Vikan

Issue

Vikan - 19.08.1976, Page 24

Vikan - 19.08.1976, Page 24
BANANAH Undirbúningur að grísaveislu á ,,Son amar'' með músík og öllu tilheyrandt. gangstéttarveitingahúsin, með vinalegri umgengni og þjónustu jafnvel betri en við eigum að venjast á okkar bestu veitingastöðum. Þessvegna get ég, satt að segja, ekki sagt um verð á þessum betri stöðum, en mundi áætla, að þar mætti margfalda allt verð venju- legra staða með tveimur eða jafnvel þremur. Þegar maður situr við borð úti á gangstétt, sötrar sinn bjór, nýtur sólarinnar og horfir á mannlífið allt í kring, getur ýmislegt skrítið komið fyrir. Eitt sinn var ég á veitingahúsi, þar sem strsetisvagn stoppaði rétt við borðin. Alveg við stoppistöðina sátu tveir menn við borð rétt eins og ég og nutu þess, sem þeir höfðu pantað til matar. Þá stoppaði strsetó, og farþegum var hleypt út rétt við borð þeirra. Ung stúlka flýtti sér þessi lifandis ósköp út, og um leið og hún steig á götuna, varð henni sýnilega svo hrottalega illt, að hún kastaði upp Hamborgarar virðast mjög vin- sæll rétlur þarna. Oftast er hann borinn fram á disk, með tveim brauðsnciðum. Og er önnur skreytt hamborgaranum, en hin hráu salati tómatsneiðum, hráum lauk og ýmsu öðru. Með þessu er borið pipar og salt, sinnep ágætt og tómatsósa. Yfirleitt reyndist mér einn slikur hamborgari alveg nægj- anleg máltíð. Þetta kostar yfirleitt 40 pts. Svipað verð og framburð- armáti er gjarnan á heitum pylsum, sem að jafnaði eru alveg ágætar. Auðvitað getur hver og einn kosið sér annan og íburðarmeiri veitingastað, sem eru líka þarna á hverju strái. Þar eru gjarnan borð þakin mjallahvítum dúkum, stíf- bónuð gólf og hvítklæddir þjónar flciri en gestir. Sjálfur kaus ég ávallt / þessu húsi, rétt fyrir utan glugg- ann minn, bjó ferlegur hundur, sem gelti alla nóttina og virti engar þagnarskyldur. Þegar hótel- gestir voru hættir að garga, hélt hann áfram að góla það, sem eftir var nætur. Aðalmismunurinn á ferðum okk- ar og annarra gesta til Hótels 33 virðist mér véra sá, að yfirleitt förum við til lengri dvalar en þeir. íslendingar fara oftast I tveggja til þriggja vikna dvalar, en aðrir mjög gjarnan í eina viku aðeins. Sænsku og norsku píurnar koma þangað askvaðandi með hörundslit eins og nýorpin hænuegg, en eftir vikusetu I sólhaði mcð hæfilegum barhvíldum og kannski jafnvel ein- staka sinnum dúr á auga, þá fara þær aftur syngjandi og hrópandi og með útlit cins og steiktir kjúklingar. Vcl á minnst steiktir kjúklingar. Það er réttur, scm auðvelt er að fá víðast hvar á Mallorca. Vclflest veitingahús sem maður gengur framhjá auglýsa kjúklinga í glugg- unum og vcrðið á þeim um leið. Aðeins stcinsnar frá Hótel 33 er gistihús, scm heitir Panama. Þang- að Iét ég mig oft rúlla niður brekkuna, því þar á neðstu hæð eru tvcir veitingastaðir, og þar getur maður setið allan daginn við borð úti á gangstétt og haldið þorstan- um í skefjum, en þess á milli pantað allskonar mat. Þar kostaði hálfur kjúklingur 100 pts. Kótelctta kostar 70 pts. Enskt buff 90 pts. Hamborgari 40 pts. Hcitar pylsur 30 pts. Egg og bacon 60 pts. Steiktar kartöflur 23 pts. Og hrá- salat 30 pts. Brauðsamlokur kosta frá 30—40 pts., cftir því hvað maður vill ofan á þær. Þcssi staður hét Svcnska Baren eða ,,Amigo”, cn veitingamaðurinn cr þýskur, og auk hcnnar talar hann og þjónar þar auðvitað sænsku, spönsku og ensku, þannig að engin vandræði virðast fyrir hvern sem cr að gera sig þar skiljanlegan. 24 VIKAN 34.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.