegar hann er einu sinni kominn á öngulinn er erfitt að losna við hann. Ég var farinn að halda, að hann myndi ekki fást til þess að yfirgefa yður. En nú getum við loksins ræðst við I alvöru.” „Gerðum við það ekki áðan?” ,,Bæði og.” Um leið og hann mælti þessi orð hringdi hann bjöllu, sem var á borðinu. Lítill svartklæddur ná- ungi með gulleitt litaraft og inn- fallið brjóst kom inn. Hann hélt á bréfamöppu undir hendinni og hvíslaði einhverju I eyra lögreglu- stjórans. Þetta var Maillocheau, einkaritarinn hans. ,,Allt I lagi,” sagði Fouché. ,,Farðu með hana inn hinum meg- in. Ég kem undireins.” Framhald I næsta blaði. 1 STIL-HÚSGÖGN AUÐBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 44600 söfaseliió hittir beint í mark TODDÝ sófasettið er sniðió fyrir unga tolkiö Verð aðeins kr. 109.000.->í Góóir greiösluskilmálar. Sendum hvert á land sem er. DINNI & PINNI 12. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.