Vikan - 25.05.1978, Page 57
Gott fyrir
þreytt
bak
Hér eru æfingar, sem hægt er að
gera rólega og letilega. Þær eru
góðar að kvöldinu til, þegar þú
ert hætt vinnu og ert þreytt í
bakinu, kannski of þreytt til að
geta hvílt þig.
hálsinn rólega aftur. Myndaðu
sveigju, sem þú finnur fyrir í
hryggvöðvunum.
Skiptu milli æfingar 2 og 3 og
hvíldu í æfingu 1.
Amerískur í
gegn
1. Þú leggst á fjóra fætur,
þannig að armar og læri séu lóð-
rétt. Snúðu höndunum dálítið til
hliðar, ef þér finnst þreytandi að
halda örmunum lóðréttum.
Höfuðið á að hanga niður.
2. Skjóttu hryggnum upp, eins
Hngt og þú kemst og þar til
höfuðið hangir niður á milli
arrnanna.
3- Lyftu höfðinu og beygðu
Hér er uppskrift af ekta amerisk-
um hamborgara, eins og hann er
búinn til-í Ameríku. Hann er
stór, bragðast mjög vel, er fljót-
lagaður, og svo er hann líka
saðsamur. Borinn fram með
tómat- eða chilisósu, súrum
agúrkum og ef til vill skál af
grænu salati.
Tvöföld kjúklingasamloka
1 kaldur, steiktur eða soðinn
kjúklingur
8 skífur samlokubrauð eða form-
brauð
smjör
salatblöð
2 tómatar
mæjones
franskbrauð
sítrónusafi
salt
8-12sneiðar beikon.
Skerið kjúklinginn í þunnar
sneiðar (best að nota bringuna).
Ristið brauðið, skerið skorpuna
af því og smyrjið með smjöri.
Ofan á látið þið salatblöð,1 2
síðan kjúklingasneiðarnar,
mæjonesið, sem þið hafið
kryddað létt með frönsku
sinnepi, sítrónusafa og salti. Þar
næst tómata í sneiðum og harð-
steiktar baconsneiðar. Svona
leggið þið samlokurnar saman,
en þessi uppskrift er ætluð 4.
600 gr hakkað nautakjöt
1 egg
1/2 dlvatn
2- 3 msk. tómatpuré
tómatsósa eða chilisósa
salt / pipar
smjör
4 hamborgarabrauð
3- 4 tómatar
1 laukur
salatblöðístrimlum.
Hrærið kjötið með eggjum,
vatni, tómatpuré, chilisósu, salti
og pipar. Mótið í 4 stór buff og
steikið þau á pönnu — 2-3 mín.
á hvorri hlið eftir þykkt þeirra.
Kljúfið hamborgarabrauðið í
tvennt, smyrjið það með smjöri
og ristið létt á pönnunni. Leggið
síðan brauðin utan um buffin,
þunnar sneiðar af tómötum,
lauk og salati.
21. TBL.VIKAN 67