Vikan - 23.11.1978, Side 6
MAÐUR
UNDRANNA
Þó ekki væri talinn nema helmingur
þeirra undra, sem fólk varð vitni að i návist
Daniels Dunglass Homes, þá hlýtur hann
að vera meðal þeirra sem furðulegastir
verða að teljast meðal manna á jörðinni.
Þessi maður var svo magnaðúr miðill, að
hann hefur aldrei átt sinn líka meðal
manna. Og það voru ekki fáfróðir og illa
upplýstir menn, sem urðu vitni að undrum
hans, heldur best menntuðu menn Evrópu
og Ameríku. Hann var ævinlega
reiðubúinn að láta rannsaka hæfileika sina
með þeim skilyrðum sem honum voru sett,
til þess að koma í veg fyrir öll hugsanleg
brögð, enda var hann rannsakaður af
ýmsum færustu vísindamönnum síns tíma,
sem allir urðu að viðurkenna að undur
hans væru óskiljanleg. Aðrir tóku þá
afstöðu, til þess að þurfa ekki að komast að
sömu niðurstöðu, að neita að rannsaka
þessa furðulegu hæfileika, en rægja hann
samt sem svikara.
Undur þau, sem þessi óviðjafnan-
legi miðill gat sýnt, voru með þeim hætti,
að margur hefur átt erfitt með að trúa
sínum eigin augum. í 1000 blaðsíðna bók
um dulsálarfræði, sem kom út í fyrra, er
kafli um hann þar sem því er lýst afdráttar-
laust yfir að þessi maður hafi aldrei beitt
svikum.
Daniel Dunglass Home gat látið
ósýnilegt afl lyfta sér upp í albjartri stofu,
færa sig útum glugga í margra hæða húsi
og koma innum annan. Hann gat tekið upp
glóandi kol með berum höndum og núið
þeim um andlit sér án þess að svo mikið
sem hár sviðnaði á honum.
Slíkt og miklu fleira gerði hann í
viðurvist tignasta fólks Evrópu. Meðal
aðdáenda hans voru t.d. skáldkonan
Elizabeth Barrett Browning, Thackeray,
Mark Twain, Napóleon III., Evgenia
keisarafrú, hinn mikli Tolstoy og fjöldi
annarra hámenntaðri manna beggja megin
Atlantshafsins. Hann gekkst undir
hundruð prófana hjá kunnustu vísinda-
mönnum samtíma síns eins og Sir Williams
Crooks og dr. Roberts Hares.
Daniel Dunglass Home fæddist í
Edinborg á Skotlandi 20. marz 1833. Sagt
var að þessu litla barni hefði iðulega verið
vaggað af ósýnilegum verum. Þegar
fjögurra ára gamall tók hann að sjá sýnir,
sem reyndust vera réttar. Það var sagt, að
móðir hans hefði líka verið skyggn, en hann
var tekinn í fóstur af frænku sinni frú
Mary McNeal Cook strax þegar hann var
eins árs og kom skyggni hans í ljós
jafnskjótt og hann gat farið að tala.
En hann var veiklað barn og fékk
snemma berkla, svo bernska hans varð að
miklu leyti barátta við að halda heilbrigði.
Þegar hann var níu ára gamall fluttu þau
frænka hans og frændi með hann til
Bandaríkjanna og settust að í Greenville í
Connecticut.
UNDARLEG ATVIKIV.
ÆVAR R. KVARAN
Home var seytján ára, þegar hin
efnislegu fyrirbæri hófust, sem áttu eftir að
móta örlög hans. í endurminningum sínum
segir Home frá þvi, að fyrst hafi hann heyrt
þrjú þung högg á höfðalagið á rúminu sínu,
eins og lamið væri með hamri. Það fyrsta
sem honum datt í hug var að einhver hefði
falið sig í svefnherberginu hans til þess að
skjóta honum skelk í bringu. En við
morgunverð morguninn eftir skalf og
titraði matborðið allt af höggum.
Frænka hans og fóstra varð skelfingu
lostin og kallaði þrjá klerka í þorpinu sér til
hjálpar til þess að reka þessa djöfla út úr
húsinu hennar. En bænir klerkanna höfðu
engin áhrif og ráðlögðu þeir henni að
lokum að láta eins og ekkert væri um að
vera.
Þessi borðhögg voru nú eitt út af fyrir
sig, en þegar húsgögnin tóku að fara sjálf-
krafa á kreik um herbergin fannst frú Cook
fullmikið á sig lagt, að ætlast til þess að
hún léti eins og hún vissi ekki af því. Þetta
spurðist um allt og fólk í bænum tók að
flykkjast til þeirra til þess að sjá þessi
óskiljanlegu furðuverk. Þetta endaði
með því, að Home fór að hafa sambands-
fundi, sem fólk úr nágrenninu tók að
sækja til þess að spyrja „talandi borðið”.
Borðið hreyfðist sem svar við spurn-
ingum þessa fólks, sem stóð á öndinni af
undrun. Jafnvel sterkustu karlmenn gátu
hvergi bifað borðinu, nema Daniel væri
viðstaddur til þess að stjórna því.
Home varð eðlilega frægur af þessu og
brátt fóru að streyma til hans vísindamenn,
klerkar og læknar til þess að reyna að
útskýra þessa dularfullu hæfileika unga
mannsins, en þeir færðust með hverjum
deginum i aukana. Margir einstaklingar
vottuðu, að þessi ungi, sálræni maður hefði
læknað þá á stundinni af ótrúlegustu
meinsemdum. Þá kom einnig í ljós hjá
honum furðulegur hæfileiki til þess að
skyggnast fram í tímann og ennfremur að
sjá með skyggnigáfu sinni það sem var að
gerast í órafjarlægð.
Þegar Daniel Dunglass Home kom i
fyrsta sinn til New York árið 1852 hafði
frægð hans borist þangað á undan honum
og beið fjöldi manns þess með óþreyju að fá
tækifæri til þess að sjá með eigin augum
þau undur, sem þessi ungi miðill var sagður
hafa getað gert. Alkunnur og virtur
vísindamaður, dr. Robert Hare, fyrrverandi
prófessor i efnafræði við háskólann í
Pennsylvaniu, hafði þegar lýst því yfir
opinberlega, að fyrirbæri Homes væru
algjörlega sönn. Og þótt þessi virti maður
væri félagi í Ameriska vísindafélaginu
neitaði félagið að hlýða á skýrslu
um þessar rannsóknir hans. Enda þótt
þetta virta félag vísindamanna tæki þá
afstöðu að neita hvorutveggja, að hlýða á
skýrslu virts félaga síns um þessi fyrirbæri
og að rannsaka þau, kom það þó ekki í veg
fyrir það að mestu hefðarmenn meðal æðri
stéttanna í New York sæktust eftir að fá
Home til að sýna þessa furðulegu
hæfileika i einkahíbýlum sínum.
Það sem fína fólkið aðhefst hefur ætíð
verið blaðamatur og þá ekki síður, þegar
þetta fólk tók að segja hinar furðulegustu
sagnir af þvi sem það hafði séð með eigin-
augum og orðið vart við. Fundarmenn
fullyrtu að þeir hefðu verið snertir ósýni-
legum höndum og þyngstu húsgögn hefðu
farið á kreik af sjálfsdáðum.
Til dæmis um viðbrögð þessa fólks skal
hér rifjað upp eitt dæmi. F.C Andrue
skrifaði bréf, sem birtist í blaðinu The
Republican, þar sem hann lýsti nótt einni
(25. september 1854) sem hann hafði eytt i
sama herbergi og Home í hibýlum Elmer-
fjölskyldunnar.
Andrue skrifaði, að skömmu eftir að þeir
voru háttaðir „þá fórum við að heyra dauf
6 Vikan 47. tbl.