Vikan


Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 50

Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 50
Útúr líkaman Hefurðu nokkurn tíma reynt þá tilfinningu, að þú hafir yfirgefið líkama þinn? Fundist þú losna frá honum og geta skoðað hann utan frá rétt eins og þú horfir á annað fólk? Hefurðu farið i gegnum heila veggi og ferðast mörg þúsund mílur á nokkrum andartökum? Fjöldi fólks getur borið sliku vitni, en atburðir sem þessi hafa hlotið nafngiftina „S.álfarir.” Sjónvarpsmaður nokkur, Hughie Green að nafni, varð slíkri reynslu rikari, er hann lenti í bílslysi. Hann segir svo frá: ,,Um leið og ég kom hægt til meðvitundar, áttaði ég mig á því, að ég sveif yfir slysstaðnum og horfði á sjúkraliðana, sem drógu líkama minn varlega út úr bilflak- inu.” Mjög margir geta sagt frá einhverjum sérkennilegum atvikum, sem þá hefur hent, t.d. frú Lilian Vowles, sem býr í Bristol. „Þegar maðurinn minn var i herþjónustu i Vestur-Afríku í striðinu, var ég vön að yfirgefa likama minn og heim- sækja hann. Ég litaðist um í tjaldinu hans og skoðaði gjafir, sem hann hafði keypt til þess að færa mér. Þegar ég var komin aftur heim, gat ég svo skrifað honum bréf og þakkað honum fyrir allar gjafimar, sem ég myndi fá frá honum, þegar hann kæmi heim. Auðvitað kom honum þetta mjög á óvart.” Frú Elizabeth McLean frá Leeds skýrir svo frá sinni reynslu: „Ég yfirgaf likama minn og fór til Egyptalands, þar sem ég reikaði um grafhvelfingar. Þegar ég kom aftur til baka, sveif ég um stund yfir líkamanum, áður en ég skrapp inn í hapn aftur. Þetta var svo furðulegt atvik, að ég skrifaði hjá mér öll smáatriði, og þremur árum seinna ferðaðist ég til Egyptalands. Þá þekkti ég aftur alla staðina, sem ég hafði komið á, er ég fór sálförum, og allt kom heim og saman við það, sem ég hafði skrifað hjá mér.” „ÉG BERST Á MÓTI, AF ÞVÍ AÐ ÉG ER HRÆDDUR.” Maður nokkur frá Newport, Gwent að nafni, hefur gefiö mjög greinargóða lýsingu á sálförum: „Ég ligg í rúminu minu og er alveg að sofna, þegar ég fæ það á tilfinninguna, að eitthvað sé að gerast. Ég hef aldrei reynt að yfirgefa líkama minn og berst alltaf á móti því, vegna þess að ég hræðist það. Stundum sigra ég, og þá verður ekkert af sálförunum, en stundum tapa ég og svíf á braut. Ég líð út um gluggann og niður eftir götunni. Það skrítna er, að ég hreyfist hægt inni í svefnherberg- inu, en á örskotshraða utan þess og er kominn til Devon eða Cornwall á skammri stundu. Eitt sinn fór ég út í geiminn og gat horft niður í skýin og ljósin í stórborgunum.” Þetta eru furðulegar sögur — ekki satt? Hvaða skýringar er hægt að gefa? Enginn veit svarið. Sálförum hefur verið lýst i Egyptalandi, Indium, Kína og Tíbet frá ómuna- tíð, en sálkönnuðir — læknar, heilasérfræðingar og sálfræðingar SÁLKÖNNUÐIR Grein um yfirnáttúrlega atburði og fólk, sem reynir að finna lausnina á þeim. , ,Ég ligg í rúminu mínu að næturlagi og losna frá.... Ég fer út um gluggann og niður eftir götunni, stundum til Devon eða Cornwall, eða jafnvel út í geiminn.” Þessi maður er sálfari, sem hefur oft farið sálförum. Nú eru vísindamenn farnir að taka undarlega reynslu hans alvarlega. Eru til einhverjar skýringar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.