Vikan


Vikan - 22.06.1978, Qupperneq 15

Vikan - 22.06.1978, Qupperneq 15
,Hú» víð Laugavag". Svört merkikrít 1972. ,Vor við Dalvik". Svört merkikrít 1967. — Fjölbreytnin er orðin mjög mikil og það er gott og æskilegt. Sama máli gegnir um fjölda listamanna. Sú afstrakt einangr- un, sem hér ríkti á tímabili, er ekki lengur fyrir hendi. Það er unnið hér að myndlist á breiðum grundvelli og það vona ég að geri hana betri, þegar á heildina er litið. Það er gróska í íslenskri myndlist og ég hef álit á unga fólkinu, sem vinnur að henni. — Er uppbyggjandi að kenna myndlist? — Mér finnst það mjög gott. Fólkið, sem ég kenni í Myndlistarskólanum í Reykjavík, er á öllum aldri og yfirleitt ágætis félagar. Hins vegar fékkst ég við barnakennslu í tvo vetur og það var puð. Timinn fór að mestu í það að halda uppi aga og fá frið handa þeim, sem höfðu áhugaánáminu. — Svo hefurðu fengist talsvert við upp- setningar á sýningum? — Já, ég hef verið lengi í sýninganefnd Félags islenskra myndlistarmanna og þá lendir maður i því að hengja upp sýningar. Það getur oft verið gaman, sérstaklega ef maður hefur rúman tíma. Stundum er tím- inn svo naumur, að þetta verður hálfgert kapphlaup. En mér finnst gaman að um- gangast málverk og myndir yfirleitt. — Leggurðu áherslu á einhvern sérstak- an boðskap i verkum þínum? — Nei, það held ég að ég geti ómögu- lega sagt. Þetta eru ekki áróðursmyndir, þótt mörgum detti það kannski í hug, þegar þeir sjá þessar myndir, þar seTm ég tefli vél- um á móti náttúrunni. Ég er ekki að mót- mæla vélum í sjálfu sér, heldur aðeins að sýna samspil þeirra og náttúrunnar. Þetta er meira í þá átt, að skrásetja staðreyndir. Aðrir verða svo að dæma útkomuna. — Hefurðu þá aldrei málað áróðurs- verk? — Ég man eftir einni mynd, sem ég mál- aði í sambandi við sýningu í tilefni her- námsandstæðingadags. Það er eina mynd- in, sem ég man eftir að hafa málað í slikum tilgangi. AÐ KEPPA VIÐ SJÁLFAN SIG — Að hverju stefna listmálarar? — Ég hugsa að það sé nú ákaflega mis- jafnt. Sumir stefna að heimsfrægð, eins og t.d. Erró, sem hefur náð því marki, en ég er nú ekki í þeim hugleiðingum. íslenskir list- málarar stefna sennilega að því að verða viðurkenndir póstar í íslenskri myndlist og allir heiðarlegir málarar keppa við sjálfa sig á meðan ævin endist. Viðurkenning er auð- vitað mjög æskileg fyrir alla listamenn. — Gætirðu hugsað þér að hætta að mála? — Nei, ekki á meðan ég sé eitthvað, sem er þess virði. Hins vegar gæti alveg hvarfl- að að mér að steinhætta, ef svo færi. Sumir virðast halda áfram eins og af gömlum vana og það tel ég ekki æskilegt hlutskipti. — Ferðastu mikið um til þess að fá inn- blástur? — Ekki beinlínis til þess að fá mótíf. Ég ferðaðist mikið um landið, þegar ég var í brúarvinnu og vegavinnu hér á árunum. Aðallega hef ég samt ferðast um Þingeyjar- sýslu og Aðaldal, umhverfis æskustöðvar mínar. Innblásturinn, eða hvað við eigum að kaUa það, byggist á nýjum sjónarhorn- um og að sjá hlutina í nýju ljósi. — Eru Þingeyingar merkilegri en fólk í öðrum landshlutum? — Ég held að þeir séu kannski stoltari en aðrir. Þeir hafa visst stolt fyrir sitt hérað. Ég held líka að þeir séu almennt víðsýnni og betur að sér á breiðum grundvelli. Ekki eins sérhæfðir og margt fólk hér í Reykja- vík. — Hvenær heldurðu næst sýningu? — Það tekur alltaf tvö til þrjú ár að safna í sýningu, svo ég reikna með því að ég sýni næst 79 eða ’80. — Heldurðu sérstaklega upp á eitthvert verka þinna? — Það get ég ekki sagt. Það eru svona eitt eða tvö verk á ári, sem mér finnst skera sig úr. Maður er alltaf dálítinn tíma að meta eigin verk, en í gegnum árin eru alltaf nokkur verk, sem mér finnst betri en önn- ur. A.Á.S. 25. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.