Vikan - 04.01.1979, Page 5
Snmmftaua Bomkasf l-Ku«a
Wainoau und Kellef i
Mosel • Saar • Ruwer
r■ ■ «7* -\
Ma'gj Rícsling Kabínett J
A, P. N/. 2 W7Q3Í '00374
1*75
RIESLING
KABINETT
Bemkasteler
Schlossberg
2.200 kr.
8 stig.
Bestu kaup.
1977
BLUE NUN
Bereich Bern-
kastel
2.000 kr.
stig.
Mjög góð
kaup.
1977
ZELLER
SCHWARZE
KATZ
2.100 kr.
Góð kaup.
1977
BEREICH
BERN-
KASTEL
2.300 kr.
6
stig
1977
MOSEL-
BLUMCHEN
2.300 kr.
1970
MEHRINGER
GOLDKUPP
Mittelmosel
2.200 kr.
.. stig.
Ekki drykkj-
arhæft.
frá Sichel lenti óvænt í öðru sæti
gæðamats Vikunnar. Þetta er gæðavín,
en nafnið hefur bara miðlungi gott orð á
sér, — hefur verið auglýst úr hófi fram.
Árgangurinn er 1977, með þeim betri.
Þetta vín reyndist í gæðaprófun
Vikunnar hafa um það bil jafngóðan ilm
og hið fyrrnefnda. Sama er að segja um
bragðið, sem var heldur sætara. Hins
vegar var liturinn fremur glær og dró
hann vinið niður í einkunn. I heild má
segja, að þetta hafi verið gott vín.
Gæðaprófunin gaf víninu einkunnina
7 eða næsthæstu einkunn i þessum
flokki. Þar sem vínið kostar mjög lítið á
mælikvarða Ríkisins eða 2.000 krónur,
verða að teljast mjög góð kaup í því.
„ZELLER SCHWARZE KATZ”
Frá Frankhof, árgangur 1977, komst i
þriðja sæti. Þetta er gæðavín frá þekktu
vínræktarsvæði við þæinn Zell og heitir
svæðið hinu merkilega nafni: „Svarti
köttur”.
Ilmur þessa víns var síðri en tveggja
hinna fyrri og bragðið ekki í eins góðu
jafnvægi. Hins vegar var þetta vín
dálítið sér á parti. Mikið var í því af
loftbólum og bragðið hafði dálítinn keim
af freyðivíni.
Gæðaprófunin gaf víninu einkunnina
6. Verð þess er 2.100 krónur, svo að hér
væri um góð kaup að ræða, ef hin tvö
vínin stæðu ekki framar.
Hversdagsleg vín, en drykkjar-
hæf
„BEREICH BERNKASTEL” frá
Anheuser, árgangur I977, var í fjórða
sæti. Ilmur þess og bragð var síðri en
tveggja fyrstnefndu vínanna. Þar á ofan
reyndist korktappinn lélegur og erfiður
viðureignar.
Gæðaprófunin gaf víninu einkunnina
6 eða sömu einkunn og Svarti kötturinn
fékk. Þetta vín er hins vegar dýrara,
kostar 2.300 krónur, svo að það veröur
að vikja úr sæti á jöfnum stigum.
„MOSELBLÚMCHEN” frá An-
heuser, árgangur 1977, lenti í
næstsíðasta sæti í gæðaprófun
Vikunnar. Þetta er eins konar
„Liebfraumilch” Móseldals, búið til úr
afgöngum, sem ekki er unnt að selja
með nákvæmari staðfæringu.
Þetta vín var fallegt, en reyndist hafa
lítinn ilm. Bragðið var svipað og á
víninu, sem lenti í fjórða sæti. 1 heild má
segja, að þetta hafi reynst hversdagslegt
vín, alveg frambærilegt og skyggir að
minnsta kosti ekki á matinn.
Gæðaprófunin gaf vininu einkunnina
5. Því miður er það í dýrasta lagi meðal
Móselvína, kostar 2.300 krónur. Þarna
er þvi um að ræða ósamræmi milli verðs
og gæða.
Gamalt vín að hruni komið
„MEHRINGER GOLDKUPP” frá
Hau (Fischer) er vin frá lítt þekktum
akri í Bernkastel-svæðinu. Árgangurinn
er 1970 og þótti sæmilegur á sínum
tíma, en er núna orðinn of gamall.
Þetta var fallegt vín, dýpst allra og
gulast að lit. Slík eru oft einkenni
gamalla vína. Þegar lyktað var að því,
kom svo í Ijós, að ekki var allt með
felldu. Ilmurinn var að breytast í fýlu.
Þetta staðfestist svo, þegar bragðað var
á því. Vínið reyndist flatt, úr jafnvægi,
að hruni komið.
Gæðaprófunin gaf víninu einkunnina
2, sem er greinileg falleinkunn. Verðið
er 2.200 krónur, sem er að minnsta kosti
2.200 krónum of mikið. Hér er því
greinilega um vond kaup að ræða.
Ríkið ætti að athuga þetta mál og
taka vínið úr umferð, ef fleiri flöskur
reynast sama marki brenndar og sú, sem
lenti í prófuninni. Ekkert benti til þess,
að hrun vínsins væri tappanum um að
kenna í þessari ákveðnu flösku.
Athyglisvert er, að vín, sem heitir
„Mehringer Goldkupp”, skuli vera selt
undir nafninu „Törnicher Engass” i
verðskrá Ríkisins. Bendir það til ákaf-
lega afslappaðra viðhorfa til staðreynda.
Móselvín má velja betur
Samanlagt má þó segja, að Ríkið
standi sig betur í innkaupum Móselvína
en á ýmsum öðrum sviðum. Velja mætti
þó saman skemmtilegri blöndu sex vína
til að fá margfalda fjölbreytni í
framboðið.
Til dæmis mætti hafa eitt vín frá
þveránni Ruwer og annað frá þveránni
Saar. Ennfremur mætti hafa fleiri flokka
praktvína en „Kabinett” eitt, t.d.
„Spaetlese” og „Auslese”.
í staðinn mætti fella brott skemmda
vínið, afgangavinið og tvö hin síðri af
almennu gæðavínunum. „Riesling
Kabinett” og „Blue Nun” mundu sóma
sér vel með tveimur hliðstæðum vínum
frá Saar og Ruwer og tveimur
praktvínum frá Mósel, sætari en
Kabinett.
Tvennt þarf að benda lesendum á til
öryggis. Verð getur hafa hækkað frá
ritun þessa texta til birtingar hans. Og
þar að auki getur Rikið fyrirvaralaust
skipt um árganga af þessum vínum,
ýmist til hins betra eða verra.
Að lokum er nauðsynlegt að benda á,
að engin skynsemi bannar neyslu
hvítvína með kjöti. Allt tal um annað
eru fordómar, sem ekki hafa við rök að
styðjast.
JónasKristjánsson
/ nœstu Vikw
Liebfraumilch
Qualitátswein
l.tbl. Vikan 5