Vikan


Vikan - 22.06.1978, Síða 48

Vikan - 22.06.1978, Síða 48
★ Afhýddu epli og gefðu henni bita og bita. Eða veldu eitt- hvaö, sem þú veist, að henni þykirgott.... ★ Vertu ekki alltaf hreinskilinn. Ef til vill væri hún hamingju- samari, ef hún vissi ekki um allarsfnar veiku hliðar... ★ Vertu ekki feimin við að láta „Égelskaþig" Þessi setning hefir heyrst á öllum tímum og á öllum heimsins tungumálum... I loveyou, lch liebe dich, Ti Amo, Je t 'aime, Wo ai mi (kínverskt) o. s. frv. i fyrstu hljóma þessi orð eins og klukknahljómur í eyrum elskendanna. Þau umvefja þann, sem heyrir þau, sælu og unaöi, og v(st halda þau áfram að hljóma vel. En með tímanum verður þessi setning ,,ég elska þig" eins og dálítið flöt. Hann VEIT jú, að hún VEIT, að hann elskar hana, og sama giídir um hana. Þessi orð verða ekki eins æsandi, ekki eins sæluhrollvekj- andi og áður. Og hvernig getur hann þá látið hana vita, að hann elskar HANA enn, eða hún HANN? Til þess eru auövitað ótal mörg tækifæri og það má sýna á ýmsan hátt, en suma skortir næstum alveg hugmyndaflugiö, jafnt konur sem karla. Aðrir eru hins vegar mjög hugmyndaríkir og hljóta þvf aö krydda tilveru ástvinar síns mikiö. Fyrir þau sem langar til, en skortir hugmyndaflugiö, eru hér nokkur ráð: + Elskendur elska aö láta sækja sig. Sæktu hann í vinnuna, til rakarans, á Iþróttavöllinn... ★ Gefðu honum stærsta og rauðasta jarðarberið... ★ Farðu með henni (búðir, þó þér finnist það þrautleiöinlegt ★ Burstaöu skóna hans.... ★ Andaðu að þér ilminum úr hári hennar. ★ Talaðu um, hve hann sé með falleg augu, hár, munn, vel vaxinn o.s.frv.... ★ Farðu fyrstur fram úr á sunnudagsmorgni, láttu renna í baöið og helltu ilmolíu (baðvatnið. Vektu hana blíölega, og ef þú getur borið hana fram (bað- herbergiö, geröu það þál Færðu henni glas af appel- sínusafa eða tómatsafa (gleymdu ekki (smolunum). Þvoðu henni um bakið. (Auðvitaö ertu búinn aö taka til morgunverðinn handa ykkur).... ★ Kysstu hann, þó hann sé þrælstíflaðuraf kvefi... ★ Láttu hann vita, að þú sért dálítiö afbrýðisöm (þó þú sórt ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ vel að honum, þó aðrir sjái... Kynntu hann með stolti I röddinni, þegar þið hittið gamla vini þlna... Strjúktu hár hennar eða snertu hana, þegar þú gengurfram hjá henni.... Spurðu hann, hvernig hafi gengið (vinnunni. Láttu hann aldrei sjá, að þú takir ekki eftir þv(, sem hann segir. Geymdu vandlega bréf og smámiða, sem hún sendir þér... Hafi hún staðið í ströngu við að prófa nýjan spennandi matarrétt, láttu hana þá ekki heyra þig segja, að þú hefðir nú heldur viljað nýja ýsu... Kysstu hann alls staðar (láttu engan llkamshluta óelskaðan)... Gefðu honum óvænt blóm, ekki bara viö sérstök tæki- færi... Hrósaðu honum, líka þegar aðrir heyra... Biddu um ráð hennar — og hlustaðu vandlega eftir svari hennar... Elskaðu hana mest, þegar hún á það minnst skilið, því þá þarfnast hún þess einmitt mest... Leyndarmál M.M. George Master, maðurinn, sem „skapaði Marilyn Monroe og marga aðra Holly woodleikara er nýbúinn að gefa út bók um líf sitt með stjörnunum. Um Marilyn hefur hann ekkert sérstaklega tjáð sig, nema það að hún hafi ekki verið neitt sér- stakt, fyrr en hann hafði eytt mörgum árum í að gera hana það, sem hún varð (segir hann). Hann segir hana þó hafa haft einn góðan kost, nefnilega, að hún hafði það fyrir reglu að fjar- lægja af sér allt, sem henni fannst óþarfi, og af því mættu margar konur læra. Hún bar t.d. ekki oft skartgripi. „Prinsippið” hjá M. M. var heldur að láta vera að bera skartgripi heldur en að bera skartgripi, sem ekki áttu við. Heldur að vera hún sjálf, heldur en hin stóra, kalda skartgripasýning. Eins og með önnur góð fegrunarráð tekur það sinn tíma að læra þetta ráð. En stilltu þér fyrir framan spegilinn. Er eitthvað, sem þér finnst óþarfi að hafa á þér? Skartgripir? Belti eða slæða? Naglalakk? Augn- skuggi? Skórnir eða taskan ekki viðeigandi? Litur sokkanna? 48VIKAN-25. TBL. Dustin Hoffman Vanessa Redgrave Vnue D'unaway m Jeanne Moreau , Jfwfc m *a Raquel Welsh Frank Sinatra Hvað tendrar ástarbálið í brjósti þfnu? Þessi spurning var lögð fyrir nokkra leikara. Sennilega hefir þeim að minnsta kosti sumum, fundist þetta fáranleg spurning, en reyndu þó að svara henni. DUSTIN HOFFMAN — Bakhluti konunnar vekur athygli hans svo um munar. Allt sem bannað er verkar æsandi á hann. RAQUEL WELSH elskar sterka, ákveðna menn, sem eru öruggir með sjálfa sig. FRANK SINATRA - Fætur, já fótleggir kvenna og helst íklæddasokkum,af því það er svo gaman að taka þá af. Að elska finnst honum ágætis hobby eins og að leika golf. Góð hreyfing! VANESSA REDGRAVE - Finnur neistann þegar hún sér karlmann með falleg augu og sterkt augnaráð. FAYE DUNAWAY fellur fyrir heitri, dimmri karlmannsrödd. Paul Newman JEANNE MOREAU - Karlmannshendur. Af þeim les hún persónuna og skaplyndið — og þá verður hún kannski ást- fangin. PAUL NEWMAN elskar húð konunnar, sérstaklega fínlega húð, viðkvæma húð. Sumarglugga- tjöld Þessi léttu fallegu gluggatjöld myndu fara vel i svefnherbergi og þá sérstaklega að sumrinu. Þau eru úr hvítu lakalérefti með milliverkum. En kappinn er saumaður úr blúnduefni. Hægt er að fá meira drapplitaðan blæ á gluggatjöldin með því að láta þau liggja um stund i tevatni. Máltækið segir „Maður getur allt.sem maður vill.” Það er nú kannski ekki alveg satt. En það er satt, að maður getur ekki, ef maður vill ekki. 25. TBL.VIKAN 49

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.