Vikan - 19.08.1976, Síða 19
Fordwater heitir ein beygja á
Goodwood brautinni, og út úr
hcnni kemur Moss á yfir 190 km
hraða alveg á hælunum á Hill.
Þegar svo næsta beygja St. Mary’s
nálgast skiftir Moss úr 5. gír 1 4.
Lotusinn er á ofboðslegri ferð, og
Hill sér hann í baksýnisspeglinum
nálgast á ofsaferð, svo þýtur hann
framúr og út af brautinni, og 60
m frá rekst hann á vegg. Graham
Hill hélt áfram og vann keppnina.
Þessi mynd var tekin nokkrum
mínútum áður en hin afdrifaríka
keppni hófst á Goodwoodbrautinni
&
Við skulum hverfa aftur f tímann
til 23. apríl árið 1962. Formula 1
kepþni er að hefjast á kappaksturs-
brautinni Goodwood í Sussex á
Englandi. Graham Hill er mættur
til leiks í B.R.M., en Hill var þá
orðinn fastráðinn hjá þeim og öku-
maður númer eitt. Hill þurfti helst
að vinna þessa keppni, sem var yfir
42 hringir og kallaðist Glover
Trophy, en hann er í erfiðri að-
stöðu, þvf í næsta bíl við hliðina
á honum er Stirling Moss á Lotus
Climax. Hill er því f vanda og klórar
sér áhyggjufullur f sfnu heimsfræga
yfirskeggi.
Rásflaggið fellur, og bílarnir æða
af stað, en hvorki Moss né Hill
ná forystu heldur nýsjálendingur-
inn Bruce Mclaren, sem ekur
Cooper Climax. I öðrum hringnum
tekst Hill að komast framúr Mclaren
og tekur forystu f keppninni. Ö11-
um til mikillar furðu kemst Innes
Ireland í þriðja sætið, og Moss er í
fjórða sæti, en það á ekki vel við
þennan enska ökuþór. Þegar átta
hringir eru búnir keyrir Moss
framhjá viðgerðarmönnunum
hangandi hálfur út úr bílnum. 1
næsta hring kemur hann inn til
viðgerðar. Gírkassinn er bilaður, en
viðgerðarmennirnir eru ekki nema
örfáar mfnútur að gera við bilun-
ina. Á meðan bíður Moss órólegur
eftir að 1,5 lftra Lotusinn með V 8
200 hestafla vélinni verði tilbúinn
f slaginn aftur.
Loks þegar Moss kemst af stað er
hann orðinn einum hring á eftir
öllum hinum. En það er ekki
honum Ifkt að gefast upp. Moss
tekst að komast fram úr þeim
hverjum af öðrum og slær brautar-
metið, svo stíft er ekið. Eftir 30
hringi er Moss orðinn sjöundi f
röðinni plús heilum hring á eftir og
útilokað að honum takist að vinna
keppnina. Þegar svo 35 hringir eru
búnir, hefur Moss tekist að ná öðru
sæti á eftir Hill og er ákveðinn að
komast framúr Hill til að sýna, að
hann sé sá besti, þótt hann vinni
ekki keppnina með þvf.
Stirling Moss, sem var á rúmlega
100 km hraða, þegar hann lenti á
veggnum, var meðvitundarlaus í 38
daga. Það tók rúman hálftíma að ná
honum út úr bílflakinu.
Sagt er, að þráinn og lífsviljinn
hafi bjargað Moss, og hann dreymdi
um að komast aftur á kappaksturs-
brautirnar eftir að hann hefði náð
fullri heilsu.
Rúmu ári seinna var Stirling Moss
mættur á Goodwood brautina, þá
sömu og hann hafði lent í slysinu á.
Moss ætlaði að prufukeyra Lotus
19 og athuga hvort hann (Moss)
væri orðinn nógu góður eftir slysið
til að halda áfram í kappakstri.
Þetta var 1. maí 1963. Eftir hálf-
tíma akstur hætti Moss, útkoman
var ömurleg fyrir hann. Stirling
Moss var alls ekki nógu góður
ökumaður lengur og tókst ekki að
ná þeim hraða, sem hann þurfti til
að hefja keppni á ný.
Moss fór aftur til London, þar
sem hann hélt blaðamannafund og
tilkynnti, að hann væri hættur að
keppa, þetta var erfitt fyrir mann-
inn, sem ári áður var talinn besti
ökurnaður heims.
Það tók hálftíma að ná Stirting
Moss út úr brakinu eftir slysið.
Hann hafði brotið í sér flest bein
vinstra megin í líkamanum og lá
meðvitundarlaus íS8 daga.
Stirling Moss ogjack Brabham rceða
málin. Myndin er tekin á Roskilde
brautinni t Danmörku.
34. TBL. VIKAN 19