Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 59
Við aettum nú að vera búin
að ná okkur eftir öll
veisluhöldin í kringum jól og
áramót og aftur til í að efna til
selskaps með kunningjum.
Svona á miðjum vetri er
tilvalið að bjóða upp á
eitthvað heitt að drekka, og
hér eru einmitt uppskriftir að
nokkrum heitum drykkjum,
sem gaman er að bjóða upp
á. Slíka drykki er einnig
tilvalið að sötra yfir sjónvarpi
á síðkvöldum, eða fá sér einn
slíkan eftir leikhús- eða
bíóferð, að við gleymum nú
ekki, hve notalegt getur verið
að fá eitthvað reglulega
yljandi eftir gönguferð eða
skíðaferð. Heitir drykkir geta
verið með eða án vínanda
eftir tilefninu. Flestir þekkja
orðið ,,glögg," sem er
þekktur drykkur á Norður-
löndunum, svo við látum það
standa óþýtt.
GLÖGG
Hægt er að kaupa það næstum
tilbúið á flöskum í sumum
verslunum. (þ.e. essensinn með
kryddinu), og þá er aðeins eftir að
bæta í það víni og vatni, eftir því
sem segir á flöskunni. En það
eru til margar uppskriftir af glöggi,
og hér koma nokkrar.
RAUÐVÍNSGLÖGG
1 flaska rauðvín
1/2 dl vatn
1/2 dl sykur
3 dl sólberjasaft
5 negulnaglar
1 tsk. heilar kardimommur
heill engifer
pommeranskall
1 appelsína
1 sítróna.
Þvoið og flysjið appelsínuna og
sítrónuna. Sjóðið vatnið með
hýðinu og kryddinu. Takið pottinn
af og bætið saftinni í. Pressið
sítrónu og appelsínu og blandið
með sykri, rauðvíni og kryddaða
soðvatninu. Látið blönduna
standa í einn sólarhring með loki.
Síið frá krydd og börk. Glöggið er
hitað, þegar á að neyta þess, en
það má alls ekki sjóða.
SKIPSTJÓRAGLÖGG
1 flaska ódýrt rauðvín
2 dl ítalskur vermút
2 dl sterkt vín (45%)
1 dl rúsínur
1 dl flysjaðar möndlur
5stk. kardimommur
4 negulnaglar
1 stk. heill kanill
1 tsk. pommeranskall.
Blandið vínið með kryddi, möndl-
um og rúsínum, og látið liggja í
yfir nótt. Hitið því næst blönduna
með sykri eftir smekk og setjið
vermút í. Að síðustu er sterka
vínið sett í varlega og kveikt í.
Potturinn borinn logandi inn til
gestanna.
Eldhús
Vikunnar
UMSJÖN:
DRÖFN
FARESTVEIT
RAUÐVlNSTODDÝ
Hitið rauðvín upp með sykri og
gjarnan dálitlu af sítrónusafa eftir
smekk og hellið í há glös, með
skeið í, svo glasið springi ekki.
Fyllið síðan með sjóðandi vatni í
þann styrkleika, sem hver og einn
vill hafa. Skemmtilegra er að nota
sítrónusneið í staðinn fyrir safann.
KRYDDAÐ RAUÐVÍNSTODDÝ
1 appelsína, heilir negulnaglar, 1
flaska rauðvín (ekki sætt), 3 dl
vatn, 2-3 dl sykur, rifið hýði af 1
sítrónu.
Stingið heilum negulnöglum í
appelsínuna og setjið í pott, ásamt
rauðvíni, sykri og rifnu sítrónu-
hýði. Látið vínið standa og
„trekkja" í nokkra tíma, setjið
vatn útí. Hitið drykkinn upp, svo
sykurinn leysist upp. Ef bera á
toddýið fram í potti eða skál, er
fallegt, að appelsínan með
negulnöglunum fái að fljóta í.
TEGLÖGG ÁN VÍNANDA
1 dl vatn
1 1/2 dl sykur
6 heilir negulnaglar
1 stk. kanill.
Allt soðið saman og látið bíða í 15
mín. Takið af hitanum og setjið
3-4 msk. af djúpfrystum appel-
sínusafa útí og safa af 2 sítrónum.
Á meðan er útbúið gott og sterkt
te úr 10 tsk. af telaufum og 1 lítra
af sjóðandi vatni. Hellið saman við
sykurlöginn og hitið að suðu.
Berið fram rjúkandi heitt.
BARNAGLÖGG
2 1 /2 dl sólberjasaft
1 lítri vatn, safi og hýði af 1
sítrónu, 25 g flysjaðar, saxaðar
möndlur, 50 gr rúsínur.
Allt soðið nema sítrónusafinn og
möndlurnar, þeim er bætt í síðast.
HEITUR EPLADRYKKUR
2 I eplasaft
20 rúsínur
1 tsk. kanill
rifið hýði af 1 sítrónu eða
appelsínu, sykur eftir smekk.
Allt nema sykurinn hitað fljótt upp
að suðu. Sykrað og borið fram
heitt.
„BISP"
1 flaska rauðvín,
safinn úr 2 appelsínum, rifið hýði
af 1 appelsínu og 1/2 sítrónu,
ca. 1 dl sykur.
Blandið öllu saman og látið standa
til næsta dags. Síið og hitið
gætilega að suðu, eða blandið
með sjóðandi vatni eftir smekk.
DANSKT GLÖGG
2 stk. heill kanill, 8 heilir
negulnaglar, 2 stk. kardimommur,
1/2 flaska ákavíti, 1/2 flaska
portvín, 50 g flysjaðar möndlur, 50
gr rúsínur, hýði af 1 /2 sítrónu, 100
g sykur, 2-3 flöskur rauðvín.
Þetta er stór uppskrift, eins og sjá
má. Brjótið kanilinn í smá bita og
setjið ásamt negulnöglunum og
kardimommunum í pott, hellið
ákavíti yfir. Lokið pottinum og
látið bíða í nokkra tíma. Setjið
þá portvínið, rúsínurnar og saxað-
ar möndlurnar útí, einnig sítrónu-
hýðið í smá bitum og sykurinn.
Hitið. Þá er rauðvínið sett í og
haldið áfram að hita, þar til
glöggið er mjög heitt, en það má
allsekki sjóða. Setjið sítrónuskífur
út í, þegar borið er fram.
EGGJASNAPS
6 eggjarauður
4 msk. sykur
3 msk. romm
3 msk. konjak, ca. 1 I heit mjólk,
þeyttur rjómi, múskat.
Þeytið eggjarauðurnar með sykr-
inum og hrærið rommi og konjaki
saman við. Setjið í glös eða bolla,
fyllið með heitri mjólk og hrærið í.
Skreytið með stífþeyttum rjóma,
og stráið múskati yfir.
ÍRSKT KAFFI
Búið til sterkt kaffi og stífþeytið 1
pela af rjóma. Hellið 1 skammti af
viskíi í hvert glas, og látið hvern
sykra fyrir sig með púðursykri. Að
lokum er vænn skammtur af
þeyttum rjóma settur ofan á í
hvert glas. Kaffið er síðan drukkið
í gegnum rjómann.
RÚSSNESKT SÚKKULAÐI
Bræðið ca. 30 g af súkkulaði í 3
1 /2 dl af vatni og setjið 1 /2 dl af
sykri saman við og 1/8 tsk. salt.
Hrærið og sjóðið gætilega í 5 mín.
Bætið 1 dl af mjólk og 1 dl af
rjóma saman við. Hitið upp aftur,
en nú má ekki sjóða. Að lokum er
sett 1 tsk. af vanillusykri og 4 dl af
rjúkandi nýlöguðu kaffi. Öllu
blandað saman og borið fram
strax, gjarnan með rjómatopp
ofan á hjá hverjum.
3. TBL. VIKAN 55