Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 20
hún mætti líta aðeins á garðinn og
gekk út um annan franska glugg-
ann og út á veröndina.
Hérna ættu að vera þrep,
hugsaði Gwenda, um leið og hún
gekk niður á grasflötina. En í
staðinn uxu þarna óræktarlegir
runnar.
Gwenda kinkaði kolli. Þessu
ætlaði hún að breyta.
Hún elti frú Hengrave og gekk út
að þeirri hlið verandarinnar sem lá
fjærst grasfletinum, og þar niður
lágu þrepin. Hún tók eftir því að
steinabeðið var vanhirt og þar
þurfti að umplanta.
Frú Hengrave tautaði afsakandi,
að garðurinn væri í hálfgerðri
vanhirðu. Hún hefði ekki efni á að
fá menn oftar en tivsvar í viku. Auk
þess kæmi það oft fyrir, að hann
mætti alls ekki.
Þær skoðuðu lítinn matjurtargarð
og fóru svo aftur inn í húsið.
Gwenda sagðist þurfa að líta á
önnur hús, og þótt henni geðjaðist
mjög vel að Hillside (en ófrumlegt
nafn), þó gæti hún ekki ákveðið sig
strax.
Frú Hengrave kvaddi hana, saug
upp í nefið og leit á hana allt að því
biðjandi.
Gwenda fór aftur til fasteigna-
'salanna, lagði fram ákveðið tilboð,
og eyddi því sem eftir var morguns
til að skoða sig um í Dillmouth.
Þetta var virkilega skemmtilegur
og gamaldags sjávarbær. Yst í
bænum var greinilega nýrri hlutinn,
þar voru nokkur nýtískuleg hótel og
nýbyggð einbýlishús. En staðsetn-
ing Dillmouth, með ströndina á
aðra vegu og hliðamar fyrir ofan,
hafði komið í veg fyrir að bærinn
stækkaði of mikið.
Eftir hádegisverðinn var hringt
frá fasteignasölunni og henni tjáð
að frú Hengrave hefði tekið
tilboðinu. Glöð í huga lagði Gwenda
af stað niður á pósthús og sendi
skeyti til Giles.
Búin að kaupa hús. Ástarkveðja,
Gwenda.
Nú verður hann forviða, hugsaði
Gwenda með sjálfri sér. Hann sér þá
að ég get heldur betur látið hendur
standa fram úr ermum.
2. VEGGFÖÐRIÐ
Það var liðinn einn mánuður og
Gwenda var flutt til Hillside.
Húsgögnin, sem frænka Giles hafði
átt, voru komin ogbúið að koma þeim
fyrir í húsinu. Þetta voru gömul en
alveg ágæt húsgögn. Gwenda seldi
tvo gríðarstóra skápa, en annað
hentaði ágætlega og komst vel fyrir
í húsinu. Það voru tvö smáborð
skreytt með skelplötum og máluð-
um myndum í stofunni, lítið
skatthol og skápur úr rósaviði og
mahóní-sófaborð.
Hinum svokölluðu hægindastól-
um skipti Gwenda niður í hin ýmsu
svefnherbergi en hafði hinsvegar
tvo þægilega stóla fyrir sig og
Giles, sem nú stóðu sitt hvorum
megin við arininn. Stóra Chester-
field sófanum hafði hún komið
fyrir nálægt gluggunum. Gwenda
hafði keypt gamaldags efni í
gluggatjöldin, fölbrátt með rósum
og gulum fuglum á. Henni fannst
herbergið nú vera alveg eins og hún
vildi hafa það.
Enn var þó ekki allt tilbúið, þvi
þetta geri ég
fvrirþig
Aðstoða við að orða auglýsingu þína,
ef þú óskar. Svara í síma fyrir þig.
Veiti fyrirspyrjendum upplýsingar
um það sem þú auglýsir og
tek við tilboðum sem berast.
Njóttu góðrar þjónustu ókeypis.
Opið til kl. 10 í kvöld.
BIAÐIÐ
Dagblaðið, smáauglýsingaþjónusta. Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022
20VIKAN 3. TBL.