Vikan - 04.01.1979, Blaðsíða 56
mMAÍ
if''-
K.S. f urunála-skúmbað
jafn ómissandi
ogsápa
BAD
É " f
BAD
fæst um land allt
Heildsölubirgðir: Kristjánsson HF.
Símar 12800og 14878.
Lítið fréttabréf úr fortíðinni,
með sönnum fréttum sem gleymdust fljótt.
JARÐARFÖR FLUGUNNAR í
GARÐI SKÁLDSINS
Publius Vergilus Maro (70-19 f. Kr.l,
eða Virgill eins og hann heitir á
islensku og þekktur er fyrir Eanesar-
kviðu sina, hélt ertt sinn mikla útför i
garðinum við hið glæsilega hús sitt i
Esquiline hæðinni i Róm. Þar var
grafin húsfluga, sem Virgill hélt
fram að hefði verið sitt besta
húsdýr. Margt fyrirmanna var mætt
við útförina, auk stórrar hljóm-
sveitar er lék sorgarlög. Virgill hafði
sjélfur ort mikinn Ijóðabélk i
minningu flugunnar og flutti hann
við þetta tækifæri. Útför þessi
kostaði skéldið stórfé og fóik spurði
hvort annað hvers vegna í ósköpun-
um maðurinn væri að þessu. Þar
kom tvennt til. Annaðhvort hafði
manninum þótt svona ofurvænt um
þessa litlu flugu, eða þé að honum
hafði verið kunnugt um fyrirætlanir
stjórnarinnar um upptöku é landi
hinna riku til handa uppgjafa-
hermönnum sem ekkert land éttu.
Þegar aðgerðir stjórnarinnar komu
til framkvæmda kom í Ijós að henni
var óheimilt að taka eignarnémi þær
jarðir sem einnig voru notaðar sem
fjölskyldu- eða vinagrafreitir. En allt
um það. Virgill benti é staðinn þar
sem litla éstkæra flugan hans var
grafin og hélt landi sinu ...
ÞEGAR ANDINN LÆTUR
ÁSÉRSTANDA
Rithöfundurinn þekkti Viktor
Hugo (1802-1885), sem meðal annars
skrrfaði Vesalingana, var ekki alltaf
jafn andríkur. Fyrir kom að hann gat
bara alls ekki skrrfað og fór þé
gjarnan að gera eitthvað allt annað.
En hann fann réð við því. Hann lét
þjón sinn taka öll fötin sin og sat
einn eftir með penna og blað. Þé leið
ekki é löngu þar til hann færi að
skrifa aftur. Eða hvað getur nakinn
maður með penna og blað gert
annað en skrffað?
56 Vlkan I.tbl.