Vikan - 22.06.1978, Blaðsíða 37
Bláa nœlan
„Já, þakka þér fyrir.” Steve þrosti til
Maggie og kinkaði kolli i átt til glugga-
hleranna. „Á Dick Evans vinur þinn
annríktnúna?”
„Ekki býst ég við því. Eftir hljóðinu
að dæma er verið að færa til húsgögn.
Evans getur ekki gert það, er það nokk-
uð?”
„Það er fátt, sem hann ekki getur,
annað en að ganga. Ertu ekki búin að
sjá, hvað handleggir hans og axlir eru
sterklegar?”
„Jú, ég veit það,” sagði hún. „En
Steve — skilaði frú Bates þér lyklinum
aðíbúðinni?”
„Það hugsa ég,” sagði Steve. „Hún
setur hann yfirleitt í stóra vasann I búð-
inni, þegar hún er búin að þrifa. Á ég að
aðgæta það?”
„Nei, þetta er allt i lagi,” svaraði
Maggie. „Mér datt þetta bara í hug.”
„Hún kemur þá með hann næst, ef
hún er ekki búin að skila honum. Hún er
fyllilega heiðarleg.”
Þegar Maggie og Ross óku af stað,
spurði Ross hvasst: „Skil ég það rétt, að
Steve Rennie hafi lykil að íbúðinni?”
Hún hló. „Ekki beinlínis, ástin mín.
Hann geymir lykil fyrir Donnu, þvi hún
er svo skæð með að Iæsa sig úti.”
„Ég hefði haldið, að hún léti Jules
geyma lykilinn fyrir sig.”
„Jules býr ekki lengur yfir búðinni,
Ross. Dick Evans gerir það, og ég get
ekki ímyndað mér, að hún kæri sig um
að geyma lykil hjá honum. Steve er
miklu nærtækari.”
„Einum of nærtækur,” urraði Ross.
Hann hélt áfram að tauta um Steve,
þar til hann neyddist til að einbeita sér
að akstrinum vegna mikillar umferðar.
Í^AU voru svo heppin að fá autt
borð i eftirlætisveitingahúsinu sínu, og
þegar þjónn fylgdi þeim að því, tók
Maggie eftir þvi, hvað maðurjhennar var
þreytulegur. „Þú hefur lagt of hart að
þér við vinnuna, elskan mín," sagði hún,
þegar þjónninn var farinn.
„Þvæla,” svaraði Ross.
„Mundu, að ég er konan þin. Mér
leyfist að segja, að þú sért þreytulegur.”
„Ég gleymi þvi ekki eitt andartak, að
þú sért konan mín,” sagði hann stífur.
En þú?”
„Ég man það líka, Ross, og mér líkar
það ekki, þegar þú ert í burtu. En...”
„En hvað?”
„Ég finn til sektarkenndar, þegar ég er
að vinna, og enn meiri sektarkenndar,
þegar ég er ekki að þvi. Æ, ég veit,
hvernig þér líður...”
Maggie lyfti hendinni þegar eiginmað-
ur hennar lyfti brúnum og bjóst til að
segja eitthvað.
„Ég veit, að þú ætlar að segja, að það
sé ekki nauðsynlegt fjárhagsins vegna,
að ég vinni. Það er auðvitað alveg satt,
en veðskuldin okkar er mikil, og þegar
við setjum á stofn fjölskyldu, þá ætla ég
að hætta að vinna í nokkur ár að
minnsta kosti. Þá verða útgjöldin meiri
en nú, og þess vegna er þetta tímabært.
Og,” bætti Maggie hreinskilnislega við,
„ég hef mjög gaman af vinnu minni.”
Ross andvarpaði og sagði: „Ég veit
það.” Hann fór að lesa matseðilinn.
Á meðan þau snæddu, sagði hann
henni frá þeirri auknu ábyrgð, sem
stöðuhækkunin i Hollandi hefði i för
með sér. „Það er ekkert ákveðið enn,”
sagði hann með áherslu — og flýtti sér
svo að skipta um umræðuefni.
„Segðu mér frá Donnu og Jules,”
sagði hann. „Jules hefur ekki farið með
henni, því ég sá hann fara inn í búðina
sina í morgun. Hann virtist vera að gera
það gott eins og venjulega.”
„Já, ég held, að það sé rétt, en ég kann
samt ekki vel við hann.”
„Persónulega eða Donnu vegna?”
„Hvort tveggja. En hann hefur samt
gert góðverk á Dick Evans.”
Maggie sagði honum frá starfi Evans
sem skartgripahönnuðar og frá íbúðinni,
sem sagt var, að Jules hefði búið út fyrir
hann. Hún bætti við: „Steve segir, að
Jules finnist sér að einhverju leyti vera
að kenna um meiðsli hans. Þeir voru víst
að drykkju saman kvöldið fyrir slysið.
Honum finnst, að hann hefði átt að
koma i veg fyrir, að Evans tæki þátt í
kappaksturskeppninni.”
„Það hefði sjálfsagt enginn getað
stöðvað hann,” sagði Ross. „Ég hef
heyrt, að Evans hefði orð á sér fyrir að
vera kærulausari en kappakstursmenn
— Hundinum líður ekki sem best.
— Honum þykir
grænmeti gott,
en að öðru leyti
er hann gáfaður!
ca. kr. 3.450.000.-
ALLT ÞETTA ER INNIFALIÐ I VERÐI:
Upphituð afturrúða, tauáklæði, bólstrað stýri, höfuðpúðar,
5 girar, öryggisstýri stillanlegt, tveggja hraða þurrkur
teppi, klukka, snúningshraðamælir, þjófalás á stýri,
stillanleg bök á framsætum, olíuþrýstimælir, hitastokkar
afturí, fjögur Halogenljós, tvöfaldir hurðaþéttilistar.
Fullkomin ryðvörn, skrásetning og fullur af bensíni.
LANCIA BETA er framhjóladrifinn. Diskabremsur
á öllum hjólum. 4ra dyra, rúmgóður 5 manna bíll.
LANCIA BETA BÝÐUR AÐEINS ÞAÐ BESTA:
Orku, þægindi, öryggi og lágan
rekstrarkostnað. LANCIA BETA er þvi sannarlega
boðlegur þeim sem gera kröfur.
Hljóð- og hitaeinangrun er milli vélar og
farþegarýmis, því er billinn sérlega hljóður í
keyrslu. Ný gerð mæla og mattsvart mælaborð.
Árangur LANCIA í Rall keppnum er í
sérflokki. Nú heimsmeistari í World Rally
Championship, hvert árið á eftir öðru.
IIIanciaBB
'Su““^ BJÖRNSSON ACO
BÍLDSHÖFÐA 16 — SÍMI 81530
zo. I BL. VIKAN 37