Vikan - 25.05.1978, Side 42
BÍÓIN í REYKJAVÍK III. HLUTI
Stœrsti
danssalur
í bœnum
Arið 1940 veitti bæjarstjórn
Reykjavíkur háskólanum
umbeðið leyfi til rekstrar
kvikmyndahúss, en grundvöllur
slíkrar starfsemi hafði þá um
skeið verið til athugunar til
fjárfestingar sjóða skólans.
Þegar víst var orðið, að ekki
yrði unnt í bráð að koma upp
húsi til kvikmyndareksturs,
sótti háskólaráð um það til
bæjarstjórnar, að fá á leigu í
því skyni hús, sem Reykja-
víkurbær átti í Tjarnargötu
10 D og áður hafði verið notað
til ísgeymslu. Samþykkti
bæjarstjórn að leigja háskól-
anum húsið og hófst vinna við
breytingar þar í nóvember
1941. Kvikmyndahúsið tók
síðan til starfa 8. ágúst 1942 og
fékk nafnið Tjarnarbíó. Tók
það 387 manns í sæti, 143 á
svölum og 244 niðri. Þrjú verð
voru á aðgöngumiðum:
Tjarnarbíó
Lady Hamilton
Aðallilutverk:
VIVIAN LEIGH
o g
LAURENCE OLIVIER
Sýnd kl. 6 og 9.
Aðp;öngnmiðasa’a hefst
lclukkan 3.
Ekki tekið á móti pöntun-
uin í síma.
Árið 1958 var hafin bygging
nýs kvikmyndahúss á vegum
Sáttmálasjóðs við Hagatorg,
og var próf. Alexander
Jóhannesson formaður
byggingarnefndar. Arkitektar
voru Guðmundur Kr.
Kristinsson og Gunnlaugur
Halldórsson. Mjög var vandað
til hússins og fengin í það hin
fullkomnustu sýningartæki,
sem völ var á. Áhorfendasalur
var þannig úr garði gerður, að
hann er stærsti og fullkomnasti
hljómleikasalur landsins enn
þann dag í dag. Loft og veggir
eru steypt í fellingum, og í
Almenn sæti niðri: kr. 1,50,
betri sæti niðri: kr. 2,25. Öll
sæti á svölum: kr. 3.
Fyrirtækið var eign Sáttmála-
sjóðs.
Frá ársbyrjun 1943 var
kosin sérstök stjórn fyrir
Tjarnarbíó, en hana skipuðu
þrír menn, kosnir af háskóla-
ráði. Framkvæmdastjóri var
fyrst próf. Pétur Sigurðsson
háskólaritari til ársins 1949, en
þá tók við Friðfinnur Ólafsson
viðskiptafræðingur og hefur
hann gegnt því starfi síðan.
Rekstur Tjarnarbíós reyndist
Sáttmálasjóði happadrjúgt
fyrirtæki. Nam hreinn
hagnaður af rekstrinum frá
upphafi til ársloka 1960 10, 2
milljónum króna. Á sama tíma
greiddi bíóið 4,1 millj. í Sátt-
málasjóð, 4,4 millj. í opinber
gjöld og skatta, og lagði fram 5
milljónir í byggingarsjóð nýs
kvikmyndahúss.
Háskólabió. (Myndin er tekin um
það leyti, sem húsið var vigt.).
Tjarnarbíó. Þar er nú starfræktur
1 kvikmyndaklúbburinn Fjala-
kötturirm.
Fyrsta auglýsing frá Tjamarbiói.
42VIKAN 21. TBL..