Vikan


Vikan - 22.06.1978, Page 7

Vikan - 22.06.1978, Page 7
allt með hálfgerðu gamni, en öllu gamni fylgir nokkur al- vara. Svo hvað á ég að gera? Ég þon ekki að tala við hann, nema ég sé létt, og þá veit ég að ég bráðna, þannig að ég þori ekki að segja neitt. Greyið mitt gráa, hjálpaðu mér! Ég er alveg úrrœðalaus I þessu tilfelli. Mér finnst einhvernveginn eins og hann hlæi bara að mér (náttúrulega veit ég ekkert um það, ég þori ekki að líta framan í hann!) En þú verður að finna lausn. Jæja, ég verð að hætta þessu þvaðri, þú ert örugglega búinn að fá nóg af öllum þessum bréfum um ástarsorgir, en hér færðu nú samt eitt í við- bót, og það SKAL fá viðtöku, því ég trúi ekki á Helgu!! Ann- ars er helv ... gaman að skrifa þér, kannski ég skrifi þér ein- hvern tíma aftur, þegar fleiri vandamál eru á döfinni. Afsak- aðu svo alla svigana og skrift- ina máttu afsaka líka. Hvað lestu úr henni? Jæja, ég kveð þig þá I bili. Sjáumst!! Ein pennaglöð P.S. Annars fmnst mér þú vera alveg frábær, þegar þú ert að svara sumum bréfum, þú ert svo úrræðagóð(ur). Hefur þú engin vandamál? Geturðu þá leyst þau? Hvað er ég gömul? Blessuð vertu ekki svona feimin við hann!! Hann er ábyggilega jafn skotinn í þér og þú ert í hon- um, og svo sitjið þið sitt í hvoru horni og látið ykkur leiðast!! Drifðu þig í að tala við hann, þú getur ekki tapað á því. Ef hann er dónalegur og leiðinlegur, þá verðurðu bara að sætta þig við að þú sért búin að missa hann, og leita þér að öðrum! Ég veit það er hægara sagt en gert, en það þýðir ekki að syrgja það, sem maður getur ekki fengið. Þú kemst örugglega yfir hjartasorg- ina, fyrr en þig órar fyrir, ef hann vill þig ekki, sem enginn er kominn til með að segja, og þá alls ekki Pósturinn. Þér er alveg óhætt að trúa á Helgu, því Helga er sko til, og er búin að vera til lengi, og ætlar sér að vera í sínu starfi áfram!! Hins vegar tekur hún ekki á móti vel skrifuðum, kurteislegum og und- irrituðum bréfum, þau eru alltaf birt. Svo þakkar Pósturinn að sjálfsögðu allt hólið, og mikið er ég feginn að vita að einhver hefur áhyggjur af mér!! Jú, Póst- urinn hefur nefnilega við fjölda- mörg vandamál að glíma, sem hann ræður engan veginn fram úr, og hefur engan Póst til að leita ráða hjá! Má ég kannski skrifa þér???! Þú þurftir ekki að afsaka skriftina, hún er mjög góð og ber með sér að þú sért sérstaklega glaðlynd og elsku- leg stúlka, .... sem reynir þó að breiða yfir vandamálin með smágamni!! (Var ég ekki sniðug- ur þarna?!) Ég tel að þú sért í það minnsta 17—18 ára. Heyrðu! Þú segir: „Sjáumst!” Þá verður þú sú fyrsta, sem SÉR Póstinn!! Hvað þýða þessi nöfn? Kœri Póstur! Geturðu sagt mér hvað nöfn- in Dómhildur og Þjóðbjörg þýða? Með fyrirfram þakklæti. H. Nafnið Dómhildur merkir val- kyrja, sem dæmir, en Þjóðbjörg þýðir mikil hjálp. Pennavinir Mrs. M. E. Combridge, 10 the Quadrant, Hassocks, Sussex BN6 8BP, England . Rúmlega sextug ensk ekkja, sem er einmana og vill gjarnan kynnast íslendingum. Hún segist vera ung í anda. Áhugamál eru frimerkja- söfnun og póstkortasöfnun, lestur og garðyrkja og hefur einnig áhuga á tónlist, þótt hún leiki ekki sjálf á hljóð- færi. Hún óskareinnigeftir pennavinum Snæborg Þorsteinsdóttir, Foldahrauni 40, 900 Vestmannaeyjum, óskar eftir að skrifast á við stráka á aldrinum 13-15 ára. Er sjálf 13 ára. Áhugamál margvísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. S. Eiriksson, Box 95, Canberry Portage, Manitoba, ROB OHO, Canada, (Sigurjón). Ungur kanadamaður, sem óskar eftir að skrifast á við íslenskar stúlkur. Hann hefur i huga að ferðast til Skandinaviu, og jafnvel setjast að þar. Áhugamál hans eru menntun, bygging bjálkahúsa og þjóðfélagsfræði. Varahlutaþjónusta Spítalastíg 8, sími 1466L pósthólf 671 VERÐ FYRIR ALLA TEEE^ ERISTAIL Laugaveg 15 “St 14320 Winther vinsælustu og bestu þríhjólin 25. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.