Vikan - 11.11.1976, Side 23
litsfallinu. Þeir eru meðalmenn á hœð
og luralegir.”
„Liðsauki,” sagði Krieger lágt.
„Ég átti svo sem von á því.
Ludvik hefur haft nægan tíma til
þess ama. Hann hefur verið hér í
Merano síðan snemma í morgun.”
Hann kveikti enn einu sinni í píp-
unni og nú var loksins kominn al-
mennilegur eldur í hana.
„En hvernig komst hann að því,
að við ætluðum hingað?”
„Ég laumaði því að Mark Bohn.”
Krieger tók eftir undrunarsvipnum,
sem lagði undir sig andht Davids.
„Ég vissi hvað ég var að gera,”
sagði hann óþolinmóður. „Hvemig
átti ég öðmvísi að komast að því
hver væri svikarinn í hópnum?
Vertu ekki svona undrandi á svip-
inn. Það er Bohn.”
David þagnaði andartak.
„Bohn,” sagði hann svo með
þungri áherslu.
„Talaðu varlega. Hún er að koma
með bjórinn.” Krieger fór að tala
þýsku. Hann minntist á flugeldana
og vinuppskeruna. Svo lyfti hann
stóm ölkrúsinni. „Skál fyrir þrúg-
unum, sem nú er borgið, og bíða
uppskemnnar í næsta mánuði.
Þetta er svei mér góður tími að
vera staddur hér. öll þessi kátína.”
Þjónustustúlkan brosti til sam-
þykkis. Hún var mjaðmamikil og
það sópaði að henni er hún flýtti sér
í burtu í víða pilsinu sínu.
„Við verðum að...” sagði David.
, ,Tökum þetta í réttri röð. Tarasp.
Ég ætla að láta þig vita um helstu
atriðin núna. Hugsast getur að við
verðum fyrir óþægilegri áreitni.”
„Við verðum að koma Irinu
héðan frá Merano og það eins og
skot. Bohn...”
„Ég er þér alveg sammála.
Hlustaðu þess vegna vel á það sem
ég hef að segja.” Krieger lýsti
Tarasp í stuttu máli, htlu þorpi,
sem stóð uppi á hæð og þar var lika
kastali. Því næst lýsti hann leiðinni
að húsi þvi, sem Irina átti að hitta
föður sinn. Það var búið að panta
herbergi á gistihúsinu fyrir Jo og
David. „Náðirðu þessu?” sagði
hann að lokum.
David kinkaði kolli. „En svo?”
„Síðan munu þau hverfa og taka
upp lifnaðarhætti Kusaks þangað
til nýja bókin er komin út. Þegar
að því kemur munu milljónir manna
þekkja innihaldið og þá verður erfitt
jafnvel fyrir Jiri Hrádek að kveða
niður boðskap hennar.”
Þau munu hverfa...David varð
niðurlútur. Ég fann hana loksins og
nú mun ég glata henni aftur. Hann
leit upp. „En hvað um hefndir?
Það er að vísu gamaldags aðferð,
en Jiri Hrádek er vís til þess að
hafa trú á henni. Ef Irinu tekst
að sleppa særir það stolt hans. Ég
held að hann leyfi henni ekki að
komast upp með það. Og svo er enn
ein hætta. Hún tók með sér minnis-
bækur föður síns og þar er að finna
mikilvægar upplýsingar um ráða-
brugg Jiris árið 1968. Hvað gerir
hann er hann fréttir um það?”
„Minnisbækur Kusaks? Er hún
með þær?”
Hnýtið yðar eigið Rya teppi
á vegg, gólf eða púða.
Hér sjást aðeins fáein af hinum fjölmörgu teppum
og púðum, sem þér getið hnýtt eftir hinni þekktu
Readicut aðferð.
Calypso púðinn; skemmtilegir
og frjálslegir litir. Hægt er að
velja um ótal mynstur bæði í
sterkum og þægilegum litum.
Winter Moon, — veggteppi með
fallegri myndbyggingu í mild-
um litum. Úrval veggteppa í
hverskonar stærðum og lita-
samsetningum.
Riviera, stílhreint blómamynstur. Hvernig kæmi það
til með að taka sig út á lieimili yðar?
ö/as/as
Yaprok, með álirifum aust- Fall (Haust) leiftrandi haustlitir. Það máhnýtaí þeirri
urlenzkra mynsturgerða. stærð, sem hæfir best heima hjá yður.
ÓKEYPIS, GRÍÐARSTÓR MYNDALISTI.
Hann er kominn út. Stóri og efnismikli tómstundaiðjulistinn frá Readicut.
Myndalisti um hnýtingu gólfteppa, veggteppa og púða.
Hér að ofan sjást aðeins 5 af mynstrum listans. I stóru teppabókinni ei*u
125 mynstur til viðbótar, — nýtizkuleg og hefðbundin, leiftrandi í litum eða
með mildri áferð. Þér getið vafalaust fundið mynstur við yðar hæfi í bók-
inni. Því miður eru bækurnar og sýnishornin af garninu aðeins til i tak-
mörkuðu magni; sendið okkur því útfylltan pöntunarseðil strax i dag.
Athugið: Readicut fæst aðeins í póstverzlun okkar.
Þetta allt fáið þér í
Readicut öskjunni:
Myndalistann, teppanál,
garn i sýnishomabúntum,
skorið í réttar lengdir, og
þar að auki auðskilinn leið-
arvísi með fjölmörgum
myndskýringum.
I
I
B
I
I
I
I
Til Readicut
Holbergsgade 26
1057 Kðbenhavn K
Sendið mér nýju teppabókina ásamt garnsýnishorrul
í 52 fallegum litum, án endurgjalds.
Nafn_______________________________
Heimilisfang_______________________
Borg/hérað/land
Framhald (næsta blaði.
46. TBL. VIKAN 23