Vikan - 25.05.1978, Qupperneq 61
IVgSE
Hárspbngin er úr skíra gulli og eftir að hafa
starað ráðvilltur um stund á hana, rennur
skyndilega upp Ijós fyrir varðmanninum.
Eyðimerkurprinsinum Assur tekst að yfir-
buga hinar fögru dætur prins Valíants, og
hefur þær á brott með sér.
Þegar flokkurinn fer út um borgarhliðin,
tekst Valetu að losa hárspöngina og kasta
henni til varðmannsins,, „Prins Valíant,"
heyrir hann að hún hrópar.
Prins Valíant stirðnar upp, þegar hann fréttir af ráninu á dætrum sínum.
„Engan æsing," segir hann við sjálfan sig. „Nú verður þú að finna ráð, áður
en reiðin nær yfirhöndinni."
Þegar hann stendur fyrir framan menn sína, er hann kaldur og ákveðinn, og
ráðagerðin tilbúin. Hann velur með sér tvo menn, sem gjörþekkja eyði-
mörkina og hættur hennar.
Karen varðist grímmilega áður en hun var
yfirbuguð, Þar tekst henni að binda skikkju
fangavarðar síns við söðulinn.
Síðan fylgist hún ánægð með því hve
hrapalega honum tekst að komast niður af
hestinum.
10-30
© King Features Syndicate, Inc., 1977. World riRhts reserved
Assur ríður í gegnum eyðimörkina, með hina
fögru Valetu fyrir framan sig. Aldrei hefur
nokkur stúlka litið á hann með þvílíkri
fyrirlitningu.