Vikan - 13.01.1977, Side 4
Milljarður
a
milljarð
ofan
Paul Getty græddi
milljarða á olíu
og varð mjög
auðugur maður, ei
aðaláhugamál
hans var
listaverkasöfnun
og listdýrkun.
Hann var einn auðugasti maður
heims. Fyrstu milljónina eignaðist
hann árið 1914, þegar hann var
aðeins 22 ára gamall. Eftir það
græddi hann stöðugt á tá og fingri
og það var eins og allt yrði að
peningum í höndunum á honum.
Bemskudraumur hans rættist þó
ekki fyrr en 60 árum síðar, eða
tveimur árum áður en hann dó. í
Malibu, fínasta úthverfi Los Angel-
es lét hann reisa sér hina vegleg-
ustu höll, þar sem hann safnaði
saman dásamlegum listaverkum frá
nítjándu öld.
Paul Getty var ákafur fegurðar-
dýrkandi. Þegar á skólaárum sinum
í Oxford, eyddi hann löngum stund-
um á listasöfnum og skoðaði þar
listmuni. Ekki leið þó á löngu,
áður en hann varð að kasta sér út í
atvinnulífið og til að byrja með
vann hann á vegum föður síns, sem
þá var farinn að versla með olíu og
sendi hann Paul til Oklahoma í
Bandaríkjunum. Þar lifði Paul við
fremur bág kjör, vann eins og húð-
arjálkur og rakaði saman olíugróða.
Hin stórkostlega höll, sem Getty lét reisa í Malibu. Höllin, ásamt hinum fö8rU[
Aðalinngangurinn í höllina. Marm-
arinn í gólfínu var fluttur frá ltaliu.
Ömetanleg forn stytta