Vikan - 19.01.1978, Side 10
SVEN HAZEL
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir gott efni. Ég
vissi ekki, hvernig ég gæti fengið
svar við þessari spurningu, svo
mér datt í hug að skrifa þér. Ég
vona, að þú getir svarað þessari
spurningu. Getið þér frætt mig á
því, hvar Sven Hazel skáld býr?
Og svo það venjulegasta: Hvaða
merki á best við nautið? Með
fyrirfram þökk.
S.B.
Eftiráreiðan/egum heimiidum, sem
Pósturinn hefur afiaö sér, býr
maðurinn í Noregi. Ég hef ekki
hugmynd um HVAR í Noregi, en í
Noregi býr hann! Annars er ég
aiitafaö stag/ast á því hér á síðum
Póstsins, að hvorki ieikarar,
söngvarar né nokkurt frægt fóik
hefur það fyrir sið að senda
Póstinum heimiiisföng sín, og því
get ég þvi miður ekki orðið
lesendum að iiði í slíkum má/um.
Tvíburarnir eða meyjan eiga best
við nautsstrákinn.
VIÐ ERUM EKKERT VOÐA
LJÓTAR
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær einmana,
og okkur langar að kynnast
tveimur strákum. Við erum ekkert
voða Ijótar sjálfar. Elsku Póstur,
geturðu gefið okkur ráð, hvernig
við eigum að láta taka eftir okkur?
Vonandi lendir bréfið ekki í þinni
frægu ruslakörfu. Hvað lestu úr
skriftinni, og hvað heldurðu, að ég
sé gömul?
Tvær einmana.
Hræriö saman eggjarauðu, hveiti
og vatni, og berið framan í ykkur.
Látið storkna vel, og málið síðan
mynstur ofan /' með rauðum
vatnslit. Setjið gólfklút yfir hárið
og skreytið með gulum plastblóm-
urrí. Klæðið ykkur i bikini-baðföt,
ef það er bylur og snjór úti, og
faríð i gúmmístígvé/ á annan
fótinn en verið í götóttum sokk á
hinum. Hoppið síðan á öðrum fæti
(þessum með sokknum á) og
syngið ,,Nú árið er liðið" — svo-
Htið falskt. Ef þeir taka ekki eftir
ykkur þá, — þá er þetta
vonlaust. Þú, sem skrifar bréfið,
ert 16 ára, en hin er Hka 16 ára. Úr
skriftinni /es ég /jóshærðan,
b/áeygðan, ungan mann, fremur
myndar/egan, en það er verst, að
hann tekur ekkert eftir ykkur. — Í
a/vöru ta/að, stúlkur mínar, getið
þið virkilega ekki látið ykkur detta
neitt í hug sjálfar?
4-'2-5
— Og þegar við erum gift, máttu alveg ráða því, hvar við búum —
hjá foreldrum þínum eða foreldrum mínum.
POSTURIM
ENNÞÁ SPURT UM MERKIN
Hæ, Póstur!
Við ætlum að spyrja þig þessara
vanalegu spurninga: Hvaða merki
eiga best við steingeitina og
sporðdrekann (bæði kvk)? Hvern-
ig fara saman sporðdrekinn (kvk)
og steingeitin (kk)? Hvaða happa-
dag, lit og tölu hafa þeir, sem eru
fæddir 17. nóv. og 14. janúar?
Tvær að austan.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni,
hvernig er stafsetningin, og hvað
heldurðu, að við séum gamlar?
Meyjan á best viö steingeitina, en
hrúturínn á best við sporð-
drekann. Sporödreki og steingeit
eiga mjög vel saman sem vinkon-
ur. Happadagur þess, sem er
fæddur 14. janúar, er þriöjudagur,
happaiitur blár og happatölur eru
5 og 8. Happadagur þess, sem er
fæddur 17. nóv. er föstudagur,
happalitur er grænn, og happatöl-
ur eru 8 og 10. Skriftin ber vott um
mikla nákvæmni, stafsetningin er
mjög góð, en orðalagið var fremur
slæmt i upphafi bréfsins. Þið eruð
svona 17 ára.
HVAÐ HEITA MARGAR BESSA?
Kæri Póstur!
Ég ætla að þakka fyrir allt gott í
Vikunni. Mig langar að spyrja þig,
hvað það eru til margar mann-
eskjur á landinu, sem bera nafnið
Bessa? Hvað lestu úr skriftinni?
Hvað heldurðu, að ég sé gömul?
Ég vona, að ruslafatan sé södd og
hafi ekki lyst á bréfi mínu. Ókey,
bæ!
003-777
Hjá Hagstofunni fengum við þær
upplýsingar, að það er engin
manneskja tiI á landinu, sem heitir
Bessa. Skriftin ber meö sér, að þú
sért með afbrígðum þolinmóð og
skapgóð persóna, og ég tel, að þú
sé'* 15 ára.
ÁSTA ERLINGSDÓTTIR
Kæri Póstur!
Mig langar svo voðalega að
vita, hvar hún Ásta Erlingsdóttir á
heima. Gætir þú bjargað mér um
heimilisfangið? Svo er það þetta
gamla, sem gott er að vita: Hvar
er happatala, litur, blóm og steinn
fyrir þá sem eru fæddir 9.12? En
skriftin, hvernig er hún?
Ósk
Ásta Erlingsdóttir á heima í
Sigtúni 59, Reykjavík. Happatölur
þínar eru 3 og 9, happalitur
purpurarautt, rós er blómið þitt og
demantur steinninn þinn. Skriftin
er mjög góð.
ÚTSTANDANDI EYRU
Kæri Póstur!
Mig langar svo að vita, hvort þú
getur gefið mér ráð. Það er
þannig, að ég er með svo ferlega
útstandandi eyru, að ég er alveg í
kerfi. Reyndu ekki að segja, að
það sé ábyggilega vitleysa í mér,
því mér er strítt á þessu, kölluð
... eyrnaprúða og allt svoleiðis.
Reyndu heldur ekki að ráðleggja
mér að greiða hárið eyrun, því
ofan á allt saman er ég með svo
þunnt og druslulegt hár, að það
hylur nú varla skallann, hvað þá
eyrun. Elsku Póstur, hvað á ég að
Sé málið svona alvarlegt, þá
ska/tu leita ráða hjá lækni. Hann
ætti að vera fær um að meta það,
hvort ástæða er til að gera aðgerð
og lagfæra þessi lýti. Það er hægt,
og vertu ekki feiminn við að leita
til læknis með þetta vandamál.
BRÁÐÞROSKA EÐA
SEINÞROSKA
Kæri Póstur!
Ég á við vandamál að stríða,
sem ég ætti kannski að ræða við
lækni, en ég þori það ekki. Svo er
mál með vexti, að ég hef alltaf
verið talin fremur bráðþroska. Ég
er frekar stór, og ég var farin að fá
brjóst, þegarég vará 11. árinu. En
nú er ég orðin 13 og hálfs árs, og
ég er ekki enn byrjuð á túr. Er það
ekki eitthvað undarlegt? Getur
10VIKAN 3. TBL.