Vikan - 07.04.1977, Page 10
PÓSTlJIUiW
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir allt gamalt og
gott. Við erum áskrifendur að
Vikunni, og ég les alltaf Póstinn
og stjörnuspána. En ég segi nú
alltaf meininguna, og ég verð að
segja, að mér finnst þú stundum
einum of tíkarlegur og útúrsnúinn,
þegar þú svarar spurningunum. —
En hvað með það, ég skrifaði ekki
til að segja álit mitt á þér, heldur út
af spurningu frá 7458-2818 í
Póstinum um daginn. Ég veit um
pennavinaklúbb í Finnlandi, ef
7458-2818 er ekki búinn að missa
áhugann:
International Youth Service,
SF - 20101
TURKU 10
FINLAND.
Jæja, mig langar að spyrja í
lokin, hvernig krabbi (stelpa) og
steingeit (strákur) passa saman.
Bið að heilsa,
8004-4321
Pósturinn þakkar þér fyrir upp-
lýsingarnar og gagnrýnina, það er
alltaf gott að heyra eitthvað frá
lesendum, hvort he/dur það er
gott eða slæmt. Um samband
krabbastelpu og steingeitarstráks
segir svo í Stjörnuspá ástarinnar:
Hann getur verið akkerið, sem þú
þarfnast. Vertu bara ekki of
grátgjörn og skapbráð.
HEIMAVISTARSKÖLI, ÖR OFL.
Kæri Póstur!
Ég ætla að biðja þig að svara
nokkrum spurningum, sem mér
liggja þungt á hjarta. Veist þú
nokkuð, hvað kostar fyrir einn
nemanda á heimavistarskóla, eins
og t.d. að Skógum í einn vetur?
Komast allir að sem vilja? Gróa ör
eftir unglingabólur nokkurn tíma?
Jafnar húðin sig til fulls? Verkar
pillan ekki, ef maður tekur ekki
rétta pillu á réttum degi? Svo
kemur þetta sama: Hvernig er
skriftin? Og stafsetningin? Ég veit
sjálf, hvað ég er gömul, en hvað
heldur þú? Hvaða merki fara best
við hrútinn (kvk) og vatnsberann
(kvk)? Og kær kveðja til Helgu
ruslafötu, ef ég skyldi vera svo
óheppin, að bréfið lenti í henni.
Og spældu mig nú ekki á því að
segja, að ég sé yngri en ég er.
Birtu þetta bréf, elsku Póstur, eða
að minnsta kosti svar við því,
vegna þess aö mér bráöliggur á
svari. Með fyrirfram þökk. J.S.
Pósturinn hefur engar áreiðan-
legar tölur yfir kostnað við vist á
heimavistarskólum, enda er hann
að sjálfsögðu mismunandi eftir
verðlagi hverju sinni, og tel ég þvl
best fyrir þig að snúa þér beint ti/
viðkomandi skóla. Það er mjög
mismunandi, hvort ör eftir ungl-
ingabólur gróa. Ef þau gera það
ekki og húðin er mjög slæm, er
viðkomandi ráð/agt að /eita ti/
húðlæknis, og þar getur hann
fengið tilvísun til lækna, sem
framkvæma aðgerðir til að láta
þessi ör hverfa. Pillan verkar ekki
rétt, ef hún er ekki tekin dagtega,
a.m.k. mega ekki líða meira en 36
stundir frá þvi síðasta pilla var
tekin, uns sú næsta er tekin.
Skriftin er áferðarfalleg og staf-
setningin mjög góö, en þú átt að
skrifa ,,óheppin" en ekki óhepp-
inn, þar sem þú ert kvenkyns. Þú
ert svona 15 ára. Ljónið passar
best við hrútinn og tvíburarnir við
vatnsbcrann.
ÓSKÖP SAKLAUSAR SPURN-
INGAR.
Komdu sæll kæri (kæra) Póstur!
Mig langar aö forvitnast um
svolítið, og ég vona, að þú getir
hjálpað mér. Ég er samt ekki neitt
yfir mig ástfanginn eða með of
miklar bólur, eða neitt því um líkt.
Þetta er bara saklaus forvitni. Þá
er best, að ég vindi mér í
spurningarnar, og því miöur verð
ég að hafa þær númeraðar, því
öðruvísi kemst ég ekki að
spurningunum:
1. í september 1975 var gefin út
plata með hljómsveitinni ÝR,
veistu, hvað hún hefur selst í
mörgum eintökum?
2. Á hvaða hljóðfæri spila nýju
meðlimir Haukanna?
3. Hvar búa Bítlarnir, og hvert
er heimilisfang klúbbanna þeirra?
4. Hvað hafa þeir (Bítlarnir)
gefið út margar breiöskífur?
10 VIKAN 14. TBL.