Vikan - 25.05.1978, Blaðsíða 8
Prjónað á börnin
MITTISJAKKI MEÐ
RENNILÁS
Aldur: 2 (4) 6 ára
Efni: 5 hespur af hespulopa. 1
opinn rennilás.
Prjónar: nr. 5,6 og 6 1/2.
Prjónfesta: 7 lykkjur slétt prjón
= 5 sm á breiddina.
Brjóstvídd: 62 (66) 70 sm.
Sídd: 32 (34) 38 sm.
Ef aðeins ein tala er gefin upp
í uppskriftinni gildir hún fyrir
allar stærðirnar.
Bakstykki: Fitjið upp 44 (46) 50
lykkjur á prjóna nr. 5 og prjónið
snúning, 2 réttar 2 snúnar, í 5
sm. Ath. að stærð 2 ára byrjar
og endar á 3 réttum. Skiptið yfir
á prjóna nr. 6 og prjónið rétt á
alla prjóna, þar til stykkið er 17
(19) 21 sm. Skiptið á prj. nr. 6
1/2 og prjónið nú snúning (eins
og að neðan). Þegar stykkið er
19 (21) 23 sm, er fellt úr við
handveginn 3 (3) 4 1 í hvorri hlið
og síðan 2 — 1 — 1 lykkju = 30
(32) 34 lykkjur á prjónunum.
Þegar handvegurinn er 13 (14)
15 sm langur, á að fella af í
hvorri hlið 4—4 (4—5) 4—5
lykkjur. Síðustu 14 (14) 16
lykkurnar eru felldar af allar í
einu.
Hægra framstykki: Fitjið upp
22 (22) 24 lykkjur á prjóna nr. 5,
og prjónið snúning, eins og á
bakstykkinu. Skiptið yfir á
prjóna nr. 6 og prjónið rétt og
aukið út á fyrsta prj. um 2 (3) 3
lykkjur. Þegar stykkið er 17 (19)
21 sm, skiptið þið á prjóna nr. 6
1/2 og prjónið snúning. 1.
umferð (frá réttunni): 4 réttar, 2
snúnar, 2 réttar, 2 snúnar
o.s.frv. umferðina á enda. 2
umferð: Prjónið eins og
lykkjurnar sýna, nema síðustu
tvær lykkjurnar á að prjóna
réttar, og svo er gert alla leið
upp úr. Þegar stykkið er jafnlangt
bakstykkinu við handveginn er
fellt af eins og á því. Þegar
handvegurinn er 9 (10) 11 sm er
fellt af við hálsmálið 5 (5) 6
í 17. tbl. birtist uppskrift af hlýrri útipeysu á
börn, einni af því taginu, sem þolir slark. Hér
erum við hins vegar með öllu fínlegri peysur á
börnin, en þó ákaflega einfaldar og auðunnar.
Eindregið skal ráðlagt að prjóna prufu, áður en
byrjað er á flíkinni sjálfri, og athuga sér-
staklega, að prjónfesta sé sú sama og upp er
gefin.
lykkjur og síðan 2—1—1. Þegar
stykkið er eins langt og
bakstykkið, er fellt af við öxlina
eins ogá því.
Vinstra framstykki: Er prjónað
eins og hægra stykkið nema
umsnúið, og gætið vel, að þau
verði jafnlöng, svo að snúnings-
kantarnir passi saman.
SÍÐ JAKKAPEYSA
MEÐ HÚFU
Aldur: 2 (4) 6 ára.
Efni: 7 (7) 8 hespur af hespu-
lopa. 5 hnappar.
Prjónar: Nr. 5,6 og 6 1/2.
Prjónfesta: 7 lykkjur slétt
prjón = 5 sm á breiddina.
Brjóstvídd: 62 (66) 70 sm.
Sídd: 42 (46) 50 sm.
27 (30) 33 sm og prjónið þá
snúning og takið svo úr við
handveginn eins og á bakstykk-
inu. Þegar handvegurinn er 9
(10) 11 sm er fellt úr við háls-
málið 2 (3) 4 lykkjur og síðan
1 — 1—1 lykkja. Þegar handveg-
urinn er jafnlangur bakstykk-
inu, er fellt af við öxlina eins og
á því.
Vinstra framstykki: Eins og
hægra stykkið nema umsnúið,
og gætið þess vel, að stykkin séu
jafnlöng, svo að snúnings-
kantarnir mætist rétt.
Ermar og kragi eru prjónuð eins
og á mittisjakkanum hér á
undan.
2 vasar: Fitjið upp 18 lykkjur á
prjóna nr. 6 og prjónið snúning,
2 réttar 2 snúnar, í 12 sm.
Ermar: Fitjið upp 26 (26) 30
lykkjur á prjóna nr. 5 og prjónið
snúning í 6 sm. Skiptið á prjóna
nr. 6 og prjónið rétt og aukið út
1 lykkju í hvorri hlið 6. hvern
prjón, þar til 32 (36) 38 lykkjur
eru á prjónunum. Þegar ermin
mælist 26 (29) 32 sm — eða eins
og þið viljið — á að fella af í
hvorri hlið 2 — 3 lykkjur, og
síðan á að prjóna 2 lykkjur
saman annan hvorn prjón, þar
til 16(18) 18 lykkjureruá prjón-
unum. Fellið nú af í hvorri hlið
2-3 lykkjur og síðustu lykkjurn-
ar eru felldar af allar í einu.
Kragi: Fitjið upp 50 (50) 54
1. á prj. nr. 5 og prj. snúning í 4
sm. Skiptið á prjóna nr. 6 og
haldið áfram með snúning, þar
til kraginn er 8 (8) 9 sm. Fellið
laust af.
Frágangur: Pressið laust yfir
berustykkið, saumið hliðar-axla-
og ermasauma með aftursting.
Saumið kragann á og takið laust
í, sá hluti kragans, sem er pr-
jónaður með prjónum nr. 5, er
saumaður við hálsmálið. Saumið
rennilásinn við í höndunum.
Ef aðeins ein tala er gefin upp
í uppskriftinni, gildir hún fyrir
allar stærðirnar.
Bakstykki: Fitjið upp 54 (58) 62
lykkjur á prjóna nr. 6 og prjónið
rétt á alla prjóna. Fimmta hvern
sm í hvorri hlið eru prjónaðar
tvær lykkjur saman, þar til 44
(46) 50 lykkjur eru á prjón-
unum. Þegar stykkið mælist 27
(30) 33 sm, er skipt á prjóna nr.
6 1/2 og prjónaður snúningur, 2
réttar, 2 snúnar. Ath.: Á stærð 2
ára er byrjað og endað með 3
réttum. Þegar 2 sm eru prjón-
aðir, er fellt af í hvorri hlið við
handveginn 3 (3) 4 lykkjur og
síðan 2—1 — 1 lykkjur = 30 (32)
34 lykkjur á prjónunum. Þegar
handvegurinn er 13 (14) 15 sm
er fellt af í hvorri hlið 4—5 (4—
5) 4—5 lykkjur. Síðustu lykkj-
urnar 14 (14) 16 eru felldar af
allar í einu.
Hægra framstykki: Fitjið upp.
25 (28) 30 lykkjur á prjóna nr. 6
og prjónið rétt. Eins og á
bakstykkinu, eru prjónaðar 2
saman í hliðinni, þar til 20 (22)
24 lykkjur eru á prjónunum.
Haldið áfram, þar til stykkið er
Frágangur: Takið upp 56 (60)
62 lykkjur á vinstri boðung og
prjónið snúning í 3 sm. Prjónið
eins hægra megin, nema þegar 1
sm. er prjónaður að líningunni
þá eru prjónuð inn 5 hnappagöt.
Það efsta 2 sm frá hálsmálinu,
hin með 6 (7) 7 sm millibili.
Hnappagatið er prjónað með því
að fella af tvær lykkjur og fitja
þær síðan upp á næsta prjón.
Pressið berustykkið og kragann
létt og saumið flikina saman.
Húfa: Fitjið upp 58 (62) 62
lykkjur á prjóna nr. 6 og prjónið
snúning, 2 réttar 2 snúnar, í 12
sm. Síðan prjónið þið rétt í 13
(14) 15sm. Fellið jafntaf, svo56
lykkjur verði eftir. Prjónið svo á
eftirfarandi hátt: 1. umferð: + 6
réttar, 2 réttar saman + endur-
takið frá + til + út prjóninn.
Prjónið næstu umferð rétt.
Næsta umferð: + 5 réttar 2
réttar saman + endurtakið frá
+ til +. Haldið þannig áfram
að taka úr í annarri hverri
umferð og alltaf einni lykkju
minna á milli úrtökunnar. Þegar
ein lykkja er á milli, er garnið
slitið frá hespunni og þráðurinn
dreginn í gegnum með því að
prjóna tvær og tvær saman.
8VIKAN 21. TBL.