Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 52
Á JÖKLI, HJÁ Á OG í BIFREIÐ
Kæri draumráðandi
Mig langartil að biðja þig um að
ráðafyrirmig þrjá drauma, sem mig
hefur dreymt óvanalega skýrt
undanfarið- Sá fyrsti er á þá leið,
að mér fannst ég vera uppi á jökli,
ásamt bekkjarfélögum mínum.
Ég, strákur, sem heitir S. og
stelpa, L., vorum komin lengst, en
hinir biðu fyrir neðan. S. var mjög
vel klæddur, en L. var í
stuttbuxum. Fannst mér við báðar
halda í hann, og vorum við að
skríða upp, en ég man ekki, hvort
við náðum toppnum eða ekki.
Annan draum dreymdi mig
sömu nótt. Fannst mér ég standa
við bognu brúna, sem er yfir
Þjórsá. Þá sá ég, hvar vinkona
mín, G., kom ríðandi úr áttinni frá
Reykjavík. Þegar hún kom að mér,
spuröi hún mig, hvar vaðið yfir
ána væri. Mér fannst vera mikið í
ánni. Nú, ég labbaði með hana á
eftir mér stuttan spöl upp eftir
ánni og kom þá að stað, þar sem
svo lítið var í ánni, að ég gat
auöveldlega klofað yfir. G., ennþá
á hrossinu, kom á eftir mér, og
fylgdi ég henni upp árbakkann en
hann var allur þakinn leðju.
Síðasta drauminn dreymdi mig
síðastliðna nótt. Fannst mér ég
og strákurinn, sem ég er með,
vera á ferðalagi einhvers staðar í
útlöndum. Við vorum á gulri
Cortinu, sem hann á. (Ég veit, að
þetta er mjög furðulegur draum-
ur). Á undan okkur var bíll, sem
vildi ekki hleypa okkur framúr
vinstra megin, svo að við fórum
framúr hægra megin. Varð
ökumaður hinnar bifreiðarinnar þá
mjög vondur og keyrði framúr
okkur á miklum hraða, og sá ég,
hvernig bensínnálin á okkar bíl
seig niður við það, og var næstum
ekkert bensín eftir. Við ákváðum
að snúa við og fara aftur til
þorpsins, sem við komum frá, og
kaupa meira bensín. Var þá fram-
undan mjög brött brekka, sem var
eins hvöss og hnífsegg efst.
Fannst mér þá sem N. opnaði
hurðina og berði á veginn. Við það
skelltist hurðin á höfuð hans, svo
að hann rotaðist, en bíllinn
þeyttist á gífurlegum hraða niður.
Ég gat nú einhvern veginn stýrt
bílnum og hægt á honum. Þá sá
ég bíl, sem var stöðvaður á
veginum, og voru allir að fara
framúr. Hirti fólkið ekkert um það,
þótt ég kæmi á móti, svo að ég
varð að sveigja bílinn út á kantinn
Mig
dreymdi
og stoppa. Sá ég þá, að í hinum
bílnum var stelpa, sem ég þekki,
en man ekki lengur hvað heitir.
N. lá ennþá rotaður inni í bílnum,
en stelpan sagðist mundu koma
og hjálpa mér. Ég fór aftur að
bílnum, og var N. þá að rakna úr
rotinu, en þá sá ég, hvar þessi
stelpa keyrði bara í burtu. Nú, við
héldum áfram og komum loksins
að þorpinu. Sá ég þá skilti, sem á
stóð nafn þorpsins. Hét það
„Höfnhöfnhöfn." Mjög mikið var
af bensínstöðvum þarna, svo að
ég vissi varla, hverja ég ætti að
velja. Þegar ég loks valdi eina, var
sett bensín á bílinn. Þegar komið
var bensín fyrir 2.229 krónur,
fannst mér einhver rödd, sem var
mjög fjarlæg, segja stopp, og var
þá ekki sett meira á. Þegar ég tók
upp budduna mína, sá ég, að ég
átti 2.500 krónur. Þegar hér var
komið sögu, var ég vakin. Með
fyrirfram þökk.
Inga
Fyrsti draumurinn er þér viðvör-
unarmerki um aö gæta þín á
öfundarmönnum þinum. Þú ert of
fijótfær í á/yktunum þínum, og
kemur það þér i/ia í kol/. Draumur
númer tvö er vinkonu þinni fyrir
góðu gjaforði, og henni mun
fy/gja gæfa og gengi. Þú átt eftir
að reynast henni vel og færð
hjá/psemi þína ríku/ega launaða.
Síðasti draumurinn er þér fyrir
fjárhagslegum gróða og góðri
atvinnu, sem þú munt hagnast
verulega á. Þú lendir bráðlega í
skemmtilegu ævintýri, og einnig
muntu fá fréttir af kunningja
þinum, sem þú hefur ekki frétt
lengi af. Það mun þó ekki vera
fyrir góðu að dreyma sig aka niður
brekku, svo sennilega mætið þið
N. einhverjum erfiðleikum innan
tiöar. Leiðindi munu koma upp á
vinnustað, en þau koma ekki til
með að bitna beinlínis á þér.
SONURINN NÆR
DRUKKNAÐUR
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi óþægilegan draum
fyrir um það bil viku, sem hefur
valdið méráhyggjum. Draumurinn
var þannig: Pabbi minn, mamma,
elsta systir mín og ég stóðum
einhvers staðar úti og vorum, að
tala saman, en sonur minn, sem er
5 ára, var nálægt okkur og var að
leika sér. Mér var síðan litið til
hans, og sá ég, að hann lá í
grunnum polli með andlitið upp í
loftið, og vatnið flaut yfir það.
Hann andaði ekki og var byrjaður
að blána í framan, og ég sagði við
fólkið: „Hann er dáinn." Ég hljóp
til hans og þreif hann upp og
hristi aðeins til, og gerði síðan
blástursaðferðina á honum, en
þegar ég var búin að blása
nokkrum sinnum, var komið líf í
hann aftur. Þá sagði pabbi, að það
væri í lagi með hann, því hann
bjargaði sér úr öllu. Fannst mér
einkennilegt hvað allir voru róleg-
ir, og að þeim skyldi ekkert finnast
til þess koma, sem skeð hafði.
Dódó.
Ekki þarftu að hafa neinar
áhyggjur vegna þessa draums, þvl
svo til ÖH tákn í honum eru þér til
góös. Þér verður sýndur óvæntur
vinsemdarvottur, og þú átt ham-
ingjusamt llf fyrir höndum. Líf
sonar þins verður mun /éttbærara
en álitið er nú, og hann mun
eignast marga raungóða vini. Þó
eru /íkur á, að hann muni eiga við
minni háttar veikindi aö striða, en
þau verða fljótlega úr sögunni og
eru ekkert til að hafa áhyggjur af.
Þið munuð eiga rólegt og gott llf.
Ég fæ ekki séð, að þessi draumur
snerti systur þína á neinn hátt, en
það er ával/t fyrir góðu að dreyma
systur sina.
BARNAVAGGA FULL AF
FLÖSKUM
Kæri draumráðandi,
Fyrir um það bil sex vikum
dreymdi mig draum, sem mig
langar að vita hvað boðar. Hann
er svona: Mér fannst ég vera
heima hjá afa og ömmu. Þá fannst
mér strákurinn, sem ég er með.
koma inn. Við skulum kalla hann
X. Hann var fullur og hélt á
brennivínsflösku. Hann var með
mörgum strákum, sem voru líka
fullir. Ég gekk til X og sagði: „Ef
þú ert að leita að mér, þá er ég
hér." Þá sagði hann: „Farðu, ég
vil ekkert með þig hafa, ég er
orðinn hundleiður á þér." Hann lét
mig fá bréf, og í því var
uppsögnin. Það stóð í bréfinu, að
ég ætti að skrifa honum og senda
bréfið heim til vinar hans. Ég var
mjög sár út af þessu. Svo fannst
mér ég vera komin heim, og þá
kom X aftur. Hann var ekki fullur
og kom með mörgum strákum á
gulbrúnum flottum fólksbíl. Vinir
hans voru að reyna að koma mér í
gott skap, en það þýddi ekkert,
því ég var svo sár út í X. Ég sá að
X var líka sár. Hann sagði ekkert,
horfði bara fram fyrir sig og vár
eins og hann væri að biðja mig
fyrirgefningar með augunum. Fyr-
ir framan fætur hans í bílnum var
barnavagga, sem var full af
brennivínsflöskum. Svo vaknaði
ég. Þakka fyrirfram birtinguna,
mér er það mikils virði, að þetta
verði birt. Ein berdreymin.
Þú verður að gæta þess að
heimska þig ekki og gæta vel að
framkomu þinni í hvívetna. Nú-
verandi áform þín munu heppnast
vel, og í viðskiptum muntu ná
miklum árangri. Þú færð óvæntar
fréttir, sem koma þér skemmtilega
á óvart. Þú verður fyrir sérstöku
happi, og sennilega verður það að
mestu leyti í ástarmálum þínum.
X. mun bíða lægri hlut í einhverju,
sem hann keppir að, en ósagt skal
látið, hversu náið samband ykkar
á eftir að verða.
VÖRTUR UM ALLT
Kæri draumráðandi
Mig langar að biöja þig að segja
mér, hvað vörtur merkja í draumi.
Mér fannst ég ætla að fara á ball,
þegar ég sá allt í einu, að ég var öll
í vörtum, og þá fannst mér ég ekki
geta farið. Ég var í hvítum og
bláum kjól, ef það hefur einhverja
þýðingu. Með þakklæti fyrir ráðn-
inguna.
P.L.
Að dreyma vörtur á Hkama sinum
er viövörun um að vera varkár
fyrst um sinn. Litir kjó/sins eru þér
fyrir góðu, hvíti liturinn boöar
bætta lífsaðstöðu og sá blái
hamingju.
48VIKAN 3. TBl.