Vikan - 23.11.1978, Síða 24
„Faðir minn og ég elskum þetta
hús....”
„Þetta er svo einmanalegur staður
fyrir litla stúlku, sem er svona mikið ein.
Nei, ég held að við breytum
áætlunum.....”
„Við erum með leigusamning til
þriggja ára.”
Frú Hallet hélt áfram að núa saman
bleikum höndunum. „Það hefur hent að
samningum hafi verið riftað. Nei. Það
kæmi mér ekki á óvart að heyra að faðir
þinn hefði þegar ákveðið að fara
eitthvað annað þar sem færi betur um
ykkur.”
„Þú ættir ekki að hafa áhyggjur af
okkur, frú Hallet.”
„Þarna er hann aftur. Þessi stöðugi
háðstónn. Og horfðu ekki á mig þessum
sáru augum, að þykjast hafa verið mis-
skilinn. Þú reynir að láta sem þú ætlir
orðunum ekki að hljóma eins og þú segir
þau. En þú og ég vitum báðar
nákvæmlega hvað það er, sem þú ætlar
þér.”
„Þarna eru sultukrukkurnar frú Hall-
et. Á þorðinu."
„Ertu að reka mig út?”
Orðlaus hlustaði Rynn á djúpan and-
ardrátt konunnar.
„Kallaðu á föður þinn?” Rödd hennar
var hrá af reiði. „Samstundis!”
„Ég sagði þér það. Það má ekki ónáða
hann.”
Frú Hallet var farin frá arninum og
komin fram í holið þar sem hún hikaði
með hendina á dyrahúninum að vinnu-
herberginu, eins og hún biði eftir skipun
frástúlkunni.
Rynn hafði aldrei talað með meiri
festu.
„Ekki opna þessar dyr.”
„Þú og ég vitum mætavel að hann er
ekki þarna,” sagði frú Hallet.
Rödd Rynn var hljóð og róleg. „Opn-
aðu þessar dyr, frú Hallet, og ég neyðist
til að segja föður mínum frá syni
þinum.”
„Syni minum?” Hönd frú Hallet féll
af dyrahúninum og orðin voru eins og
urr fangaðs dýrs.
„Frá kvöldinu, sem hann var hér. Ég
hef ekki enn sagt föður mínum frá því.”
Þó Rynn gæti ekki séð frú Hallet í
dimmu holinu vissi hún ekki að andlit
konunnar var afmyndað af heift.
daosins með
lylilol cr nátlúrulcgt sictici'n
sykurlaust
tyssigúmmí frá Wrigleys
LAWEX
frískandi þurrkur
vættar spritti
a skrifstofuna
íbílinn
í ferdalög
Heildsolubirgdir
Halldór Jórisson hf.
FÉLAG ÍSLENZKRA HLJÓMLISTARMANNA
útvegar yður hljóðfœraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri
Vinsamlegast hringið í 20255 milli kl.14-17
Litla stúlkan við
endann á
trjágöngunum
„Sagt föður þinum hvað?”
„Það, sem skeði hér." Rynn beið og
leyfði þögninni að sakfella son konunn-
ar.
„Hvernig hann hagaði sér. Greinilega
veit fólkið í þorpinu allt um hann ..”
Frú Hallet stökk út úr skugganum.
„Miglioriti! Hann er lygari!”
Ekki Miglioriti lögregluþjónn, frú
Hallet.” Andstætt rauðri hrárri móður-
sýki konunnar varð stúlkan rólegri og
náði taumhaldi á skapi sinu.
„Hvað sagði þessi bölvaður italadólg-
ur þér?”
„Ekkert, frú Hallet.”
„Ekkert? Þegar hann hefur alltaf hat-
að Frank? Sagði hann þér að áður en
Frank giftist henni, hélt hann við konu
sonar mins? Ertu hissa að hann skuli
hata son minn?”
„Hann ætlaði ekki einu sinni að vilja
segja mér að börn sonar þíns eru ekki
hans börn. Ég varð að spyrja hann.”
„Hvað annað sagði hann? Ég heimtai
að fá að vita hvað hann sagði.”
„Jafnvel þegar ég spurði um sálfræði-
lega meðhöndlun fyrir son þinn eða af
hverju lögreglan gerir ekki neitt...”
Ekkert sem frú Hallet hefði gen á
þessu augnabliki hefði komið Rynn á
óvart. Konan var farin að blána i fram-
an, en nú var komið að henni að beisla
reiði sina.
„Hvers vegna ættu þeir að gera eitt-
hvað?”
„Þegar sonur þinn býður litlum
stúlkum sælgæti...?”
Af óhamdri grimmd rak konan stúlk-
unni sviðandi löðrung. Með logandi and-
lit hljóp Rynn að borðinu og ýtti kassan-
um með glamrandi glerkrukkunum fram
á brúnina.
„Krukkurnar þinar, frú Hallet.”
„Þú ætlar að koma þcr út úr þessu
húsi!”
„Minu húsi, frú Hallet.” Rynn hélt
aftur af heitum tárunum.
„Með eða án föður þíns...”
Rynn kyngdi ekka. „Það er satt, þetta
er einmanalegur staður hérna neðst í
trjágöngunum. Ég er oft ein. Það veldur
mér engum áhyggjum, frú Hallet. Ef
það veldur þér áhyggjum, þá er það
vandamál, sem þú ættir að reyna að
leysa með syni þínum!”
„Djöfullinn hirði þig!”
Regnið lamdi þakið.
Frú Hallet færði sig að borðinu og rak
höndina niður í kassann.
„Engir hringir,” sagði hún. „Án
gúmmíhringjanna eru glösin einskis
nýt.”
Rynn rýndi í kassann. Hönd hennar
leitaði æðislega milli skröltandi glas-
24 Vikan 47. tbl.