Vikan


Vikan - 22.06.1978, Side 20

Vikan - 22.06.1978, Side 20
Framhaldssaga eftir » Sidney Sheldon: Andlit bráðlega. Og árásarmaður hans myndi reyna að tryggja sér fullan árangur. Yfirþjónninn kom aftur. „Herra Bovd getur tekið á móti yður núna. Hann visaði Judd upp í smekklega búið vinnu- herbergi, og dró sig síðan hæversklega í hlé. Boyd sat og skrifaði við skrifborð sitt. Hann var fallegur maður, með hvassa finlega andlitsdrætti, arnarnef og nautnalegan stóran munn. Hár hans var Ijóst og liðað. Hann reis á fætur, þegar Judd kom inn. Hann var hávaxinn, brjóst hans var eins og á fótboltaleik- ara, Judd datt i hug lýsing sín á morðingjanum. Hún átti við Boyd. Judd óskaði þess innilega. að hann hefði skilið eftir skilaboðtil Angeli. an gnmu Sá sem tók hana upp gat mótað úr henni fagra styttu — eða banvænt vopn. Spumingin var. Hver tók hana upp síðast? Don Vinton? Judd reis á fætur. „Fyrirgefðu." sagði hánn. Hann gekk út úr bleikri ibúðinni. Bruce Boyd bjó i húsi við umbyggða bakgötu skammt frá almennings- garðinum i Greenwich Village. Filipp- eyskur yfirþjónn í hvítum jakka lauk upp. Judd nefndi nafn sitt. og var boðið að biða í forsalnum. Yfirþjónninn hvarf. Tiu minútur liðu, síðan fimmtán. Judd reyndi að hafa hemil á gremju sinni. Ef til vill hefði hann átt að segja Angeli, að hann ætlaði hingað. Ef kenning Judds var rétt, þá yrði næsta morðtilraun mjög Rödd Boyds var mjúk og fáguð. „Afsakið að ég lét yður biða, dr. Stevens," sagði hann vingjarnlega. „Ég er Bruce Boyd.” Hann rétti fram hönd sina. Judd rétti fram höndina til að heilsa. og Boyd gaf honum kjaftshögg með stál- hnefa. Höggið kom algerlega á óvart, og aflið, sem lagt var í það, þeytti Judd utan í standlampa, sem hann felldi með sér niðurágólf. „Fyrirgefið, læknir,” sagði Boyd, og leit niður á hann. „Þér áttuð þetta skilið. Þér hafið verið fjarska ódælir, það hafið þér ferið. Standið upp, og ég skal blanda handa yður eitthvað að drekka.” Judd hristi höfuðið ringlaður. Hann hóf að reisa sig upp af gólfinu. Þegar hann var hálfstaðinn upp, sparkaði Boyd í nára hans með tánni á skónum, og Judd féll aftur niður á gólf, þar sem hann engdist sundur og saman af kvölum. „Ég hef verið að bíða eftir yður i heimsókn ,” sagði Boyd. Judd reyndi að horfa á veruna fyrir framan sig i gegnum blindandi kvalirnar. Hann reyndi að segja eitt- , hvað, en kom ekki upp orði. „Reynið ekki að segja neitt,” sagði Boyd fullur samúðar. „Þetta hlýtur að vera sárt. Ég veit, hvers vegna þér eruð komnir. Þér ætlið að spyrja mig um' Johnny.” Judd reyndi að kinka kolli, og Boyd sparkaði í höfuð hans. Hann heyrði rödd Boyds sem úr fjarska í gegnum rauða þoku, og hún óx og dvinaði til skiptis. , „Við elskuðum hvor annan. þar til hann fór til yðar. Þér komuð honum til að líða eins og öfugugga. Þér komuð honum til að finnast ást okkar óhrein. Vitið þér, hver gerði hana óhreina, dr. Stevens? Þér.” Judd fann eitthvað hart skella á rifbeinum sínum, og senda yfirþyrmandi UlfAM 1 ■ ivci pcivmr civr þekktu merki? li pessu BADEDAS UHU PRIMETTA Inniheldur engin Ef eitthvað þarf að Enginn má fara illa lútarsölt, og eyðir líma þá Ifmir UHU með augun. því ekki varnar- allt Kaupið því ávallt sýrum húðarinnar. Kaupið ekki það góð gleraugu. Primetta sólgleraug- un eru öll með Badedas næst besta þegar nafni Primetta. ★ í næsta bað þér getið fengið Vestur-þýsk ★ í næsta það besta. verksm. sem er vel hárþvott. þekkt firma. Umboðsmaður: H. A. TULINIUS HEILDVERSLUN 20VIKAN 25. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.